Öryggislykill fyrir win7
-
Höfundur - Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 330
- Skráði sig: Mið 07. Apr 2010 17:03
- Reputation: 1
- Staða: Ótengdur
Öryggislykill fyrir win7
Halló é var að setja win7 í tölvuna mina. Og er að reyna teyngjast netinu. En hún biður alltaf um Security key. Og ég set code númerið sem er á router-num. En hún hafnar því alltaf. Er þetta eitthvað annað númer sem er verið að biðja um hvaða númer þá. Þetta er adsl hjá vodafone og hún er eitthvað leiðinleg síðan hjá þeim. Og ég kemst ekki i hjálp þar. Og þetta heitir eitthvað vox bla bla. Ef einhver veit hvernig maður á að laga þetta þá er það mjög vel þeigin. GEÐHEILSAN ER Í HÚFI.
BÖNNUÐ GÆÐI BRAGÐAST BEST
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1002
- Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 19:55
- Reputation: 16
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Öryggislykill fyrir win7
Setur þú ekki örugglega alla stafina inn sem Stóra stafi ??Það skiptir máli hvort þeir séu stórir eða litlir
Annars getur þú líka séð hvað kóðinn er, ef þú ert með aðra tölvu tengda inná routerinn .
Annars getur þú líka séð hvað kóðinn er, ef þú ert með aðra tölvu tengda inná routerinn .
Síðast breytt af MarsVolta á Mán 25. Apr 2011 14:29, breytt samtals 1 sinni.
-
Höfundur - Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 330
- Skráði sig: Mið 07. Apr 2010 17:03
- Reputation: 1
- Staða: Ótengdur
Re: Öryggislykill fyrir win7
Jú ég er með stóra stafi. Og ég er að nota wpa kóðann. Eina tölvan hér sem er teingd er xp. Og hún er með venjulega lykillorð.
Og ég var að nota það en hún hafnar því alltaf.
Og ég var að nota það en hún hafnar því alltaf.
BÖNNUÐ GÆÐI BRAGÐAST BEST
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1002
- Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 19:55
- Reputation: 16
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Öryggislykill fyrir win7
sunna22 skrifaði:Jú ég er með stóra stafi. Og ég er að nota wpa kóðann. Eina tölvan hér sem er teingd er xp. Og hún er með venjulega lykillorð.
Og ég var að nota það en hún hafnar því alltaf.
Farðu inná routerinn, (192.168.1.1 eða 192.168.1.254 svona yfirleitt) og farðu í þráðlausa netið og sjáðu bara hvað lykilorðið er. Ef lykilorðið þar virkar ekki, þá er eitthvað meira að .
-
- Besserwisser
- Póstar: 3835
- Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
- Reputation: 157
- Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
- Staða: Ótengdur
Re: Öryggislykill fyrir win7
Er þráðlaust netkort í þessari tölvu?
Ertu örugglega að tengjast við rétt þráðlaust net?
Ertu ööööörugglega að nota rétt lykilorð? Ég leiðrétti einn aðila um daginn sem var búinn að reyna mjög oft að setja inn vitlaust lykilorð, hann tók bara fyrsta langa stafastrenginn á límmiðanum á routerinum, var ekkert að velta fyrir sér hvað það var (Serial númerið á routerinum sjálfum...)