Síða 1 af 2

Android App - Tækniskólinn v1.2 *PUBLISHED @ ANDROID MARKET*

Sent: Mán 16. Jan 2012 14:26
af Frantic
Var að klára app fyrir Android kerfið sem sýnir hvaða kennarar eru veikir í dag.
Ástæðan fyrir því að ég varð að búa þetta til var að ég bý frekar langt í burtu frá skólanum og það er svo fáránlega svekkjandi þegar maður er mættur og kennarinn er veikur.
Svo, núna opna ég alltaf appið rétt áður en ég legg af stað.

Þetta er miklu þæginlegra en að flétta upp fjarvistunum á heimasíðu Tækniskólans þar sem appið sýnir einnig myndir af kennaranum ásamt fullu nafni og skammstöfun.
Það er ótrúlegt hvað það breytir miklu að vera með mynd við nafnið á kennaranum og það sparar hellingstíma því heilinn minn er miklu fljótari að þekkja andlit heldur en nöfn á öllum kennurum mínum sem ég hef kannski hitt einu sinni áður.
Það vantar myndir á aðeins 30 kennara af ca. 225 kennurum.

Það er Cron Job sem sækir þessar upplýsingar frá kl 07:00 - 17:00 á 5 mínútna fresti.
Appið á að refresh-ast á mínútu fresti og gerir það í Wildfire S símanum mínum.

Ég var að spá í að uppfæra útlitið á þessu í nálægri framtíð því þetta var bara eitthvað sem ég henti saman á no-time. :happy
Ætlaði líka að setja inn menu svo hægt sé að velja refresh hvenær sem er.
Endilega komið með hugmyndir hvernig má breyta og bæta.

Mig langar að biðja ykkur sem prófa forritið að segja mér ef þið lendið í einhverju veseni eða ekki og segja mér hvernig síma/tæki þið eruð með + Android version.
Var búinn að prófa á Wildfire S með Android v2.3.5 og Desire með Android 2.2 minnir mig.

*UPDATE*:
Tækniskólinn v1.2:

1: Yfirlýsing sýnd þegar smellt er á Tækniskóla lógóið neðst á síðunni.
2: Tilkynning sýnd þegar nýr kennari er skráður (ekki sama og notification).
3: Útlit bætt og breytt.
4: Appið uppfærir síðuna á 60 sekúndu fresti.

ATH: Það er mikilvægt að eyða út fyrri útgáfum áður en nýja er sett upp.

Download: http://market.android.com/details?id=web.Fjarvistir

Skannið eða smellið:
Mynd

Re: Android App - Tækniskólinn v1.0

Sent: Mán 16. Jan 2012 14:54
af intenz
Snilld, vel gert. Hvaða API notaru?

Virkar annars vel hérna á SGS2 @ CM7 Android 2.3.7

Re: Android App - Tækniskólinn v1.0

Sent: Mán 16. Jan 2012 15:09
af Frantic
intenz skrifaði:Snilld, vel gert. Hvaða API notaru?

Virkar annars vel hérna á SGS2 @ CM7 Android 2.3.7


Takk fyrir það.
Ég downloadaði nýjasta SDK(v.4.0.3) og hélt fyrst að það hlyti að vera best.
Það er í API level 15 en það virkaði aldrei hjá mér, kom bara parsing error sama hvað ég reyndi.
Svo ég las mig meira um og endaði á að lækka það niður í 5 sem á víst að vera í lagi þar sem um ræðir frekar basic app.

Re: Android App - Tækniskólinn v1.0

Sent: Mán 16. Jan 2012 16:08
af Tesy
Hvenær kemur svo iOS version? :þ

Re: Android App - Tækniskólinn v1.0

Sent: Mán 16. Jan 2012 16:42
af gardar
þegar ég var í menntaskóla þá kóðuðum við nú bara lítið forrit sem sendi manni veikindi kennara í sms-i :sleezyjoe

Re: Android App - Tækniskólinn v1.0

Sent: Mán 16. Jan 2012 17:33
af Frantic
Tesy skrifaði:Hvenær kemur svo iOS version? :þ


Þegar þú gefur mér IPhone og Mac. (as in never) :-"
(edit: ef einhver hefur kunnáttu og getu að gera iOS version af þessu þá má hann endilega hafa samband við mig)

gardar skrifaði:þegar ég var í menntaskóla þá kóðuðum við nú bara lítið forrit sem sendi manni veikindi kennara í sms-i :sleezyjoe


Það var mjög vinsælt að misnota sms gáttinar sem fannst í kóðasöfnunum. Ég henti alltaf for loopur utanum sms functionið og senti á alla félagana svona u.þ.b. 5hundruðþúsund milljón sinnum. :happy

Re: Android App - Tækniskólinn v1.0

Sent: Mán 16. Jan 2012 17:51
af gardar
JoiKulp skrifaði:
Tesy skrifaði:Hvenær kemur svo iOS version? :þ


Þegar þú gefur mér IPhone og Mac. (as in never) :-"
(edit: ef einhver hefur kunnáttu og getu að gera iOS version af þessu þá má hann endilega hafa samband við mig)

gardar skrifaði:þegar ég var í menntaskóla þá kóðuðum við nú bara lítið forrit sem sendi manni veikindi kennara í sms-i :sleezyjoe


