Síða 1 af 2

Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 02:42
af hrannar1
væri flott ef það leinast einhverjir sénar hérna i tölvum sem geta bent mér á góðan keylogger

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 03:18
af worghal
vertu úti :uhh1

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 03:30
af hrannar1
vertu úti? er engin sem veit um neina vörn?

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 03:30
af Bjosep
hrannar1 skrifaði:væri flott ef það leinast einhverjir sénar hérna i tölvum sem geta bent mér á góðan keylogger


Ég held að það væri betra fyrir þig að þú og kærastan rædduð málin ykkar á milli frekar en að vera að koma fyrir einhverjum njósnabúnaði í tölvunni hennar. Traust er það mikilvægasta í sambandi og ef það er ekki til staðar er engum greiði gerður með því að vera að halda lífi í einhverju sem veldur ykkur báðum sársauka.

Reyndu að átta þig á því hvað er besta ákvörðunin í stöðunni. Ekki bara fyrir þig heldur fyrir ykkur bæði.

Njóttu hátíðanna og megi guð blessa þig.

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 03:30
af paze
Keylogger er ekki vörn ;)

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 03:34
af chaplin
hrannar1 skrifaði:vertu úti? er engin sem veit um neina vörn?

Njósnabúnaður = Vörn?

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 03:35
af hrannar1
hef verið að nota andramax keylogger í langan tíma hann er bara byrjaður að frjósa annað slagið og er er að gefast upp á honum.

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 03:37
af worghal
keylogger er spyware sem stelur passwordum til að hakka accounta...

ert þú ekki að miskilja eitthað ?

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 03:40
af hrannar1
nei þetta forrit tekur skjáskot og er hægt að loka á akveðnar síður og les lyklaborðið þetta er mjög góð vörn ef þið eruð með börn

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 03:46
af Magneto
mér finnst þetta samt frekar sick...

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 03:47
af chaplin
Afhverju ekki bara að útvega forriti sem lokar á "ljótar" síður í stað þess að njósna um börnin þín? Ég hef enga trú á því að þeir sem setja upp keylog á tölvurnar hjá börnunum sínum séu að gera það til að vernda þau..

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 03:50
af hrannar1
börn bera því miður enga ábyrgð og átta sig enganvegin á afleiðingum gjörða sinna.
Þau eru á ábyrgð foreldra sinna og foreldri sem hleypir barni á netið eftirlitslaust gæti þurft að sæta ábyrgð það er bara þannig
það er alltaf gott að vera vitur eftir á en ekki i öllum tilvikum

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 03:56
af worghal
það er lítið mál að redda sterkum eldvegg sem lokar á allt

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 04:01
af hrannar1
Þetta forrit sem heitir andramax keylogger þá gat ég séð síður og það sem var skrifað það kanski breytir ekki öllum það er helst að það loki síðum bara

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 04:05
af chaplin
Alveg sammála því, en þó þarft ekki að fylgjast með öllu með þau gera, hendir þú mic og upptökuvél á krakkana þegar þau fara úr húsi og fylgist með hverju skrefi? Það er basically það sem þú ert að spyrjast eftir en ég held að þú sért samt ekkert að leitast eftir því að njósna um börnin heldur frekar að vernda þau, og þá er öflugur eldveggur miklu betri lausn. ;)

Einnig ef þú ert hjá Símanum á Netvarinn að vera ágætis tól.

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 04:44
af hrannar1
ef það eru einhverjir sénar hérna í tölvum sem vita um góðan loggar megið endilega hendið honum á mig

Gleðileg jól

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 10:15
af lukkuláki
hrannar1 skrifaði:hef verið að nota andramax keylogger í langan tíma hann er bara byrjaður að frjósa annað slagið og er er að gefast upp á honum.


Þetta bendir mikið frekar til þess að það sé eitthvað að tölvunni heldur en forritinu
ef þetta forrit er gott því þá ekki að halda sig við það og lagfæra tölvuna þannig að það sé ekki að frjósa ?
Ekkert víst að það leysi neitt að ná sér í annað forrit.

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 19:30
af hrannar1
er eitthver hér með reynslu af refog keylogger?

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 19:57
af Einarr
Mynd

Nei segi svona, annars eru til betri leiðir en keylogger. Fáðu þér bara eldvegg í stað þess að fylgjast með hverju skrefi barna þinna, þá er þetta farið að líta út eins og yfirvöld í kína/norður-kóreu

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 20:01
af Gunnar
Ég ætla rétt svo að vona að enginn gefi þér upplýsingar um keylogger því það er rangt.
Ef þú vilt hleypa börnunum þínum í tölvu þá verðuru að setja reglur um tölvuna og loka á þá síður sem þú vilt ekki að þau komist inná.
Ef þau fylgja ekki þeim reglum þá tekurðu tölvuna af þeim.

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 20:03
af Plushy
Þetta er í annað skiptið sem hann kemur með þennan þráð, nett pirrandi orðið. Skiptir ENGU máli hversu mikið er reynt að hjálpa honum hann heldur áfram að bumpa og segja "engin tölvusnillingar/tölvuséníar/gúrúar/etc sem vita um góðann 'logger??".

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 20:37
af hrannar1
Hvernig get ég lokað eldvegginum á ákveðnar síður?

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Sun 25. Des 2011 22:02
af ASUStek
númer 3 er best fyrir þig
http://tinyurl.com/cwnh8cx

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Mán 26. Des 2011 19:38
af paze
Hm.. Ég varð ríkasti gaur í runescape þegar ég var 10 ára með því að nota keylogger :D

http://easytools.webbyen.dk/ var síðan sem ég bjó til og lokkaði fólk inn á, svo borgaði ég noobum til þess að auglýsa hana á nýjum köllum. Svaka business ethics fyrir 10 ára strák, haha.

Veit ekki hvort loggerinn sé enþá virkur á síðuni..Myndi allaveganna ekki downloada neinu :lol:

Re: Er einhver hér sem gæti bent mér á góðan keylogger

Sent: Mán 26. Des 2011 19:43
af gardar
Eru svona hardware keyloggerar ekki eina vitið?

http://www.keelog.com/