Síða 1 af 2

Nethraði - Hringdu

Sent: Lau 04. Feb 2012 02:56
af tanketom
Eru fleirri hérna að fá fáranlega lélegan hraða á netinu núna? :mad

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Lau 04. Feb 2012 04:00
af Arkidas
jaaa nei nei. Fínt ping - er að sækja 2.6mb/s af steam og svo einhver mb/s í torrent. Hef fengið betri hraða á Steam en öruggleg bara tilviljun.

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Lau 04. Feb 2012 07:00
af tanketom
Þá er ég að tala um ADSL ;)

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Lau 04. Feb 2012 07:26
af lyfsedill
hef verið með lelegan hraða og net að detta út á mínútu fresti í secundur, ekkert hægt að horfa á youtube stoppar alltaf og byrjar aftur. verið hjá hringdu í nokkra mánuði og aldrei lent í þessu

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Lau 04. Feb 2012 13:18
af tomasjonss
Ja, er eins og sé eitthvað smá bögg á adsl. Hlýtur að lagast

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Lau 04. Feb 2012 18:53
af blitz
Búið að vera fínt hjá mér í 6 vikur en s.l. 3 daga hefur samband við USA verið mjöög hægt.

Þetta lagast :)

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Lau 04. Feb 2012 20:41
af ZiRiuS
Jebb, ætlaði einmitt að fara að tuða yfir því, hélt kannski að þeir hefðu cappað mig fyrir stæla :D

Enn allt í rugli ennþá, myndir á facebook loadast ekki einu sinni.

*edit*
Vá sé að þessi þráður var gerður fyrir 7 klukkustundum... kalla þeir þetta ásættanlega þjónustu? Er nú bara hálf hissa...

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Mán 06. Feb 2012 02:41
af tanketom
þetta er enþá svona hjá mér :uhh1

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Mán 06. Feb 2012 02:50
af tomasjonss
haha

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Þri 07. Feb 2012 10:09
af ZiRiuS
Er erlend traffík ennþá í ruglinu?

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Þri 07. Feb 2012 10:13
af marte1nn
Nethraði frá útlöndum er búinn að vera skelfilegur í cirka viku hjá mér, get valla horft á youtube í 360p gæðum.

Er með ljósleiðaratengingu frá Hringdu.

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Þri 07. Feb 2012 10:15
af ZiRiuS
marte1nn skrifaði:Nethraði frá útlöndum er búinn að vera skelfilegur í cirka viku hjá mér, get valla horft á youtube í 360p gæðum.

Er með ljósleiðaratengingu frá Hringdu.


Er einmitt búinn að lenda í því sama síðan fyrir helgi, get varla horft á Youtube, er samt bara á ADSL.

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Þri 07. Feb 2012 10:32
af chaplin
50MB "ljósnet" Hjá Símanum.

Mynd
Mynd
Mynd
Mynd

Problem? :troll

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Þri 07. Feb 2012 10:35
af ZiRiuS
chaplin skrifaði:50MB "ljósnet" Hjá Símanum.

Problem? :troll


Virkar frekar mikið problem já :D

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Þri 07. Feb 2012 13:28
af marte1nn
chaplin skrifaði:50MB "ljósnet" Hjá Símanum.

Mynd
Mynd
Mynd
Mynd

Problem? :troll


Þetta finnst mér skelfileg innlend tenging, ég væri búinn að kvarta.

Ég hef nú aldrei litið á mig sem sérfræðing en einhverstaðar las ég að 50MB tenging sé sama og 400Mb þannig að þú ert ekki að fá mikið fyrir peninginn.

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Þri 07. Feb 2012 13:37
af dori
marte1nn skrifaði:Þetta finnst mér skelfileg innlend tenging, ég væri búinn að kvarta.

Ég hef nú aldrei litið á mig sem sérfræðing en einhverstaðar las ég að 50MB tenging sé sama og 400Mb þannig að þú ert ekki að fá mikið fyrir peninginn.

Ég ætla svosem ekki að kommenta á það hvernig þessi tenging hjá chaplin lúkkar en það er rétt hjá þér að 50MBps er sama og 400Mbps. Þetta er gamla byte = 8 bit pælingin.

Hins vegar er nethraði yfirleitt mældur í bitum þannig að 50MB tenging er í rauninni 50Mb.

Svo megið þið ekki gleyma því að fyrir hluti til að vera snappí þá skiptir biðtími miklu meira máli en bandvídd. 20Mb tenging með 4ms biðtíma innanlands er t.d. miklu skemmtilegra uppá venjulega notkun en 100Mb tenging með 20ms biðtíma.

