Síða 1 af 1

Búa til þráðlaust net frá netsnúru

Sent: Þri 08. Nóv 2011 23:45
af gunnarasgeir
Ég er með netsnúru sem er tengd inná netkerfi þar sem starfsfólk plöggar snúrunni í tölvuna sína til að komast á netið í vinnunni hjá mér.
Ég myndi vilja geta tengt þessa snúru í wifi sendi og búið þannig til þráðlaust net þar sem það er ekki til staðar á þessum stað í vinnunni.
Ég er búinn að skoða Apple Airport Express: http://www.epli.is/aukahlutir/airport/a ... ion-n.html
Og þetta myndi gera það sem ég vill en mér finnst þetta frekar dýrt og var að spá hvort það væri til einhver ódýrari græja en þetta.
Það er nauðsinlegt að það sé hægt að stilla græjuna þannig að hver sem er geti ekki tengst nema með lykilorði. Þannig þetta sé bara eins og venjulegt þráðlaust net nema með passwordi.

Einhver með töfralausnina handa mér?

Re: Búa til þráðlaust net frá netsnúru

Sent: Mið 09. Nóv 2011 00:30
af Klemmi
Finna þér ódýran Access Point, s.s:
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... bf6dfea350