Síða 1 af 1

Stream-a efni yfir netið í XBMC

Sent: Lau 30. Apr 2011 16:28
af Kjohnson
Var að velta því fyrir mér hvort einhver hérna inni gæti hjálpað mér með xbmc vandamál...

Er með server á einum stað í bænum á ljósleiðaratengingu og langar að stream-a efni(helst HD-video) yfir í jailbreakað Apple TV 2 með XBMC uppsett hér í íbúðinni.

Er einhver leið fyrir mig að búa til FTP server á servernum og geta accessað hann yfir netið í XBMC viðmótinu? :?

....eða er einhver betri leið sem ég veit ekki um?

hér er semsagt uppsetningin:

- Serverturn á stað A (ljósleiðari)

- Apple TV 2 með XBMC uppsett á stað B (ljósleiðari)

- Stream-a HD-Video yfir internetið frá server yfir í XBMC

Re: Stream-a efni yfir netið í XBMC

Sent: Lau 30. Apr 2011 16:45
af mind
Já.

Setur bara upp ftp þjón á servernum

Svo þegar þú bætir við source í XBMC velurðu einfaldlega ftp

Re: Stream-a efni yfir netið í XBMC

Sent: Lau 30. Apr 2011 17:50
af AntiTrust
Ekkert mál að stream-a HD á milli þegar báðir punktar eru á ljósi.