Síða 1 af 1

Tal Ljósleiðari

Sent: Fös 30. Des 2011 02:26
af Blitzkrieg
Sælir,
Þannig er mál með vexti að það var lagt ljósleiðari inní íbúðina mína fyrir um viku síðan og hann hefur aldrei virkað sem skildi síðan.
Fyrst náðu tölvurnar á heimilinu ekki að tengjast netinu en núna þegar þær eru allar tengdar þá er netið svo hægt að það er ekki einu sinni hægt að taka hraða próf á speedtest.net (ath. að netið er bara hægt á erlendum síðum).
Ég er oft og mörgum sinnum búinn að hringja niður í tal og það virðist vera einhver stilling sem þeir gera til að fá hraðann sem á að vera, en hraðinn dettur niður í ekki neitt klukkutíma síðar. Svo segja þeir alltaf að þeir ætli að láta tæknimenn athuga þetta og láta mig svo vita sem þeir svo aldrei gera. Já, ég er búinn að prófa að restarta bæði GR-boxinu og routernum og ég er tengdur wired og ekki wireless.
Hvað í óskupunum gæti ég mögulega gert til að fá þetta í lag?

Re: Tal Ljósleiðari

Sent: Fös 30. Des 2011 03:29
af SDM
örugglega kominn yfir download limitið fyrir mánuðinn, virkar þá bara að vera á svona síðum en facebook og leikir virka mjög illa.

Re: Tal Ljósleiðari

Sent: Fös 30. Des 2011 03:35
af Blitzkrieg
SDM skrifaði:örugglega kominn yfir download limitið fyrir mánuðinn, virkar þá bara að vera á svona síðum en facebook og leikir virka mjög illa.

Ég er búinn að downloada mjög litlu þar sem erlendi download hraðinn er mjög lítill og er með 120gb á mánuði :)

Re: Tal Ljósleiðari

Sent: Fös 30. Des 2011 09:41
af einarth
Sæll.

Ef það er fín hraði innanlands en lélegur utanlands - þá er ekkert sem þú getur gert. Það er í lagi með allan búnað frá þér inn til þjónustuveitu.

Tal þurfa að laga þetta.

Kv, Einar.

Re: Tal Ljósleiðari

Sent: Fös 30. Des 2011 09:47
af ponzer
Þú hefur að öllum líkindum fengið IP tölu sem hefur verið kominn í "capp" þetta þekkist hjá þeim :) Hringdu í þá og segðu þeim það :)

Getur séð þetta hérna http://notkun.hive.is/

Re: Tal Ljósleiðari

Sent: Fös 30. Des 2011 12:30
af Blitzkrieg
ponzer skrifaði:Þú hefur að öllum líkindum fengið IP tölu sem hefur verið kominn í "capp" þetta þekkist hjá þeim :) Hringdu í þá og segðu þeim það :)

Getur séð þetta hérna http://notkun.hive.is/

Prófaði það og netið er hratt eins og er, update-a ef það dettur út aftur