Síða 1 af 1

Næ ekki að tengjast netinu í Xp

Sent: Mán 10. Okt 2011 23:52
af efukt1
Ég var að setja upp þennan pakka upp og ég fæ ekki netið til að virka. Hafiði eitthverja hugmynd hvað gæti virkað?

Svo annað þá fyllir dektopinn ekki allan skjáinn þótt ég sé með upplausnina í hæðsta.. tók mynd af þessu svo þið fattið hvað ég meina http://myndahysing.net/upload/211318290715.jpg

Re: Næ ekki að tengjast netinu í Xp

Sent: Mán 10. Okt 2011 23:58
af Bjosep
1. Þú ert ekki búinn að setja upp reklana fyrir netkortið?
Það myndi allavega spara öllum sporin ef þú segðir HVAÐ þú ert búinn að gera til að fá þetta til að virka.
Hitt er annað mál að þú ert með ólöglegan hugbúnað þannig að ég veit ekki hvort það má hjálpa þér.

2. Hvernig skjákort ertu með? Hvernig ertu að tengja milli skjákorts og skjás?

Re: Næ ekki að tengjast netinu í Xp

Sent: Þri 11. Okt 2011 00:16
af efukt1
1. Reklana?
Ég las á síðu að prófa slökkva/restarta DHCP Client það breytti allaveg engu

2. Er með þetta: http://kisildalur.is/?p=2&id=1610 held að ég sé að nota DVi-D snúru

Re: Næ ekki að tengjast netinu í Xp

Sent: Þri 11. Okt 2011 00:39
af Bjosep
1. Rekill = Driver

Ég er að velta því fyrir mér hvort vandamál þitt felist í því að þú sért ekki búinn að setja upp nauðsynlega rekla. Bæði fyrir skjákortið og netkortið og restina af hinu draslinu.

Það er allavega einfaldasta skýringin svona í fljótu bragði þar sem þú hefur ekki gefið neinar nánari lýsingar á því hvað þú ert búinn að gera eftir að þú settir upp stýrikerfið.

Sértu hinsvegar búinn að setja upp alla rekla þá er vandamálið orðið fjörugra.

Auk þess gæti vel verið að þetta væri bara DRASL eintak af xp. Þú færð einu sinni það sem þú borgar (ekki) fyrir :-"

Re: Næ ekki að tengjast netinu í Xp

Sent: Þri 11. Okt 2011 00:49
af zedro
Piratebay User skrifaði:falafokz at 2011-09-23 11:33 CET:
lan driver and audio drivers are not present. i cant connect to internet and my system has no audio.

ROFL :sleezyjoe
Enjá enga hjálp héðan með ólöglegt kerfi O:)

*Lok lok og læs*