Síða 1 af 1
Uppsetning á telsey boxi?
Sent: Fös 08. Apr 2011 15:47
af ManiO
Sælir,
Hefur einhver hérna sett upp telsey box sjálfur? Er það mikið mál?
Re: Uppsetning á telsey boxi?
Sent: Fös 08. Apr 2011 17:21
af Gúrú
Bara til að útskýra, áttu við að gera allt sjálfur þegar að kemur að því að setja upp netið þegar að maður er nýr með ljósleiðara
EÐA: Setja upp telsey boxið sjálft á vegginn og tengja alla vírana í telsey box?
Spyr einungis vegna þess að það er eeeenganveginn þess virði að fá tækniaðstoð senda heim fyrir marga þúsundkalla,
átti mjög auðvelt með það á tiltölulega stuttum tíma með þjónustufulltrúa í símanum frítt.
Re: Uppsetning á telsey boxi?
Sent: Fös 08. Apr 2011 17:49
af hagur
Gera þeir þetta ekki frítt?
Ég borgaði ekki krónu þegar þeir komu og tengdu ljósleiðarann hér hjá mér og virkjuðu tenginguna.
Re: Uppsetning á telsey boxi?
Sent: Fös 08. Apr 2011 18:32
af benson
Vodafone gerir þetta frítt. Annars er þetta mjög easy. Tengja router í port 1 eða 2, tengja Amino í 3 eða 4. Tengja síma í phone1. Tengja þig við router, virkja í gegnum GR síðuna. Restarta öllu.
Re: Uppsetning á telsey boxi?
Sent: Fös 08. Apr 2011 18:53
af ManiO
Það eru sem sagt framkvæmdir í gangi heima og telsey boxið var tekið niður. Ég þarf sem sagt að tengja það við ljósleiðara boxið. Að tengja það áfram í síma/net/sjónvarp er barnaleikur
Re: Uppsetning á telsey boxi?
Sent: Fös 08. Apr 2011 19:09
af tdog
Það splæsir enginn amatör ljósleiðara með góðum árangri... Fyrir utan það kostar búnaður í splæsinguna um hálfa milljón ef ég man rétt.
Re: Uppsetning á telsey boxi?
Sent: Fös 08. