Síða 1 af 1
Þráðlaust Heimatengi
Sent: Fim 10. Nóv 2011 16:55
af machinehead
Mig langar að fá mér auka Síma-myndlykil inn í hjónaherbergi' til mín en það er vandamál
þar sem routerinn er á neðri hæðinni ásamt hinum myndlyklinum. Þannig ég hafði samband
við Símann og þeir bentu mér á
þetta.
Hefur einhver hérna reynslu af svona búnaði eða getið þið mælt með einhverju öðru?
-MachineHead
Re: Þráðlaust Heimatengi
Sent: Fim 10. Nóv 2011 17:13
af wicket
Ég er með akkúrat þetta hjá mér fyrir aukamyndlykil.
Svínvirkar, hef held ég bara ekki einu sinni lent í vandræðum með þetta.
Re: Þráðlaust Heimatengi
Sent: Fim 10. Nóv 2011 17:20
af machinehead
Frábært, en hvernig er það, geturu einnig tengt fartölvuna þráðlaust við þetta?
wicket skrifaði:Ég er með akkúrat þetta hjá mér fyrir aukamyndlykil.
Svínvirkar, hef held ég bara ekki einu sinni lent í vandræðum með þetta.
Re: Þráðlaust Heimatengi
Sent: Fim 10. Nóv 2011 17:25
af wicket
Já en þá þarf maður bara að passa að hitt eintakið sé tengt við LAN port á routernum sem er fyrir internet en ekki sjónvarp.
Re: Þráðlaust Heimatengi
Sent: Fim 10. Nóv 2011 17:59
af tdog
Þetta er rusl... Láttu bara leggja streng inn í herbergi til þín.
Re: Þráðlaust Heimatengi
Sent: Fim 10. Nóv 2011 18:33
af Some0ne
Þráðlaust og svona Devolo í gegnum rafmagn er pakki sem að ég myndi ALDREI nota í að flytja sjónvarpsstraum.. iptv þolir nánast ekkert pakkatap án þess að koma með eitthvað leiðinda hikst.. ég myndi hiklaust reyna að draga kapal eða fá mann til að gera það, kostar örugglega minna en að kaupa 2 svona senda.
Re: Þráðlaust Heimatengi
Sent: Fim 10. Nóv 2011 19:26
af Viktor
Myndi frekar reyna að láta leggja/draga kapal.
En hér er ódýrari extender:
http://budin.is/router-ralausir/4902230 ... 51471.html
Re: Þráðlaust Heimatengi
Sent: Fim 10. Nóv 2011 19:29
af wicket
Þetta virkar nú bara mjög vel hérna heima hjá mér.
Ekki séns að draga ethernet á milli þessara staða hjá mér nema með einhverju algjöru veseni og tilheyrandi kostnaði.
Re: Þráðlaust Heimatengi
Sent: Fim 10. Nóv 2011 19:38
af valdij
Það er svipað vandamál hjá mér, það var verið að leggja ljósleiðara í íbúðina og ég vildi hafa sjónvarpið í svefnherbergi tengt við hann en eftir mikið maus hjá rafvirkjum þá var komist að því að það var einfaldlega ekki hægt. Þeir bentu mér því á svona internet gegnum rafmagn og ég endaði með að kaupa
http://tolvutek.is/vara/trendnet-tpl-40 ... r-einingarÞetta alveg svínvirkar, ekki vottur af pakkatapi eða neinu veseni hingað til.
Re: Þráðlaust Heimatengi
Sent: Fim 10. Nóv 2011 19:56
af berteh
Hefur einhver testað þessa gæja frá símanum ég er með sjónvarpið á stað sem er ekki hægt að draga streng að nema leggja yfir loft (sem ég vill alls ekki gera) Það er ekki nóg að kaupa bara svona extender þar sem þetta þarf væntanlega að vera par því iptv er bara aðgengilegt á porti 4
Re: Þráðlaust Heimatengi
Sent: Fös 11. Nóv 2011 10:54
af machinehead
Það er reyndar tengi núþegar, en það er bara venjulegt símatengi og myndi
sjálfsagt ekki virka fyrir net. Nema ég væri með router þar en það gengur ekki.
Re: Þráðlaust Heimatengi
Sent: Fös 11. Nóv 2011 10:56
af machinehead
Einmitt sem ég var að pæla, ég er núþegar með iptv á porti 4, þannig hvert færi extenderinn?
berteh skrifaði:Það er ekki nóg að kaupa bara svona extender þar sem þetta þarf væntanlega að vera par því iptv er bara aðgengilegt á porti 4
Re: Þráðlaust Heimatengi
Sent: Fös 11. Nóv 2011 10:58
af tdog
Ef það liggur cat strengur í símatengilinn þá er hægt að nota hann. Eða draga í rörið. Þessi 24þúsundkall (sem heimatengin kosta) eru c.a 5 tímar í vinnu hjá fagmanni við netlagnir.
Re: Þráðlaust Heimatengi
Sent: Fös 11. Nóv 2011 10:59
af dori
machinehead skrifaði:Það er reyndar tengi núþegar, en það er bara venjulegt símatengi og myndi
sjálfsagt ekki virka fyrir net. Nema ég væri með router þar en það gengur ekki.
Hefurðu skoðað það hvort það sé hægt að draga cat í staðin fyrir símasnúruna?
Re: Þráðlaust Heimatengi
Sent: Fös 11. Nóv 2011 11:05
af machinehead
Nei, það er fyrir utan mína þekkingu.
EDIT: Ég man reyndar eftir því að það gaur frá
símanum um daginn og var eitthvað að vesenast hérna.
Hann talaði um að ég gæti í rauninni sett routerinn inn í rafmagnstöfluna
og tengt þannig að öll símatengin í húsinu væri nettengi.
dori skrifaði:machinehead skrifaði:Það er reyndar tengi núþegar, en það er bara venjulegt símatengi og myndi
sjálfsagt ekki virka fyrir net. Nema ég væri með router þar en það gengur ekki.
Hefurðu skoðað það hvort það sé hægt að draga cat í staðin fyrir símasnúruna?
Re: Þráðlaust Heimatengi
Sent: Fös 11. Nóv 2011 11:32
af tdog
Það er einstaklega sniðugt að gera það. Og í rauninni ættir þú að gera það.
Re: Þráðlaust Heimatengi
Sent: Fös 11. Nóv 2011 11:39
af machinehead
Það væri kannski gáfulegast, en hvernig fer ég þá að því að tengja 2 iptv í port 4?
tdog skrifaði:Það er einstaklega sniðugt að gera það. Og í rauninni ættir þú að gera það.
Re: Þráðlaust Heimatengi
Sent: Fös 11. Nóv 2011 11:59
af wicket
Síminn breytir porti 3 á routernum þannig að það sé líka fyrir TV.
Re: Þráðlaust Heimatengi
Sent: Fös 11. Nóv 2011 12:06
af tdog
símamaðurinn sem kemur með myndlykilinn til þín gerir það fyrir þig.