IPTV frá Vodafone um ADSL á Akureyri
Sent: Fös 06. Jan 2012 23:41
Hvernig er IPTV frá Vodafone um ADSL að virka á Akureyri og þá sérstaklega í Þorpinu? Ég er með IPTV frá Símanum núna og núna uppá síðkastið hefur myndin pixlast þónokkuð oft. En við erum að spá í að færa okkur yfir til Vodafone með heimasímann, internetið og sjónvarpið. Erum þegar með GSM þar. Endilega koma með reynslusögur og þá sérstaklega frá Akureyri og gott að fá reynslusögur frá aðilum sem búa í þorpinu þar í bæ og eru að nýta sér þessa þjónustu hjá Vodafone.