Síða 1 af 2

HUUUUUUUUGE Problem :=) hjálp væri VEL þegin

Sent: Þri 15. Jún 2004 22:07
af Suave
Ég er með alveg rosalegt vandamál sem er alveg að drepa mig.

Þannig er mál með vexti að ég er með:

Intel pentium 2.8ghz prescott örgjörva.
Geforce 4 64mb MX440 skákort.
2x 256 266DDR minni.
http://www.computer.is/vorur/4199 þetta móðurborð.
3 harða diska :D
CD rom og innbyggt ADSL módem og
Windows XP professional Corporated Edition.

Tölvan virkar alveg fínt á alla vegu nema þegar ég keyri eitthvað sem reynir pínu á hana eins og t.d leikinn
Warcraft 3 þá restartar hún sér eftir bara einhvern smá tíma (mestalagi klukkutíma) og þegar ég spila Counter-Strike leikinn sem er
aðeins léttari en Warcraft 3.. (vélin á nú að geta höndlað þetta easy! 2.8ghz og 512 minni) þá restartar hun sér eftir svona 3 tíma í mestalagi.
Hún hefur aldrei restartað sér þegar ég er að horfa á mynd eða skoða heimasíður eða eithvað alíka sem reynir ekkert á hana en strax
og ég byrja að gera eithvað restartar hún sér eftir smá stund og þetta er bara normal restart.

Ef einhver hefur hugmynd um hvað gæti verið að þá endilega segja mér það! :=)

Sent: Þri 15. Jún 2004 22:10
af Arnar
Hvernig PSU ertu með ?

Og hver er hitinn á örranum í load?

Sent: Þri 15. Jún 2004 22:20
af Suave
ég var að downloada PC Alert 4 og það sýnir CPU 59 gráður og system 32.. er ekki að gera neitt nema downloada og hlusta á lag.
og með powersupply'ið þá er það nýtt AC 230V

Sent: Þri 15. Jún 2004 22:23
af Arnar
Ég hefði nú sjálfur getað giskað á að það væri AC 230v..


Hvaða psu ertu með, týpu og allt það

Sent: Þri 15. Jún 2004 22:27
af Suave
var ég ekki að segja það? er PSU ekki powersupply? en það er bara einn miði þarna sem segir "AC 230V" =/

Sent: Þri 15. Jún 2004 22:37
af Suave
heyrðu fyrirgefðu ! það var bara einn miði á því og þar stóð AC 230V :P en ég kíkti á nótuna og þar stendur "spennugjafi F/PC ATX 300W P4"
:D

Sent: Þri 15. Jún 2004 22:46
af Arnar
prufaðu að taka alla harðadiskana og helst allt úr fyrir utan það allra helsta ( bara kippa rafmagnstengjunum úr ) og fara spila þetta aftur..

Getur verið að þetta psu sé of lítið.

Sent: Þri 15. Jún 2004 22:47
af axyne
láttu vélina keyra prime95 (torture test) og gáðu hvort hún er að restarta sér við það. notaðu google til að finna prime95

ef ekkert skeður eftir.. segjum 4-5 tíma þá geturðu útilokað hitavandamál.

þú ert hugsanlega með of lítið power supply. þarf þó ekki að vera. ekki láta plata þig í að kaupa eitthvað sem þú þarft ekkert svo.

Sent: Þri 15. Jún 2004 23:00
af Suave
þakka ykkur kærlega! var að ná í þetta prime95 og er að keyra það.. vonandi rétt! lætur þetta hitann á CPU hækka eða? þvi það er komid i 63

Sent: Þri 15. Jún 2004 23:11
af Snorrmund
Þetta reynir MJÖÖÖG! mikið á örgjörvan þannig að ef að tölvan restartar sér þegar hún er að keyra þetta þá er þetta hitavandamál

Sent: Þri 15. Jún 2004 23:11
af Manager1
Ef hitinn fer uppfyrir 80° skaltu hætta að keyra forritið, því þá fer örgjörvinn þinn að skemmast :)

Ætti samt ekki að hitna svo mikið...

Sent: Þri 15. Jún 2004 23:14
af Suave
heyrdu flott er.. hun restartadi sér bara nuna þegar ég var að keyra þetta en ætla að keyra þetta aftur bara til að vera pottó viss

Sent: Þri 15. Jún 2004 23:15
af gumol
Hver var hitinn á CPU þegar eða rétt áður en þú restartaðir?

Sent: Þri 15. Jún 2004 23:20
af Suave
checkadi ekki :D en hún er í fucking 65 CPU nuna.. mad.. og enntha að keyra.. buid svona 10 min

Sent: Þri 15. Jún 2004 23:22
af axyne
ef tölvan restarar sér í annað skiptið í prime testi. prufað þá einu sinni í viðbót með aðeins nauðsynlegasta vélbúnað tengdan. sleppa t.d 2 auka hörðum diskum.

Sent: Þri 15. Jún 2004 23:25
af gumol
Ertu ekki örugglega með smá kælikrem milli örrans og hetsinksins?

Sent: Þri 15. Jún 2004 23:27
af Suave
heyrdu það er komið á test 4 í þessu prime dæmi(hvert er held ég 5min) og hún er alveg að halda því.. bara stable í 65 gráðum.

og jú það er kælikrem, bara það sem var á viftunni þegar eg keypti þetta

Sent: Þri 15. Jún 2004 23:37
af Suave
en get ég ekki stillt þannig að hún slökkvi á sér t.d þegar hun er komin í 70 gráður eða eitthvað aðeins hærra en það er núna? if so.. HOW? :=)

Sent: Þri 15. Jún 2004 23:40
af elv
Ekki gera það...viftan er ekki nógu vel sett á eða loftið í kassanum þínum er of heit...verður að kæla þetta betur

Sent: Þri 15. Jún 2004 23:41
af axyne
getur stillt það í Bios.

ýtir á "del" rétt eftir þú kveikir á tölvunni.

Sent: Þri 15. Jún 2004 23:41
af MezzUp
getur prufað að fara í BIOS og hækka °C limitið sem að móðurborðið lætur tölvuna restart'a sér við, átt að geta haft það í a.m.k. 75°C

Sent: Þri 15. Jún 2004 23:48
af Suave
komið á test 10 og 66 gráður

Sent: Þri 15. Jún 2004 23:49
af skipio
Fáðu þér frekar almennilega kælingu eða athugaðu að lágmarki hvort það sé eitthvað hitakrem milli örgjörvans og kælisökkulsins. Er ekki erfitt og kælikrem er ekki dýrt.

Sent: Þri 15. Jún 2004 23:58
af Suave
ég var að kaupa þetta fyrir viku og lét þetta á sjálfur og sá að það var kælikrem og vá þetta er sko mál að láta viftu á örran ég þurfti að ýta svo fast til að láta þetta smella í að eg var dauðhræddur um að brjóta þetta! og ég er sterkur samt rétt nadi ég þessu og var svona 10 min að þvi !!! :)

Sent: Mið 16. Jún 2004 00:07
af axyne
er þetta retail kæliviftan sem þú ert að nota ? (kæliviftan sem fylgdi með örgjörfanum.)

kannski bara spurning um að skella sér á eina kassaviftu. þ.e.a.s ef þið ert ekki þegar með eina. innihald kassans ætti að vera frekar heitt miðan við þú ert með prescott eldavélahellu og 3 harðadiska.