Síða 1 af 1
Wake on LAN, en bara frá einu tæki.
Sent: Lau 25. Jún 2011 23:04
af ljoskar
Sælir.
Var að reyna að gera tölvuna hjá mér þannig að þegar ég kveiki á sjónvarpsflakkaranum hjá mér og reyni að tengjast við tölvuna í gegnum routerinn, þá kvikni á tölvunni ef hún er slökkt.
Ég er búinn að virkja "Wake on Lan" en þá kveikir hún á sér svona 20 sek eftir að ég slekk á henni.
Er möguleiki að stilla þetta þannig að sjónvarpsflakkarinn sé eina tækið sem geti kveikt á tölvunni?
k.v. LJOskar
Re: Wake on LAN, en bara frá einu tæki.
Sent: Sun 26. Jún 2011 09:17
af Gúrú
Ætla bara að vera boðberi leiðinlegra skilaboða og minnast á það að það er aaaalls ekki öruggt að þú getir sett þetta upp svona,
tölvan mín er t.d. ekki hæf um að WoLa rétt með öðrum tækjum, ætla að ganga svo langt að segja að mig gruni að lítill minnihluti set-upa á Íslandi geti þetta.
Re: Wake on LAN, en bara frá einu tæki.
Sent: Sun 26. Jún 2011 10:28
af fedora1
Ertu búinn að prófa að fikta í stillingum á vélinni ? Í advanced flipanum á kortinu mínu (win XP) er stilling "WakeUP Capabilities" er ég með Magic packet & pattern match
Það er líklega eitthvað svoleiðis sem þarf að config-a þannig að vélin ræsi sig ekki við hvaða pakka sem er á netinu.
Re: Wake on LAN, en bara frá einu tæki.
Sent: Sun 26. Jún 2011 12:47
af Frantic
Netkortið er þá stillt þannig að hún kveiki á tölvunni sama hvernig packet er að koma.
Því routerinn er stanslaust að reyna að tengjast tölvunni og communicate-a.
Þú verður því að velja að WOL virki bara þegar hann fær svokallaðann magic packet.
En ég efast um það að sjónvarpsflakkarinn geti sent magic packet nema hann sé með sérstakt forrit sem styður það.
Re: Wake on LAN, en bara frá einu tæki.
Sent: Sun 26. Jún 2011 23:11
af ljoskar
Virðist ekki ver hægt eins og ég var að pæla í þessu.
Nú verður maður bara að leggjast yfir aðrar lausnir. Nenni alls ekki að taka til á Sjónvarpsflakkaranum.