Síða 1 af 1

Vandamál með Smoothwall!

Sent: Mán 05. Des 2011 20:53
af Krissinn
Ég get ekki tengst web interface-inu á access point-inum og heldur ekki á Wireless Extender-inum mínum. Grunar að Smoothwall-inn sé að blocka á þá, kemst á web interface-ið á Speedtouch-inum en hann sér um að koma DSL sambandi á og þar að leiðandi er hann hinu megin veð eldvegginn. Hvernig get ég lagað þetta?

Re: Vandamál með Smoothwall!

Sent: Þri 06. Des 2011 19:14
af Krissinn
Getur enginn hjálpað mér?

Re: Vandamál með Smoothwall!

Sent: Mið 07. Des 2011 21:44
af Krissinn
?

Re: Vandamál með Smoothwall!

Sent: Mið 07. Des 2011 22:15
af ponzer
hvar ertu með þessar græjur tengdar ? í routerinn eða á eitt af SM net'unum ?

Re: Vandamál með Smoothwall!

Sent: Mið 07. Des 2011 23:10
af Krissinn
ponzer skrifaði:hvar ertu með þessar græjur tengdar ? í routerinn eða á eitt af SM net'unum ?

Access point-inn er tengdur í Green interface-ið og hann sér um að deila internet sambandi á tölvurnar ásamt því að deila þráðlausu internet sambandi. Extenderinn tekur á móti internet sambandi frá Access point-inum. Kemst auðveldlega inná web interface-in á báðum þessum tækjum ef ég tengi framhjá Smoothwall-inum, semsagt beint í speedtouch-inn.

Re: Vandamál með Smoothwall!

Sent: Fim 08. Des 2011 08:22
af ponzer
krissi24 skrifaði:

Það er svolítið erfitt fyrir mig að átta mig á þessu án þess að vita hvernig þetta er sett upp hjá þér.. Komdu með smá lýsingu á setupinu og hvernig netin eru og IP tölurnar á netunum og hvaða interface þú settir upp.

Re: Vandamál með Smoothwall!

Sent: Fim 08. Des 2011 11:06
af Flinkur
sko ég lenti því þegar ég setti upp smoothwall 3 þa var annað netkotið mitt bilað. Annars er RED IN og GREEN lochal út. svo stillti ég DHCP inni smootwall með 192.168.1.1-254 / 255.255.255.0 og svo er green hjá mér tengt inni switch til að deila út. svo tengdi ég lika access point og stillti hann einnig með sama DHCP og setti ip á hann 192.168.1.245 og allt virkar flott, bæði smoothwall og access deila út ip.

ps. ég er á ljósleiðara svo í setup stillti ég bara RED - GREEN. Og RED tengist þá beint í sjálfa ljósleiðara boxið. og ef þú ert á ljósi frá gagnaveitunni, þá þarftu að restarta ljósaboxinu svo að það virki við nýa kortið ;)
Ef þú hefur eittvað meira að spyrja þá skal ég reyna hjálpa þér.

Re: Vandamál með Smoothwall!

Sent: Fim 05. Jan 2012 00:07
af Krissinn
ponzer skrifaði:
krissi24 skrifaði:
ponzer skrifaði:hvar ertu með þessar græjur tengdar ? í routerinn eða á eitt af SM net'unum ?

Access point-inn er tengdur í Green interface-ið og hann sér um að deila internet sambandi á tölvurnar ásamt því að deila þráðlausu internet sambandi. Extenderinn tekur á móti internet sambandi frá Access point-inum. Kemst auðveldlega inná web interface-in á báðum þessum tækjum ef ég tengi framhjá Smoothwall-inum, semsagt beint í speedtouch-inn.

Það er svolítið erfitt fyrir mig að átta mig á þessu án þess að vita hvernig þetta er sett upp hjá þér.. Komdu með smá lýsingu á setupinu og hvernig netin eru og IP tölurnar á netunum og hvaða interface þú settir upp.

IP tala frá Speedtouch í RED er: 192.168.1.254, IP tala frá GREEN er: 192.168.0.1, IP tala til að tengjast vefviðmótinu á Accesspint-inum er: 192.168.1.4, IP tala til að tengjast vefviðmótinu á Wifi Extender er: 192.168.1.253. Kemst ekki í vefviðmótin á þessum 2 tækjum nema að tengja framhjá Smoothwall, þannig að þetta er pottþétt smoothwall-inn sem er að blocka á vefviðmóts aðgang á þessum tækjum. Kemst samt inná vefviðmótið á Speedtouch-inum í gegnum smoothwall-inn :S Finnst þetta voða skrítið og óþægilegt. Læt fylgja með skýringamynd af heimanetinu hjá mér. Er með ADSL.

