Síða 1 af 1

Uppsetning á PMS

Sent: Sun 08. Maí 2011 09:19
af FriðrikH
Skv. ráðleggingum frá GuðjóniR er ég að reyna að setja upp Playstation media server til að geta streamað efni úr borðtölvunni hjá mér í gegnum PS3-inn.
Ég er hinsvegar alltaf að lenda í veseni með PMS-ið, í hvert skipti sem ég starta honum þá bara deyr nettengingin hjá mér algerlega. Getur verið að þetta sé eitthvað tengt routernum? Ég er með Bewan router einhvern frá Vodafone sem ég fékk hjá þeim þegar ljósleiðarinn var tengdur inn.

Annars hef ég fengið PMS-inn inn á PS3inum, en þegar ég fer ofan í möppurnar í honum þá eru aldrei nein skjöl að displayast, sama þó að þau séu 100% á supported formatti.

Getur verið að það sé eitthvað beisic dæmi sem ég er algerlega að missa af hérna?

Re: Uppsetning á PMS

Sent: Sun 08. Maí 2011 09:25
af blitz
PS3/PC tengd með WiFi?

Prófaðu að breyta um Wireless channel á routernum til að byrja með.

Re: Uppsetning á PMS

Sent: Sun 08. Maí 2011 09:41
af FriðrikH
Nei, allt tengt með snúru.

Re: Uppsetning á PMS

Sent: Sun 08. Maí 2011 11:25
af addifreysi
Ég er að nota TVersity og það virka mjög vel, bætir bara við folderum sem þú vilt share-a og komið.

Re: Uppsetning á PMS

Sent: Sun 08. Maí 2011 13:32
af FriðrikH
addifreysi skrifaði:Ég er að nota TVersity og það virka mjög vel, bætir bara við folderum sem þú vilt share-a og komið.


Lookar vel, en ég er með Ubuntu á borðvélinni.

Re: Uppsetning á PMS

Sent: Sun 08. Maí 2011 13:59
af gardar
FriðrikH skrifaði:
addifreysi skrifaði:Ég er að nota TVersity og það virka mjög vel, bætir bara við folderum sem þú vilt share-a og komið.


Lookar vel, en ég er með Ubuntu á borðvélinni.



http://mediatomb.cc/

Re: Uppsetning á PMS

Sent: Sun 08. Maí 2011 14:26
af AntiTrust
Gæti verið e-r permission mál hugsanlega að blockera aðgang að skrám?

Allavega aldrei lent í vandræðum með PSM á Win platformi, smooth as sailing og étur TVersity anyday í performance.

Re: Uppsetning á PMS

Sent: Sun 08. Maí 2011 17:56
af worghal
eitt með PMS, þegar þú opnar möppur, bíðuru í smá stund eða sérð bara að þar er ekkert og lokar möppunni ?
því það tekur smá stund fyrir PMS að senda upplýsingar um innihaldið til að það sjáist í ps3.
ég er að nota PMS án nokkura vandræða og það tekur alltaf smá stund að sjá hvað er í möppunum.

Re: Uppsetning á PMS

Sent: Sun 08. Maí 2011 20:33
af FriðrikH
worghal skrifaði:eitt með PMS, þegar þú opnar möppur, bíðuru í smá stund eða sérð bara að þar er ekkert og lokar möppunni ?
því það tekur smá stund fyrir PMS að senda upplýsingar um innihaldið til að það sjáist í ps3.
ég er að nota PMS án nokkura vandræða og það tekur alltaf smá stund að sjá hvað er í möppunum.


Hversu langa stund? Ég beið í ca. mínútu, tók reyndar eftir því að klukkan uppi í horninu hægra megin var að snúast á fullu eins og þegar tölvan er að hugsa eitthvað. Það þarf varla að bíða það lengi?

Re: Uppsetning á PMS

Sent: Sun 08. Maí 2011 20:49
af ManiO
Hve djúpt var þetta inn í folderum? Ef ég man rétt þá er hámark á hvað PS3 kemst djúpt í folder fjölskyldur.

Edit:

Ef þetta skilst ekki þá er ég að tala um:

C:\Folder 1\Folder 2\....\Folder n

Re: Uppsetning á PMS

Sent: Sun 08. Maí 2011 22:37
af bulldog
Premenstrual syndrome, often called PMS, is a group of physical and emotional symptoms that occur during the late luteal phase of the menstrual cycle. In order for a diagnosis of PMS to occur, physical and/ or emotional symptoms must consistently appear during the last week before the onset of menstruation and disappear shortly after menstruation begins. The symptoms of PMS must also interfere with routine daily living, according to Contemporary Issues in Gynecology Vol. 2.

Re: Uppsetning á PMS

Sent: Sun 08. Maí 2011 22:53
af GuðjónR
FriðrikH skrifaði:Skv. ráðleggingum frá GuðjóniR

Haa?? 8-[
Var ég hvað ?

Re: Uppsetning á PMS

Sent: Sun 08. Maí 2011 23:22
af FriðrikH
GuðjónR skrifaði:
FriðrikH skrifaði:Skv. ráðleggingum frá GuðjóniR

Haa?? 8-[
Var ég hvað ?


Hólí móli, ég ruglaði þér og antitrust saman :face afsakaðu misskilninginn

Annars virðist þetta vandamál vera út af einhverju network vandamáli, er alltaf að fá einhverja DLNA 2006 villu í PS3 þegar ég bíð nógu lengi þegar ég reyni að opna möppuna.
Ég prófaði þó að búa til möppu beint undir /home og setti bara einn þátt í hann, ca. 350Mb, og þá gat ég spilað hann..... :dontpressthatbutton

Re: Uppsetning á PMS

Sent: Mán 09. Maí 2011 01:30
af AntiTrust
Hvaða PSM útgáfu ertu að nota?

Re: Uppsetning á PMS

Sent: Mán 09. Maí 2011 08:38
af FriðrikH
Ég var alveg að flippa á þessu seint í gær þannig að ég breytti hinu og þessu í stillingunum..... og viti menn, þetta virkaði svo bara eftir það. Gallinn er að ég breytti svo mörgu að ég veit ekkert hvað það var sem reddaði málunum :svekktur vonandi helst þetta bara inni. Ekki beint rétta leiðin til að finna út úr vandamálum en ég sætti mig við það í þetta skiptið.
Þakka ykkur þó fyrir alla aðstoðina.