Það var mjög vinsælt að misnota sms gáttinar sem fannst í kóðasöfnunum. Ég henti alltaf for loopur utanum sms functionið og senti á alla félagana svona u.þ.b. 5hundruðþúsund milljón sinnum. :happy



svo er bara að tengja systemið við myschool/innu eða hvað það er sem menn nota og parsa stundatofluna... svo að menn fái bara sms um þá kennara sem eru að kenna þeim og einungis á þeim dogum þegar þeir tímar eru :)

Re: Android App - Tækniskólinn v1.0

Sent: Mán 16. Jan 2012 20:58
af addifreysi
Þetta er bara snilldar app og virkar vel á hTC Sensation 4G :happy

Re: Android App - Tækniskólinn v1.0

Sent: Mán 16. Jan 2012 21:17
af Blitzkrieg
Glæsilegt :D flott framlag

Re: Android App - Tækniskólinn v1.0

Sent: Þri 17. Jan 2012 12:43
af Frantic
Ég vona bara að fleiri geta notað þetta.
Er að vinna í að setja refresh takkann inn í appið(Menu -> Refresh).
Ef þið hafið einhverjar hugmyndir sem mætti koma inní appið þá endilega látið mig vita. ;)

Re: Android App - Tækniskólinn v1.0

Sent: Þri 17. Jan 2012 12:54
af Raidmax
Snildar forrit en það er samt alltaf sent SMS ef einhver kennari er veikur. Kannski fá það ekki allir en ég held nú flestir, engu að síður frábært forrit :D :happy

Re: Android App - Tækniskólinn v1.0

Sent: Þri 17. Jan 2012 13:20
af ManiO
Búinn að hafa samband við stjórn skólans og byðja um að setja þetta á síðu skólans?

Re: Android App - Tækniskólinn v1.0

Sent: Þri 17. Jan 2012 16:23
af Frantic
Raidmax skrifaði:Snildar forrit en það er samt alltaf sent SMS ef einhver kennari er veikur. Kannski fá það ekki allir en ég held nú flestir, engu að síður frábært forrit :D :happy


Það útskýrir af hverju það stendur alltaf að símanúmerið mitt sé ekki skráð í öllum tölvupóstum sem ég fæ frá þeim. :megasmile
En þetta er kannski meira spurning hvort maður vill fá upplýsingarnar on demand eða á þeim tíma þegar fólk er skráð veikt.
Það gæti talist sem galli þegar maður fær sms eldsnemma á morgnanna og á ekki að mæta fyrr en eftir hádegi.
Persónulega myndi mér finnast betra að nota appið.

ManiO skrifaði:Búinn að hafa samband við stjórn skólans og byðja um að setja þetta á síðu skólans?


Nei ég hef ekki gert það, hugsanlega geri ég það þegar ég er orðinn sáttur við lokaútgáfuna.

Ég er byrjaður á v1.1 þar sem hægt er að opna menu og refresha upplýsingunum.
Þar sem ég er ekki með Developer Licence frá market þarf að uninstalla v1.0 og installa svo v1.1.
En ég set upplýsingarnar svo í Original Post þegar ég er búinn með það.

Fékk eina hugmynd um að hægt sé að vista inn skammstöfun af öllum kennurum sem kenna manni og þá er gert meira augljóst hvort að kennarinn þinn er veikur.
Góðar líkur á að ég fari í það þegar eftir v1.1.

Re: Android App - Tækniskólinn v1.1 *UPDATE*

Sent: Mið 18. Jan 2012 18:43
af Frantic
*UPDATE*:
Tækniskólinn v1.1:

1: Hægt er að senda lítinn alert glugga í appið frá vefsíðunni.
1.1: Ætti að gerast þegar vefsíða sækist í fyrsta skiptið eftir að nýr kennari kemur fram.
1.2: Sést ekki ef appið keyrir í bakgrunni.
2: Vefsíðan refreshar ekki heldur sækir appið vefsíðuna á 60 sek fresti.

Var að vinna í því að gera service sem gefur notification þegar nýr kennari kemur fram en ég ætla að láta það bíða aðeins.
Næst á dagskrá er að gera vefsíðuna stílhreinni.

ATH: Eyðið fyrst Tækniskólinn v1.0
Download: http://tskoli.joikulp.net/download/TSkoli-v1.1.apk

Mynd

Re: Android App - Tækniskólinn v1.1 *UPDATE*

Sent: Mið 18. Jan 2012 20:22
af Arnarr
Virkilega flott forrit og allt og vill ekki vera með leiðindi en ég er í tækniskólanum og ég fæ alltaf sms frá innu ef kennari er veikur. Því sé ég ekki alveg tilgangin í þessu :roll:

Re: Android App - Tækniskólinn v1.1 *UPDATE*

Sent: Mið 18. Jan 2012 20:43
af zedro
Screeeens! :crazy

Re: Android App - Tækniskólinn v1.1 *UPDATE*

Sent: Mið 18. Jan 2012 21:07
af Frantic
Arnarr skrifaði:Virkilega flott forrit og allt og vill ekki vera með leiðindi en ég er í tækniskólanum og ég fæ alltaf sms frá innu ef kennari er veikur. Því sé ég ekki alveg tilgangin í þessu :roll:


Þetta getur verið alternative frá SMSunum.
Ég er frekar feginn því að þeir séu ekki með símanúmerið mitt því þegar það var skráð var ég alltaf að fá boð á eitthvað af þessum heimsþekktu leiðindarböllum.
Það er ekki hægt að senda myndirnar af öllu kennurunum í SMSi en aftur á móti getur appið ekki sagt hvaða tímar falla niður nema ef það yrði þróað áfram.