Mynd

Re: Vandamál með Smoothwall!

Sent: Fim 05. Jan 2012 01:22
af tdog
Sko, þú verður að slökkva á DHCP á SpeedTouchi-num og láta Smoothwallinn broadcasta DHCP á öðru subneti en 192.168.1.0.

Re: Vandamál með Smoothwall!

Sent: Fim 05. Jan 2012 09:32
af ponzer
OK glæsileg mynd :D Þú ert eiginlega kominn langleiðina með þetta. Það sem er að rugla þetta hjá þér er að tækin hjá þér eru með IP tölu á Speedtouch netinu sem gengur ekki og þú ert ekki með Speedtouchinn í DMZ/Birdge mode sem hann verður að vera í þessu setupi.

1. Byrjaðu á því að setja RED á dhcp
2. Farðu á web interfaceið á Speedtouchinum og settu DMZ (man ekki hvort það heitir DMZ eða Public internet address í interfaceinu) í gang á honum, þegar þú gerir það þá þarftu að velja hvaða vél verður þessi "DMZ" vél, veldu þá Smoothwallinn.
3. Settu svo upp dhcp server á Smoothwallinum ef þú ert ekki búinn að því og alls ekki hafa það með sama net á Speedtouchinn er með (192.168.1.x) getur haft það 10.0.0.100-200 t.d. þú þarft svo að renewa allar IP tölur á tækjunum þínum.

Það sem þú gerir í step 2 er að forwarda ALLRI traffík sem routerinn fær yfir á Smoothwallinn og í raun virkar Speedtouchinn bara eins og módem fyrir Smoothwallinn, þegar þú ert búinn að þessu þá ætti RED að fá IP tölu beint frá ISPanum þínum. Athugaðu að þú þarft líklega að restarta Smoothwallinum eftir að þú breytir RED í dhcp.

Þetta ætti að virka svona.

Re: Vandamál með Smoothwall!

Sent: Fim 05. Jan 2012 19:38
af Krissinn
ponzer skrifaði:OK glæsileg mynd :D Þú ert eiginlega kominn langleiðina með þetta. Það sem er að rugla þetta hjá þér er að tækin hjá þér eru með IP tölu á Speedtouch netinu sem gengur ekki og þú ert ekki með Speedtouchinn í DMZ/Birdge mode sem hann verður að vera í þessu setupi.

1. Byrjaðu á því að setja RED á dhcp
2. Farðu á web interfaceið á Speedtouchinum og settu DMZ (man ekki hvort það heitir DMZ eða Public internet address í interfaceinu) í gang á honum, þegar þú gerir það þá þarftu að velja hvaða vél verður þessi "DMZ" vél, veldu þá Smoothwallinn.
3. Settu svo upp dhcp server á Smoothwallinum ef þú ert ekki búinn að því og alls ekki hafa það með sama net á Speedtouchinn er með (192.168.1.x) getur haft það 10.0.0.100-200 t.d. þú þarft svo að renewa allar IP tölur á tækjunum þínum.

Það sem þú gerir í step 2 er að forwarda ALLRI traffík sem routerinn fær yfir á Smoothwallinn og í raun virkar Speedtouchinn bara eins og módem fyrir Smoothwallinn, þegar þú ert búinn að þessu þá ætti RED að fá IP tölu beint frá ISPanum þínum. Athugaðu að þú þarft líklega að restarta Smoothwallinum eftir að þú breytir RED í dhcp.

Þetta ætti að virka svona.

Hæ, heyrðu þetta fór allt í steik hjá mér þagar ég reyndi þetta áðan. var í 3 tíma að reyna að laga þetta en gafst upp! :P Er með þetta tengt framhjá smooothwall-inum núna svo ég komist á netið. Ég fór eftir þessu sem þú segir mér að gera hérna fyrir ofan en svo þegar ég er búinn að gera þetta DMZ í speedtouch-inum og fer svo inní smoothwall- vefviðmótið og ætla að breyta IP tölunni eins og þú talar um og ég ýti á save og eftir smá bið þá kemur bara vefþjónn fannst ekki og prófaði að endurræsa smoothwall-inn og speedtouch-inn og Accesspoint-inn ásamt því að renew-a á 2 tölvum en ekkert skeður, gerði þetta tvennt þónokkuð oft en án árangurs. Prófaði líka að reyna að bakka á byrjunarreit, tengdi framhjá smoothwall-inum og un-assignaði smoothwall-inn og reyndi þetta aftur en það er bara eins og smoothwall-inn vilji ekki tengjast, Ég er ekki með skjá fyrir smoothwall-inn. Það hefur eitthvað svaka mikið skeð er ég farinn að halda :O Endilega hjálpa mér! :)

Re: Vandamál með Smoothwall!

