Síða 1 af 1
Hvaða Kerfi - Ráðleggingar óskast
Sent: Þri 23. Ágú 2011 10:28
af C2H5OH
Ég var að verða mér út um gamla tölvu, (Pentium 4 @1,79 700 og eitthvað í ram)
Mig langaði að koma mér upp ftp server og kannski geta líka sett upp heimasíður sem ég er að leika mér með.
Og þetta á allt að vera remote controlled, þar sem ég ætla ekki að vera með neitt lyklaborð,mús né skjá.
Þar sem ég er enginn linux meistari langaði mig að forvitnast,
Hvaða kerfi mæliði með, sem er ekkert allt of flókið í uppsetningu?
Re: Hvaða Kerfi - Ráðleggingar óskast
Sent: Þri 23. Ágú 2011 10:39
af MatroX
CentOS
ég hef hingað til haldið mig við það á mínum serverum oftast án KDE eða GNOME en þú getur alveg fengið CentOS með þessu settu upp.
Re: Hvaða Kerfi - Ráðleggingar óskast
Sent: Þri 23. Ágú 2011 11:20
af Marmarinn
Myndi mæla með Ubuntu, finnst það alveg vel stabílt.
Velur bara svona LAMP uppsetningu,
http://en.wikipedia.org/wiki/LAMP_(software_bundle)
Svo hef ég líka notað Webmin pakkann til að stjórna hlutum remotely. Mjög þægilegur.
Re: Hvaða Kerfi - Ráðleggingar óskast
Sent: Þri 23. Ágú 2011 11:25
af Blues-
Ég myndi setja upp Debian ..
Spurning er hvort þú vilt læra á deb (dpkg) eða rpm pakkastjórann.
td. Debian, ubuntu nota deb pakkastjórann og Fedora, CentOs nota RPM.
CentOs er miklu meira enterprise kerfi þar sem að nýrri útgáfur af hugbúnaði eru lengur að koma inn ..
Debian distro-ið er reyndar líka ansi lengi að taka inn nýjann hugbúnað, (þ.e.a.s. nýjar útgáfur af forritunum) en þú getur
opnað fyrir "unstable" repositories ef þú vilt fá nýrri útgáfur og það er mjög stutt síðan að glæný Stable útgáfa kom út.
Einnig er til mjög mikið af góðum leiðbeiningum fyrir debian ..og eins td.
http://www.debianadmin.com/
Re: Hvaða Kerfi - Ráðleggingar óskast
Sent: Þri 23. Ágú 2011 12:14
af coldcut
Hann biður um ráð og fær þrjár mismunandi ráðleggingar
Þar sem þú kannt lítið á þetta og að þetta er ekkert heavy dæmi sem þú ert að setja upp þá væri örugglega einfaldast að setja bara upp Ubuntu-server. Einfalt í uppsetningu og á að virka án vandræða.
Ef þú værir hins vegar með heavy dæmi að þá ættirðu að fara í t.d. CentOS eða Debian.
Re: Hvaða Kerfi - Ráðleggingar óskast
Sent: Þri 23. Ágú 2011 14:57
af C2H5OH
tad er bara frabaert ad fa skodanir margra, a mismunadi kerfum:)
takka fyrir svorin ef, einhver hefur einhverja reynslu a odrum kerfum ma hann alveg segja:)
tar sem eg er kominn i nokkra daga fri milli vinnu og skola ta held eg ad eg prufi bara allar 3 og se hvad mer likar best
Re: Hvaða Kerfi - Ráðleggingar óskast
Sent: Þri 23. Ágú 2011 17:07
af bjarkih
ef þú ert að byrja þá er ubuntu sennilega skássti kosturinn. mikil hjálp á netinu og endalaust af (misgóðum) upplýsingum.
Re: Hvaða Kerfi - Ráðleggingar óskast
Sent: Þri 23. Ágú 2011 17:57
af x le fr
Jamm, +1 á Ubuntu fyrir byrjendur. Með semingi ... Debian er eiginlega betri kostur.
Ég nota sjálfur Ubuntu mikið í vinnuumhverfi. Það hefur dugað ofsa vel, og manni tekst yfirleitt að redda sér. Það eru samt mjög mikilvægir hlutir sem eru bara dead broken í Ubuntu, t.d. RAID support, sem er möst fyrir server að mínu mati.
Prófaðu Debian fyrst. Eiginlega eini stóri gallinn við Debian er installerinn, hann er svolítið þungur af stað. Ef þú hættir að nenna Debian áður en það er orðið uppsett, skelltu þá Ubuntu á vélina.
Re: Hvaða Kerfi - Ráðleggingar óskast
Sent: Mið 24. Ágú 2011 20:42
af marijuana
x le fr skrifaði:Jamm, +1 á Ubuntu fyrir byrjendur. Með semingi ... Debian er eiginlega betri kostur.
Ég nota sjálfur Ubuntu mikið í vinnuumhverfi. Það hefur dugað ofsa vel, og manni tekst yfirleitt að redda sér. Það eru samt mjög mikilvægir hlutir sem eru bara dead broken í Ubuntu, t.d. RAID support, sem er möst fyrir server að mínu mati.
Prófaðu Debian fyrst. Eiginlega eini stóri gallinn við Debian er installerinn, hann er svolítið þungur af stað. Ef þú hættir að nenna Debian áður en það er orðið uppsett, skelltu þá Ubuntu á vélina.
er þá ekki málið að skella inn Debian Repos á Ubuntu kerfið ?
EDIT:
Misskildi þig allvakalega, fannst eins og þú værir að tala um broken Packages