Ég veit ekki hvort er betra almennt, en ég mun nota þetta :D
Alltaf gaman að hafa möguleika á fleira en einu kerfi, right?

Re: Android App - Tækniskólinn v1.1 *UPDATE*

Sent: Mið 18. Jan 2012 21:23
af Frantic
Zedro skrifaði:Screeeens! :crazy


Your wish is my command :happy

Mynd

Re: Android App - Tækniskólinn v1.1 *UPDATE*

Sent: Mið 18. Jan 2012 22:00
af zedro
Voooohoooo einhverjir lukkunarpamfílar fengu frí í STÆ. Gisli er allveg hrikalegur kennari :P

Þrusufínt, clean valmynd, mætti kannski losa sig við hauskúpurnar :shock:
Það má allveg leika sé með visual styles á þessu. Hvað það hefði verið gaman að
vera í skólanum ef að snallsímar hefðu verið komnir í denn :dissed

Re: Android App - Tækniskólinn v1.1 *UPDATE*

Sent: Mið 18. Jan 2012 22:07
af Frantic
Zedro skrifaði:Voooohoooo einhverjir lukkunarpamfílar fengu frí í STÆ. Gisli er allveg hrikalegur kennari :P

Þrusufínt, clean valmynd, mætti kannski losa sig við hauskúpurnar :shock:
Það má allveg leika sé með visual styles á þessu. Hvað það hefði verið gaman að
vera í skólanum ef að snallsímar hefðu verið komnir í denn :dissed


Ég hef einu sinni gefist upp á sitja í tíma hjá honum og skráði mig úr honum eftir stuttan tíma.
Fer í það örugglega á morgun að breyta bakgrunni og gera þetta útlit meira clean. ;)

Re: Android App - Tækniskólinn v1.1 *UPDATE*

Sent: Fim 19. Jan 2012 01:06
af zedro
JoiKulp skrifaði:Ég hef einu sinni gefist upp á sitja í tíma hjá honum og skráði mig úr honum eftir stuttan tíma.

Úff átti eitt epic moment í tíma hjá honum. Man ekki nákvæmlega hvað ég og félagi minn vorum að ræða en það var
eitthvað tengt honum Gísla og hann horfir beint á okkur með sínu sólheimaglotti og sagði hvað það nú var en undirstrikaði
einmitt það sem við höfðum verið að ræða um.

Ég sprakk :lol: ég gat ekki haldið í mér og grenjaði úr hlátri, þurfti að afsaka mig og fara fram á gang þar sem ég sat
og hló í allavega 5-10 mín. :woozy

Svo átti maður í vandræðum við að halda í sér eftir að maður mætti aftur inní stofu :-#

Minnir að ég hafi fallið í þeim áhuga #-o en hann var því miður ekki sá hjálpsamasti.

Re: Android App - Tækniskólinn v1.1 *UPDATE*

Sent: Fim 19. Jan 2012 09:49
af ManiO
Arnarr skrifaði:Virkilega flott forrit og allt og vill ekki vera með leiðindi en ég er í tækniskólanum og ég fæ alltaf sms frá innu ef kennari er veikur. Því sé ég ekki alveg tilgangin í þessu :roll:


Eins og bent var á í upphafsinnlegginu þá sér maður myndir af kennurunum í þessu forriti, e-ð sem SMS býður ekki uppá :)

Re: Android App - Tækniskólinn v1.1 *UPDATE*

Sent: Fim 19. Jan 2012 10:54
af Kobbmeister
Snilldar forrit =D>
Smáhugmynd, væri ekki sniðugt að gera þannig að þú getur sett inn kennara sem eru að kenna þér og þá kemur upp notification þegar einhver kennarinn þinn sé veikur?

Re: Android App - Tækniskólinn v1.1 *UPDATE*

Sent: Fim 19. Jan 2012 10:59
af dori
Frekar að þú gætir sett inn alla stundatöfluna þína og svo myndi forritið koma með notification ef kennari sem kennir þér í dag sé fjarverandi.

@OP: viltu ekki setja þetta á github?

Re: Android App - Tækniskólinn v1.1 *UPDATE*

Sent: Fim 19. Jan 2012 13:23
af Viktor
Feitur næsari þetta, hvað var build time? Ef þú hefur áhuga að smíða fleiri íslensk öpp mæli eg með því að stofna þráð og leyfa vökturum að koma með hugmyndir. Þeir klikka aldrei.