Sent: Fim 05. Jan 2012 22:26
af ponzer
Ertu örugglega með RED stillt á DHCP ?? Sérð þetta hérna Mynd þar sem static er valið skaltu velja dhcp og í dhcp hostname skalltu hafa eitthvað nafn á honum t.d router eða smoothwall..

Athugaðu að þú gætir þurft að tengja þig inn á bæði netin (Speedtouch og Smoothwall) bara beint með snúru svo þú komist inn á web interfacein á tækjunum á meðan þú ert að setja þetta allt upp.

Ég er sjálfur með þetta setup, Speedtouch router yfir í Smoothwall og ég hef aldrei þurft að snerta þetta eftir að ég setti þetta upp.

Re: Vandamál með Smoothwall!

Sent: Fös 06. Jan 2012 13:15
af Krissinn
ponzer skrifaði:Ertu örugglega með RED stillt á DHCP ?? Sérð þetta hérna Mynd þar sem static er valið skaltu velja dhcp og í dhcp hostname skalltu hafa eitthvað nafn á honum t.d router eða smoothwall..

Athugaðu að þú gætir þurft að tengja þig inn á bæði netin (Speedtouch og Smoothwall) bara beint með snúru svo þú komist inn á web interfacein á tækjunum á meðan þú ert að setja þetta allt upp.

Ég er sjálfur með þetta setup, Speedtouch router yfir í Smoothwall og ég hef aldrei þurft að snerta þetta eftir að ég setti þetta upp.

Það er á DHCP og er með nafn í hostname. DHCP er búið að vera frekar lengi á :P

Re: Vandamál með Smoothwall!

Sent: Lau 07. Jan 2012 08:41
af Krissinn
Setti smoothwall-inn upp aftur.

Fæ þetta svona:

Mynd

-------------------------------------------------------------------------------------------------------

Veit samt ekkert hvað ég á að gera hér:

Mynd

Var að reyna að herma eftir þér en það virðist ekki virka :( kemst ekki á internetið, Hvernig fer ég að þessu?

Re: Vandamál með Smoothwall!

Sent: Sun 08. Jan 2012 16:30
af ponzer
Ok þarna er greinilega DMZið að virka ;)

Ertu ekki örugglega með DHCP server í gangi á SW ? Ef ekki settu hann þá í gang og settu hann á annað net en 192.168.x.x. Settu bara 10.0.0.x til að prófa :)

Re: Vandamál með Smoothwall!

Sent: Sun 08. Jan 2012 20:25
af Krissinn
ponzer skrifaði:Ok þarna er greinilega DMZið að virka ;)

Ertu ekki örugglega með DHCP server í gangi á SW ? Ef ekki settu hann þá í gang og settu hann á annað net en 192.168.x.x. Settu bara 10.0.0.x til að prófa :)

En hvað með þetta dns, kemur það sjálfkrafa inn eða?

Re: Vandamál með Smoothwall!

Sent: Sun 08. Jan 2012 23:28
af ponzer
Settu bara 8.8.8.8 og 4.4.2.2 sem dns

Sent from my Nexus S using Tapatalk

Re: Vandamál með Smoothwall!

Sent: Mán 09. Jan 2012 00:03
af Krissinn
ponzer skrifaði:Settu bara 8.8.8.8 og 4.4.2.2 sem dns

Sent from my Nexus S using Tapatalk

En hvar ertu að meina að ég eigi að breyta um IP tölu? í Green eða Red?

Re: Vandamál með Smoothwall!

Sent: Mán 09. Jan 2012 09:31
af ponzer
krissi24 skrifaði:
ponzer skrifaði:Settu bara 8.8.8.8 og 4.4.2.2 sem dns

Sent from my Nexus S using Tapatalk

En hvar ertu að meina að ég eigi að breyta um IP tölu? í Green eða Red?

Þú verður að keyra/virkja DHCP serverinn í SW svo vélarnar þínar á Green netinu fái IP tölur og komist inn á netið..

Mynd

Re: Vandamál með Smoothwall!

Sent: Mán 09. Jan 2012 16:16
af Krissinn
Já okey, hermi ég þá bara eftir þér? :D

Re: Vandamál með Smoothwall!

Sent: Mán 09. Jan 2012 16:21
af dandri
Það ætti að virka fínt að nota þennan dns server, þetta er google dnsið.