Síða 1 af 1

Windows Vista Ultimate crash

Sent: Fim 01. Sep 2011 10:32
af Krissinn
Ég er með tölvu sem er með Windows Vista Ultimate 64-bit sem crash-aði og núna næ ég ekki að formata hana því að eftir smá eftir að ég hef kveikt á tölvunni þá hættir lyklaborðið að virka, er búinn að prófa 2 lyklaborð og öll usb tengi og setti breytistykki á milli til að tengja í Ps/2 en ekkert virkar. Og ég næ aldrei að ýta á takka á lyklaborðinu til að fá Windows setup bláa skjáinn.

Re: Windows Vista Ultimate crash

Sent: Fim 01. Sep 2011 11:15
af sxf
krissi24 skrifaði:breytistykki.

Vandamálið þitt... þarft að hafa ps/2 lyklaborð.

Re: Windows Vista Ultimate crash

Sent: Fim 01. Sep 2011 12:37
af angelic0-
nema hann sé með USB keyboard support kveikt í BIOS væntanlega, kemstu ekki inn í BIOS til að kveikja á því :?:

Re: Windows Vista Ultimate crash

Sent: Fim 01. Sep 2011 19:43
af Krissinn
angelic0- skrifaði:nema hann sé með USB keyboard support kveikt í BIOS væntanlega, kemstu ekki inn í BIOS til að kveikja á því :?:


Jú en ég fór í Fjölsmiðjuna og fékk mér ps/2 lyklaborð og það virkar núna afþví að ég heyri svona sound ef ég ýti á takka en ég get ekki boot-að af CD disknum.

Re: Windows Vista Ultimate crash

Sent: Fim 01. Sep 2011 20:00
af Krissinn
krissi24 skrifaði:
angelic0- skrifaði:nema hann sé með USB keyboard support kveikt í BIOS væntanlega, kemstu ekki inn í BIOS til að kveikja á því :?:


Jú en ég fór í Fjölsmiðjuna og fékk mér ps/2 lyklaborð og það virkar núna afþví að ég heyri svona sound ef ég ýti á takka en ég get ekki boot-að af CD disknum.


Náði þessi en þegar setup screen-ið er búið að vera svona 2 min þá bluescreen-ar hún, hvað er að? Þetta er Gigabyte turn tölva.