Síða 1 af 1

Tölvan slekkur alltaf á sér

Sent: Mán 17. Okt 2011 01:09
af appel
Alltaf þegar ég fer frá tölvunni i lengri tima, t.d. 6-8 klst, þá slokknar á henni.

Þetta hefur aldrei gerst áður, en ég hef verið með sömu uppsetningu í 2-3 ár núna og aldrei lent í þessu.

Windows 7.

Ideas? Hvernig er best að analyza þetta.

Re: Tölvan slekkur alltaf á sér

Sent: Mán 17. Okt 2011 01:12
af worghal
hvernig er hitinn ?
ný búinn að rikhreynsa ?

Re: Tölvan slekkur alltaf á sér

Sent: Mán 17. Okt 2011 01:26
af AntiTrust
Skoða Event logga. Sjá hvað er að gerast í system/applications loggum rétt fyrir shutdown.

Re: Tölvan slekkur alltaf á sér

Sent: Mán 17. Okt 2011 02:05
af appel
Nokkrum sinnum sé ég "The VSS service is shutting down due to idle timeout. " áður en tölvan slekkur á sér.

Vélin keyrir alveg stöðug, og slekkur aldrei á sér þegar hún er í notkun. Bara ef ég fer frá henni í einhvern langan tíma þá slekkur hún á sér. Sennilega ekki ryk.

Ég sé að hún slökkti á sér kl þetta: "The previous system shutdown at 07:42:16 on ‎16.‎10.‎2011 was unexpected."

En finn ekkert event á þessum tíma.

Re: Tölvan slekkur alltaf á sér

Sent: Mán 17. Okt 2011 02:09
af Black
sko kannski full svona asnalegt svar en má reyna.. það hefur ekki óvart dottið í power saving stillingu tölvan hjá þér, ég hef lent í því uppúr þurru að hún fór að slökkva á sér þegar ég var frá henni, í einhvern tíma og þá var það einfaldlega power options í control panel.. tjekkaðu allavega á því :o

Re: Tölvan slekkur alltaf á sér

Sent: Mán 17. Okt 2011 02:12
af appel
Black skrifaði:sko kannski full svona asnalegt svar en má reyna.. það hefur ekki óvart dottið í power saving stillingu tölvan hjá þér, ég hef lent í því uppúr þurru að hún fór að slökkva á sér þegar ég var frá henni, í einhvern tíma og þá var það einfaldlega power options í control panel.. tjekkaðu allavega á því :o

Hef þó ekki breytt þessu.

En þetta er í "balanced". Tölvan fer í "sleep". Þetta hefur alltaf verið þannig. Allavega, sé ekkert um að tölvan eigi að slökkva á sér, auk þess myndi ekki koma villuboð um það þegar ég ræsi tölvuna að hún hafi slokknað á sér óvænt.

Re: Tölvan slekkur alltaf á sér

Sent: Mán 17. Okt 2011 11:07
af mundivalur
Það verður að breyta power plan-i úr bal. í high perf. það er einhver galli í Balanced ,virkar þannig að td.slokknar á skjánum en tölvan virðist vera í gangi og eina sem virkar er restart eða off,svo eru líka random shut down eða frekar þegar ekki er verið að nota tölvuna í einhvern tíma(vonandi skilst þetta :D )

Re: Tölvan slekkur alltaf á sér

Sent: Mán 17. Okt 2011 12:05
af AntiTrust
appel skrifaði:The VSS service is shutting down due to idle timeout.
..
Ég sé að hún slökkti á sér kl þetta: "The previous system shutdown at 07:42:16 on ‎16.‎10.‎2011 was unexpected."



VSS service notification er bara info ticket, ekkert athugavert við það. Hvað varðar unexpected shutdown skilaboðin gefur það til kynna BSOD. Hvað segir minidump mappan? (%windir%\Minidump)

Re: Tölvan slekkur alltaf á sér

Sent: Mán 17. Okt 2011 12:37
af mundivalur

Re: Tölvan slekkur alltaf á sér

Sent: Mán 17. Okt 2011 20:19
af appel
Ekkert minidump fannst. :/

Re: Tölvan slekkur alltaf á sér

Sent: Sun 23. Okt 2011 23:43
af krukkur_dog
hitavandamál?
Eitthvað sched task að fara í gang (defragment , virus scann)?
keyrðu mem test.
ath með BIOS uppfærslu.
svissa um skjákort ef þú hefur tök á því.
uppfæra drivera.

Re: Tölvan slekkur alltaf á sér

Sent: Mán 24. Okt 2011 00:04
af appel
Er að prófa að slökkva á hibernation núna.

Re: Tölvan slekkur alltaf á sér

Sent: Mán 24. Okt 2011 15:53
af appel
Lagaðist núna. Eftir að ég slökkti á "suspend after 2 hours".