Síða 1 af 1
Forit til að mæla gagnamagn.
Sent: Mið 22. Jún 2011 14:14
af IL2
Ég er ekki alveg sáttur við hvað ég virðist hafa downloadað mikið hjá Tal núna á síðustu mánuðum. Getið þið bent á einhver forit sem sýna fyrst og fremst gagnamagn en ekki hraða. Ég veit um Costaware en ætlaði að athuga hérna hvað menn myndu benda á.
Re: Forit til að mæla gagnamagn.
Sent: Mið 22. Jún 2011 14:17
af Plushy
Ferð á Tal.is, Internet flipan og síðan Niðurhal og þar sérðu hversu mikið af gagnamagni þú ert búinn að nota hvern mánuð fyrir sig.
Re: Forit til að mæla gagnamagn.
Sent: Mið 22. Jún 2011 14:22
af J1nX
held að hann sé að meina eitthvað forrit til að sjá hvaða forrit eru að dla fyrir hann
Re: Forit til að mæla gagnamagn.
Sent: Mið 22. Jún 2011 14:33
af IL2
Veit af þessu hjá Tal. Það sem ég er að velta fyrir mér er eitthvað sem sýnir mér hvað það sem ég er inn á er í gagnamagni.
Ég var með um 20GB í síðasta mánuði og finnst það dálítið mikið miðað við mína notkun þar sem ég er ekkert í Torrenti eða slíku.
p.s Reyndar er þetta flott hjá Tal. Var að sjá að það er hægt að sjá notkunina pr. dag hjá þeim.
Re: Forit til að mæla gagnamagn.
Sent: Mið 22. Jún 2011 15:03
af Plushy
Ja.. Það að einfaldlega vera á netinu, skoða myndir, myndbönd og spila leiki tekur drjúgan skammt á mánuði.
Re: Forit til að mæla gagnamagn.
Sent: Mið 22. Jún 2011 15:29
af Krissinn
Plushy skrifaði:Ja.. Það að einfaldlega vera á netinu, skoða myndir, myndbönd og spila leiki tekur drjúgan skammt á mánuði.
Það er að segja ef það er erlent efni
Re: Forit til að mæla gagnamagn.
Sent: Mið 22. Jún 2011 15:30
af Krissinn
Youtube og aðrar video streaming síður eru lúmskar á að éta upp niðurhalskvótann "Þinn!
Re: Forit til að mæla gagnamagn.
Sent: Mið 22. Jún 2011 15:32
af chaplin
Re: Forit til að mæla gagnamagn.
Sent: Mið 22. Jún 2011 16:33
af thorgeiro
Fyrir löngu síðan bjó ég til forrit til að mæla gagnamagn
http://thorgeir.net/?pageid=1Ég veit reyndar ekki hvort þetta virkar ennþá
Gæti verið að það þurfi að setja inn nýja útgáfu af winpcap.
- Thorgeir