Síða 1 af 1
Hýsing hjá 1984 - Lágmark 1 ár?
Sent: Mið 14. Des 2011 18:30
af htdoc
Já góðan daginn. Mér langar að prófa hýsingu hjá 1984.is, og var að reyna að kaupa, langaði að varpa fram einni vangaveltu,
hvort ég skildi þetta alveg rétt að maður verður að kaupa hýsingu í lágmark 1 ár? Get ég ekki fengið að prófa í 1 eða 2 mánuði, verð ég virkilega að borga tæpan 10þ. kall fyrir að prófa hýsingu hjá þeim?
Einn áttavilltur..
Re: Hýsing hjá 1984 - Lágmark 1 ár?
Sent: Mið 14. Des 2011 18:53
af axyne
Held þú fáir skýrustu svörin með að senda línu á 1984.
Re: Hýsing hjá 1984 - Lágmark 1 ár?
Sent: Mið 14. Des 2011 19:10
af GuðjónR
Jú það er hægt:
http://1984.is/Vefhýsing
806 kr. mánuðurinn
9678 kr. árið
Re: Hýsing hjá 1984 - Lágmark 1 ár?
Sent: Mið 14. Des 2011 23:42
af axyne
það er nú samt ekki skýrt hjá þeim á vefsíðunni hvort hægt sé að kaupa einn mánuð í senn, eða verður að skuldbinda þig í ár.
Annars skrítið að ef þú borgar í 806 kr í 12 mánuði þá borgarðu 9.672 kr
En ef þú borgar fyrir heild ár þá borgarðu 9.678 kr
Sama á við hin verðin sem þeir gefa upp, munar alltaf nokkrum krónum.
Re: Hýsing hjá 1984 - Lágmark 1 ár?
Sent: Mið 14. Des 2011 23:49
af ponzer
Það er ódýrar að versla við þá í USD, hversu sorglegt er það fyrir okkur íslendinga
http://1984hosting.com/
Re: Hýsing hjá 1984 - Lágmark 1 ár?
Sent: Mið 14. Des 2011 23:50
af Gúrú
axyne skrifaði:Annars skrítið að ef þú borgar í 806 kr í 12 mánuði þá borgarðu 9.672 kr
En ef þú borgar fyrir heild ár þá borgarðu 9.678 kr
Sama á við hin verðin sem þeir gefa upp, munar alltaf nokkrum krónum.
Þeir ákveða verð sem að virðisaukaskatturinn fer ofan á, hann veldur því að þeir þurfa að námunda niður í mánaðarverðinu (til að fá ekki ljóta tölu)
en reikna auðvitað ekki sjálfir út frá námundaða verðinu þegar að þeir margfalda með 12.
Það er mismunandi hvort að verðið endar í hærra eða lægra verði eftir *12 og þú sérð þá að verðið var námundað upp í vefhýsing + .com lén.