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Þri 07. Feb 2012 14:19
af Arkidas
Var að reyna að sækja af torrent í gær með 100mb ljósleiðara hjá Hringdu og fékk ekkert yfir 150kb/s. Tengdur með kapli - vinsælt torrent - sótti á 30min uppi í Háskóla núna í morgun (4gb+ fæll). Fékk fína innlenda mælingu á speedtest samt - prófaða ekki erlenda.

Einhverjir í vandræðum með ljósleiðarann líka?

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Þri 07. Feb 2012 14:38
af chaplin
marte1nn skrifaði:Þetta finnst mér skelfileg innlend tenging, ég væri búinn að kvarta.

Ég hef nú aldrei litið á mig sem sérfræðing en einhverstaðar las ég að 50MB tenging sé sama og 400Mb þannig að þú ert ekki að fá mikið fyrir peninginn.

Búinn að kvarta margoft, búinn að gefast upp á því, Síminn tapar bara viðskiptavini og forða ég öllum þeim sem spyrja mig hvar er best að sækja um net/síma frá þeim.

Ég var viðskiptavinur hjá þér í sjálfsagt 8-10 ár, ekki alveg með það á hreinu, fyrstu árin voru fín en svo endalaus óhamingja, ég fór yfir til Hringjdu, aldrei neitt vesen með netið, fékk alltaf svör þegar ég sendi þeim póst - efast um að ég hafi verið að fá e-h sérþjónustu. Fór eingöngu fyrir afþví Síminn bauð upp á Ljósnet en svo er ég bara að fá lítið betri hraða og hrikalega óstöðuga tengingu.

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Þri 07. Feb 2012 15:12
af siminn
Vorum að senda þér einkaskilaboð Chaplin.

Þú ert ekki að fá eðlilegar tölur á speedtest og því augljóslega eitthvað þarna sem að við getum lagað. Mátt endilega kíkja á innhólfið þitt svo að við getum farið í málið.

kveðja,
Guðmundur hjá Símanum

chaplin skrifaði:
marte1nn skrifaði:Þetta finnst mér skelfileg innlend tenging, ég væri búinn að kvarta.

Ég hef nú aldrei litið á mig sem sérfræðing en einhverstaðar las ég að 50MB tenging sé sama og 400Mb þannig að þú ert ekki að fá mikið fyrir peninginn.

Búinn að kvarta margoft, búinn að gefast upp á því, Síminn tapar bara viðskiptavini og forða ég öllum þeim sem spyrja mig hvar er best að sækja um net/síma frá þeim.

Ég var viðskiptavinur hjá þér í sjálfsagt 8-10 ár, ekki alveg með það á hreinu, fyrstu árin voru fín en svo endalaus óhamingja, ég fór yfir til Hringjdu, aldrei neitt vesen með netið, fékk alltaf svör þegar ég sendi þeim póst - efast um að ég hafi verið að fá e-h sérþjónustu. Fór eingöngu fyrir afþví Síminn bauð upp á Ljósnet en svo er ég bara að fá lítið betri hraða og hrikalega óstöðuga tengingu.

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Þri 07. Feb 2012 17:26
af Arkidas
Verið að nota Vaktarann á Vaktinni?

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Þri 07. Feb 2012 21:38
af siminn
Arkidas skrifaði:Verið að nota Vaktarann á Vaktinni?


Giska á að þessu sé beint að okkur :)

Við höfum verið hér inni í nokkur ár, margir starfsmenn eru notendur hér og því upplagt að hafa opinberann notanda frá Símanum sem getur aðstoðað og svarað fyrirspurnum ef þess þarf. Sjáum því bara sjálfir um að vakta Vaktina.

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Þri 07. Feb 2012 21:49
af Jimmy
Er með mjög svipaðan dl/ul hraða og chaplin á Rvk serverinn og næstum því tvöfaldan dl hraða á cph serverinn ._.

Ljósnet hjá Símanum í Grafarvogi.

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Þri 07. Feb 2012 21:50
af GuðjónR
siminn skrifaði:
Arkidas skrifaði:Verið að nota Vaktarann á Vaktinni?


Giska á að þessu sé beint að okkur :)

Við höfum verið hér inni í nokkur ár, margir starfsmenn eru notendur hér og því upplagt að hafa opinberann notanda frá Símanum sem getur aðstoðað og svarað fyrirspurnum ef þess þarf. Sjáum því bara sjálfir um að vakta Vaktina.


Sem er gott mál :happy

Ég var bara að sjá þetta "Vaktarinn" núna fyrst...hafði oft séð þennan "claraBOT" aka clara.is koma hingað og bannaði bottinn enda finnst mér að umræðurnar hér eigi ekki að vera til sölu.

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Lau 11. Feb 2012 21:56
af ZiRiuS
Öll USA traffík ennþá í ruglinu hjá ykkur?

Re: Nethraði - Hringdu

Sent: Lau 11. Feb 2012 22:40
af tomasjonss
Nei, ég er hress.