Síða 1 af 1

Hvernig er best að framlengja þráðlaust net ?

Sent: Fim 28. Júl 2011 12:50
af BirkirEl
Sælir, þannig standa mál að routerinn heima er í kjallaranum og hann nær ekki yfir alla efri hæðina.

Ég þarf einhvernvegin að framlengja þráðlausa netið á efri hæðina.

http://www.tolvutek.is/product_info.php?cPath=164_177&products_id=24266

er þetta ekki auðveldasta lausnin ? á þetta ekki að vera plug and play bara ?

er að leita af auðveldri og þæginlegri lausn á þessu.

Re: Hvernig er best að framlengja þráðlaust net ?

Sent: Fim 28. Júl 2011 13:13
af lukkuláki
Ég fékk mér svona græju og hún er fín http://www.computer.is/vorur/7548/

Re: Hvernig er best að framlengja þráðlaust net ?

Sent: Fim 28. Júl 2011 13:40
af Sirduek
Fer eiginlega eftir því hvernig aðgengi þú hefur upp á efri hæðina. Ef að það er vesen að koma Cat5 streng (Lan kapli) þangað þá er Trendnet TPL-210AP þráðlaus WiFi54 g sendir örugglega frekar málið en er þetta ekki bara eitt stykki? vantar þá væntanlega http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=24265 svona græju líka til að henda netinu inn í rafmagntegnið og wifi græjan pickar það svo upp og sendir áfram.

Re: Hvernig er best að framlengja þráðlaust net ?

Sent: Fim 28. Júl 2011 14:46
af division
Sirduek skrifaði:Fer eiginlega eftir því hvernig aðgengi þú hefur upp á efri hæðina. Ef að það er vesen að koma Cat5 streng (Lan kapli) þangað þá er Trendnet TPL-210AP þráðlaus WiFi54 g sendir örugglega frekar málið en er þetta ekki bara eitt stykki? vantar þá væntanlega http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=24265 svona græju líka til að henda netinu inn í rafmagntegnið og wifi græjan pickar það svo upp og sendir áfram.


Þetta er sniðugasta leiðinn, hún er aðeins dýrari. Ég myndi frekar leggja CAT5 kapal ef þú getur, þar spararu þig alveg 8þús mínus kapalskostnað.

Re: Hvernig er best að framlengja þráðlaust net ?

Sent: Fim 28. Júl 2011 14:49
af BirkirEl
Þetta er sniðugasta leiðinn, hún er aðeins dýrari. Ég myndi frekar leggja CAT5 kapal ef þú getur, þar spararu þig alveg 8þús mínus kapalskostnað.[/quote]

það er reyndar netkapall upp fyrir, hann er í notkun eins og er en verður það ekki lengi.

þá er spurning um einhverja græju sem auðvelt er að setja upp, einhver meðmæli ?

Re: Hvernig er best að framlengja þráðlaust net ?

Sent: Fim 28. Júl 2011 14:55
af division
http://tl.is/vara/20317

Hef sett upp svona, þetta er plug and play, eina sem þú þarf að breyta er nafnið og lykilorðið. Þegar þú reynir að tengjast honum með Windows 7 þá kemur hún meira að segja með Wizard upp fyrir þig og spyr þig um allar upplýsingarnar. Það er mjög einfalt og hentugt, mæli eindregið með þessum.

Re: Hvernig er best að framlengja þráðlaust net ?

Sent: Fim 28. Júl 2011 15:50
af andribolla

Re: Hvernig er best að framlengja þráðlaust net ?

Sent: Fim 28. Júl 2011 15:52
af division


Þetta er router, hitt er access point.

Re: Hvernig er best að framlengja þráðlaust net ?

Sent: Fim 28. Júl 2011 17:52
af andribolla
150Mbps vs 300Mbps
7.990 kr vs 8.500 kr

Það er líklega hægt að nota hann til að framlengja þráðlaust net

Re: Hvernig er best að framlengja þráðlaust net ?

Sent: Fim 28. Júl 2011 19:21
af capteinninn
Er með net í gegnum rafmagn sem ég prófaði í gríni en það þrælvirkar. Allavega hef ég ekki tekið eftir neinu laggi með þeirri tengingu.

Re: Hvernig er best að framlengja þráðlaust net ?

