Síða 1 af 1
Lélegt connection (lagg) í leikjum!
Sent: Fim 06. Okt 2011 22:09
af Magneto
Sælir,
er að velta því fyrir mér afhverju ég er með svona lélegt connection (ping) eða að lagga þegar ég spila tölvuleiki á netinu...
ég er hjá Hringdu með ljósleiðara, 150GB á mánuði, og ég er með CAT5e netsnúru tengda fá rádernum í tölvuna í herberginu mínu.
getur einhver sagt mér afhverju þetta er svona?
Re: Lélegt connection (lagg) í leikjum!
Sent: Fim 06. Okt 2011 22:20
af GuðjónR
Þetta er eitthvað sem verður komið í lag eftir 2-3 vikur segja þeir.
Eitthvað með ljósleiðarann til evrópu að gera.
Re: Lélegt connection (lagg) í leikjum!
Sent: Fim 06. Okt 2011 22:30
af blackanese
Það eru komnar 2 vikur síðan mér var sagt að það væri 2 vikur í að þetta væri lagað
Re: Lélegt connection (lagg) í leikjum!
Sent: Fim 06. Okt 2011 22:49
af GuðjónR
blackanese skrifaði:Það eru komnar 2 vikur síðan mér var sagt að það væri 2 vikur í að þetta væri lagað
Ég fékk þessi svör í gær þegar ég spurðist fyrir um þetta.
Sel það ekki dýrara en ég keypti það
Re: Lélegt connection (lagg) í leikjum!
Sent: Þri 11. Okt 2011 16:41
af ponzer
Þetta er vegnaþess að þeir senda alla traffíkina sína til US og þaðan fer hún til evrópu sem gerir þetta mjög langa leið í stað þess að senda þetta bara beint yfir stenginn til evrópu.. Allveg glatað hjá þeim!!!!
Re: Lélegt connection (lagg) í leikjum!
Sent: Þri 11. Okt 2011 19:07
af depill
Sælir
Langt síðan aður hefur loggað sig inná Vaktina, einfaldlega vegna þess að það hefur verið mjög mikið að gera. Já það er satt Evrópu umferð hjá okkur er ekki nægilega góð eins og er. Svo ég kannski bara retracei upphafið af því. Við förum sem sagt af stað í Janúar með provider frá London sem við bjuggumst við að vera hjá í einhvern tíma. Síðan í Ágúst ákváðum við fara í markaðsátak með ljósleiðarann, þetta vissum við og höfðum pantað okkur annað samband til US í millitíðinni.
Þegar við svo sprengdum bæði samböndin var auðveldara og ódýrara fyrir okkur að uppfæra US sambandið við reyndum að as prependa umferðinni eins og við gátum yfir US linkinn þannig við myndum samt ekki missa alla umferðina yfir. Hins vegar var það þannig að í kringum 20. Sept var ástandið orðið ósættanlegt og við hreinlega tókum þá ákvörðun að slökkva á EU linknum og beina allri umferðinni yfir US linkinn á meðan sambandið í EU væri stækkað og lagað. Í telco heiminum tekur þetta mjög langan tíma því miður. Við gátum ekki stækkað eldra samband og urðum þess vegna að breyta um provider úti.
Samkvæmt nýjustu tölum á sambandið að vera detta inn núna 20. September næst komandi ( það er dagsetningin sem ég fæ ). Ég vona að það standist, þetta er sami provider og við notum í Bandaríkjunum TATA, sem er Tier-1 provider. Með því að tengjast sama aðila viljum við ennfremur meina að það sé auðveldara fyrir okkur að tryggja það að US ( og nærliggjandi umferð ) fari til US og öfugt.
Ástandið er ekki viðunandni eins og er með "lagg" í leikjum til EU, við vitum af því, enn erum líka að vinna að því að laga það.
Re: Lélegt connection (lagg) í leikjum!
Sent: Sun 23. Okt 2011 20:09
af Treebeard
jæja, 23 október og netið er ennþá hægt, hvernig er staðan depill? orðið alveg vel þreytt, langar að spila eitthvað ánþess að lagga í döðlur
Re: Lélegt connection (lagg) í leikjum!
Sent: Fös 04. Nóv 2011 19:41
af Nitruz
Hvað er að frétta í þessu? Hef kannski áhuga að skipta yfir í Hríngdu.
En ekki fyrr en þetta er komið í lag. Gætu einhverjir með ljósleiðara hjá þeim postað nokkur pingtest.net frá UK og Þýskaland t.d.
Er binditími og eða riftunargjald hjá þeim? thx
Re: Lélegt connection (lagg) í leikjum!
Sent: Fös 04. Nóv 2011 19:47
af Magneto
veit bara að þetta er orðið mun betra en þetta var fyrir nokkrum vikum hjá mér
Re: Lélegt connection (lagg) í leikjum!
Sent: Fös 04. Nóv 2011 19:50
af Nitruz
Magneto skrifaði:veit bara að þetta er orðið mun betra en þetta var fyrir nokkrum vikum hjá mér
Ekki væriru til í að athuga ping hjá þér hjá pingtest.net á evrópskum server?
Re: Lélegt connection (lagg) í leikjum!
Sent: Fös 04. Nóv 2011 21:53
af beatmaster
Re: Lélegt connection (lagg) í leikjum!
Sent: Fös 04. Nóv 2011 22:12
af Nitruz
Þakka þér fyrir það.