Síða 1 af 1

Feedback á x.is

Sent: Mið 11. Maí 2011 11:49
af bth
Sælir

Björgvin heiti ég og vinn hjá fyrirtæki sem heitir Nethönnun. Við settum nýlega í loftið vefinn www.x.is sem er hýsingarþjónusta sem byggir á sjálfsafgreiðslu. Þar er frí DNS hýsing, vefhýsingar með PHP og MySQL stuðningi, POP/IMAP pósthólf og svo auðvitað VPS serverar. Allt er þetta hýst á Íslandi og stjórnað af starfsmönnum Nethönnunar.

Álit notenda skiptir okkur miklu máli og vildi ég gjarnan fá álit ykkar á kerfinu, þjónustunni eða einhverju öðru tengdu x.is.

Mig langar að gefa ykkur, notendum vaktarinnar, 300 kr. inneign í kerfinu og allir sem senda mér feedback eða einhverja umsögn um kerfið fá aðra inneign í kerfið. Þessi 300 króna inneign jafngildir um einum og hálfum mánuði í venjulegri vefhýsingu fyrir allt að 1 GB pláss.

Endilega sendið mér PM eða póst á bth -at- x.is og ég sendi ykkur inneignarkóða til baka.

Skráningin er á http://x.is/nyskraning

Re: Feedback á x.is

Sent: Mið 11. Maí 2011 17:42
af ponzer
Virkar ekki betur en það en ég var með einn VPS hjá ykkur sem ég notaði í nokkra klst og slökkti svo á honum og henti en þið rukkið mig samt mánaðarlega frá 300kr til 500kr á Visa kortið mitt :thumbsd

Svo mætti ath verðsamanburðinn á VPS líka, Netsamskipti eru ódýrari og færð meira gagnamagn.
http://www.netsamskipti.is/hysingar/nwc-virtual.html

Re: Feedback á x.is

Sent: Mið 11. Maí 2011 18:05
af bth
ponzer skrifaði:Virkar ekki betur en það en ég var með einn VPS hjá ykkur sem ég notaði í nokkra klst og slökkti svo á honum og henti en þið rukkið mig samt mánaðarlega frá 300kr til 500kr á Visa kortið mitt :thumbsd

Svo mætti ath verðsamanburðinn á VPS líka, Netsamskipti eru ódýrari og færð meira gagnamagn.
http://www.netsamskipti.is/hysingar/nwc-virtual.html


Sæll

Sendu mér PM með notandanafninu þínu hjá x.is og ég skal kíkja á málið bara.

Munurinn á VPS þjónustu x.is og NWC er að allt gerist sjálfkrafa hjá x.is. Þú þarft ekki að bíða eftir því að við búum til serverinn fyrir þig eða stækkum eða minnkum hann seinna. Þú stjórnar því öllu sjálfur, hvenær sem er sólarhringsins.

Re: Feedback á x.is

Sent: Mið 11. Maí 2011 18:17
af izelord
Ég er búinn að vera hjá ykkur frá áramótum og ég get fullyrt að ég er mjög ánægður viðskiptavinur.
Mjög auðvelt að breyta DNS færslum, fjölga netþjónum osfrv.

Re: Feedback á x.is

Sent: Fim 19. Maí 2011 09:09
af bth
bth skrifaði:
ponzer skrifaði:Virkar ekki betur en það en ég var með einn VPS hjá ykkur sem ég notaði í nokkra klst og slökkti svo á honum og henti en þið rukkið mig samt mánaðarlega frá 300kr til 500kr á Visa kortið mitt :thumbsd

Svo mætti ath verðsamanburðinn á VPS líka, Netsamskipti eru ódýrari og færð meira gagnamagn.
http://www.netsamskipti.is/hysingar/nwc-virtual.html


Sæll

Sendu mér PM með notandanafninu þínu hjá x.is og ég skal kíkja á málið bara.

Munurinn á VPS þjónustu x.is og NWC er að allt gerist sjálfkrafa hjá x.is. Þú þarft ekki að bíða eftir því að við búum til serverinn fyrir þig eða stækkum eða minnkum hann seinna. Þú stjórnar því öllu sjálfur, hvenær sem er sólarhringsins.


Til upplýsinga að þá var eðlileg skýring á þessu sem ponzer nefnir. Misskilningurinn lá í að x.is rukkar eftirá fyrir veitta þjónustu.