Sent: Fim 28. Júl 2011 19:30
af intenz
hannesstef skrifaði:Er með net í gegnum rafmagn sem ég prófaði í gríni en það þrælvirkar. Allavega hef ég ekki tekið eftir neinu laggi með þeirri tengingu.

Hvernig virkar það? Hvernig búnaður er þetta?

Re: Hvernig er best að framlengja þráðlaust net ?

Sent: Fim 28. Júl 2011 19:36
af gtr
intenz skrifaði:
hannesstef skrifaði:Er með net í gegnum rafmagn sem ég prófaði í gríni en það þrælvirkar. Allavega hef ég ekki tekið eftir neinu laggi með þeirri tengingu.

Hvernig virkar það? Hvernig búnaður er þetta?



Td. þetta - http://taeknivorur.is/?i=8&o=1252

Re: Hvernig er best að framlengja þráðlaust net ?

Sent: Fim 28. Júl 2011 23:15
af BirkirEl
ég þakka öll svörin, ég komst að því að ég átti einn linksys WAP54G access point sem þrælvirkar í þetta.

Re: Hvernig er best að framlengja þráðlaust net ?

Sent: Þri 16. Ágú 2011 15:05
af BjarniTS
Afsakið að ég skuli vera að vekja svona gamlan þráð en ég er bara nákvæmlega í þessu veseni.

Sko til að spara sér mest í snúrum er þá ekki skynsamlegast að nota "net yfir rafmagn" ?

Get ég til dæmis tengt svona "Net yfir rafmagn" gaur í innstungu , og stungið í það access point tæki sem að myndi framlengja þráðlausa netið ?

Hvar samt sting ég í rafmagn og hvernig í raun ber ég mig að þegar ég vel innstungur ? , er það bara einhver innstunga ?

Re: Hvernig er best að framlengja þráðlaust net ?

Sent: Þri 16. Ágú 2011 15:09
af tdog
Það er talað um að innstungan verði að vera á sama lekaliða en ég hef séð tilfelli þar sem þetta er notað á milli íbúða í blokkum og virkar vel. Annars þá geturu það alveg, s.s stungið í accesspointinn.

Re: Hvernig er best að framlengja þráðlaust net ?

Sent: Þri 16. Ágú 2011 15:21
af BjarniTS
tdog skrifaði:Það er talað um að innstungan verði að vera á sama lekaliða en ég hef séð tilfelli þar sem þetta er notað á milli íbúða í blokkum og virkar vel. Annars þá geturu það alveg, s.s stungið í accesspointinn.


Já ókey ókey , en ég sé tenginguna við accesspointinn frá innstungu sem svona output.

Skil ekki alveg hvaðan innstungan sjálf samt á að fá net , hvernig tengist internetið í innstunguna upphaflega ? Er það eitthvað sér plug sem er með ethernet á öðrum enda en AC plug á hinum eða ?

Re: Hvernig er best að framlengja þráðlaust net ?

Sent: Þri 16. Ágú 2011 15:25
af Halli25
þarft par, 1 til að setja netið inná rafmagnskerfið og annan til fá merkið úr kerfinu.

Re: Hvernig er best að framlengja þráðlaust net ?

Sent: Þri 16. Ágú 2011 15:36
af BjarniTS
faraldur skrifaði:þarft par, 1 til að setja netið inná rafmagnskerfið og annan til fá merkið úr kerfinu.


Takk meistari

Hérna myndir þú ekki segja að þetta væri skynsamlegasta lausnin fyrir fólk sem þarf áreiðanlegt net en leiðist snúrur ? (Þarf nokkuð að tengja símalínu í svona access point?)



http://www.computer.is/vorur/7548/
http://www.computer.is/vorur/7530/
Samtals = 17.000

http://www.computer.is/vorur/7461/
http://www.computer.is/vorur/7618/
Samtals = 20.800

Hvorn pakkann myndir þú taka ? Er mikill munur á "König HomePlug 31 bridge 200Mbps" og "König HomePlug 21 bridge 85Mbps, HOMEPLUG21" svona fyrir heimili ?
Er mikill munur á þessum accesspunktum sem ég vel þarna svona munur sem að heimili mun finna fyrir ?
Veit ekki til þess að það sé ljósleiðaratenging einusinni en það gæti samt komið í framtíðinni.