Síða 1 af 1
Upfærsla frá W7 Home Prem í Professional?
Sent: Fös 06. Maí 2011 10:22
af Tiger
Sælir vaktara, er einhver leið fyrir mig að uppfæra Windows7 Home Premium í Professional eða Ultimate án þess að borga tugi þúsunda? Ef ég byggi ekki á þessu skítaskeri gæti ég uppfært fyrir 89$ og reddað mér á nokkrum mínútum en það er víst ekki hægt með íslensku kreditkorti, þannig að ég spyr hvort það sé önnur leið (áður en ég fer *píp* leiðina sem M$ virðist þvinga manni í of oft).
Re: Upfærsla frá W7 Home Prem í Professional?
Sent: Sun 08. Maí 2011 23:21
af tdog
Þekkir þú einhvern sem er með aðgang að MSDN og er til í að beygja reglurnar fyrir þig eilítið?
Re: Upfærsla frá W7 Home Prem í Professional?
Sent: Sun 08. Maí 2011 23:29
af Tiger
tdog skrifaði:Þekkir þú einhvern sem er með aðgang að MSDN og er til í að beygja reglurnar fyrir þig eilítið?
Neibb því miður. Talaði við Opin Kerfi þar sem ég keypti stýrikerfið og get fengið uppfærslu frá þeim sem kostar 35þús og tekur 2-3 vikur
...... kostar 89$ í USA og maður getur downloadað henni.
Re: Upfærsla frá W7 Home Prem í Professional?
Sent: Sun 08. Maí 2011 23:30
af Kristján
35.000 kr !!!!!! WHAT!!!
Re: Upfærsla frá W7 Home Prem í Professional?
Sent: Sun 08. Maí 2011 23:33
af Tiger
Svo finnst þeim skrítið að Torrent heimurinn blómstri
Ég er tilbúinn að borga fyrir mitt, en ég er ekki tilbúinn að láta taka mig í þurrt kakóið!
Re: Upfærsla frá W7 Home Prem í Professional?
Sent: Mán 09. Maí 2011 00:14
af AntiTrust
Afhverju að eltast við pro? Multi-CPU supportið?
Re: Upfærsla frá W7 Home Prem í Professional?
Sent: Mán 09. Maí 2011 00:21
af Hvati
Argasta rán er þetta! Torrent away Snuddi!
Re: Upfærsla frá W7 Home Prem í Professional?
Sent: Mán 09. Maí 2011 00:35
af Tiger
AntiTrust skrifaði:Afhverju að eltast við pro? Multi-CPU supportið?
Jebb, Home Premium sér bara einn örgjörva og til hvers að hafa SR-2 móðurborð og 2 Xeon örgjörva ef það nýtist ekki.