Síða 1 af 1

Flokkunarkerfi fyrir linka á vefsíðu

Sent: Lau 21. Maí 2011 21:52
af htdoc
Góðan daginn vaktarar.
Ég er með smá project í gangi og hef verið á fullu í að google en ekk fundið mikið, kannski maður sé ekki að nota réttu orðin ég veit ekki.

En ég þarf sem sagt svona möppu kerfi þar sem ég get valið möppu og opnað hana og þar eru kannski 4 aðrar möppur og ég opna eina og þar eru kannski 6 linkar á aðra síðu,
sem sagt ég er með milljón billjón linka sem ég þarf að flokka og þetta á að vera á vefsíðu þar sem aðrir geta valið möppu sem þeir hafa aðgang að og opnað hana og þar eru einhverjir linkar á t.d. leikjasíður orsom.

Haldiði að þið getið eitthvað hjálpað mér :?
ef þið skiljið mig ekki alveg endilega látið mig vita

Re: Flokkunarkerfi fyrir linka á vefsíðu

Sent: Lau 21. Maí 2011 22:33
af guttalingur
Ertu sem sé að búa þetta til?

Re: Flokkunarkerfi fyrir linka á vefsíðu

Sent: Lau 21. Maí 2011 22:43
af htdoc
guttalingur skrifaði:Ertu sem sé að búa þetta til?


nei, hef enga kunnáttu í það, er að reyna að finna eitthvað sem annar hefur búið til og er að deila því frítt á netinu sem ég get sótt og notað á vefsíðuna mína

Re: Flokkunarkerfi fyrir linka á vefsíðu

Sent: Sun 22. Maí 2011 00:00
af guttalingur
Myndiru kaupa þetta ef þetta væri til sölu?

Re: Flokkunarkerfi fyrir linka á vefsíðu

Sent: Sun 22. Maí 2011 00:33
af htdoc
guttalingur skrifaði:Myndiru kaupa þetta ef þetta væri til sölu?

nei, er með bakkup plan ef ég finn ekkert, en það kemur ekki eins vel út

Re: Flokkunarkerfi fyrir linka á vefsíðu

Sent: Sun 22. Maí 2011 01:33
af gardar
Websense hafa categorize-að flestar vefsíður á internetinu.

En sú lausn er líklegast out of budget fyrir þig. Og ekki beint ætluð í svona verkefni.

Re: Flokkunarkerfi fyrir linka á vefsíðu

Sent: Sun 22. Maí 2011 02:42
af vgud
Er hann ekki að meina eitthvað í þessa áttina: http://www.dynamicdrive.com/dynamicindex1/navigate1.htm
??

Re: Flokkunarkerfi fyrir linka á vefsíðu

Sent: Sun 22. Maí 2011 10:45
af htdoc
vgud skrifaði:Er hann ekki að meina eitthvað í þessa áttina: http://www.dynamicdrive.com/dynamicindex1/navigate1.htm
??


jú er einmitt að meina eitthvað svona, þetta kemur vel til greina, takk fyrir að benda mér á þetta ;)

ef einhver veit um eitthvað annað svona sem er kannski flottara í útliti má hann endilega posta því hérna, annars nota ég bara þetta :)