Síða 1 af 1

Vandræði að setja XP upp á EEE 900A

Sent: Fös 13. Maí 2011 11:22
af IL2
Ég er með EEE 900A sem ég er í vandræðum með. Hún kom með Linux upprunalega og ég vildi setja XP á hana. Það sem gerist er að eftir að ég er búinn að formata hana og keyra up XP stoppar hún alltaf þegar hún endurræsir sig eftir það.

Windows logoið kemur up en hún neitar að halda áfram. 'Eg er búinn að prófa nokkra XP diska en það sama gerist á þeim öllum. Það er nóg pláss, hún er 16GB.
Það var hinsvegar ekkert vandamál að gera það sama á EEE 701 með sama XP og sama utanáliggjandi drifi.

Einhverjar hugmyndir?

Re: Vandræði að setja XP upp á EEE 900A

Sent: Fös 13. Maí 2011 11:32
af beatmaster
Gerist það sama ef að þú startar tölvunni í Safe Mode, ef að hún endurræsir sig eða stoppar hvað er þá síðasta línan sem að stendur í listanum þegar að hún endurræsir sig eða stoppar (eitthvað eins og multi(0)disk(0)rdisk(0)partition(1)\windows\system32\DRIVERS... eða svipað)

Re: Vandræði að setja XP upp á EEE 900A

Sent: Fös 13. Maí 2011 12:27
af chaplin
Á hvað er sata controllerinn stilltur á? Ef hann er á AHCI þá skaltu breyta yfir í IDE, mig minnir þó að það sé ekki hægt að setja upp XP með controllerinn á AHCI, en um að gera að útiloka þetta.

Gæti þó líka verið að uppsetningin hafi klikkað e-h og þú þurfti að setja stýrikerfið upp á nýtt.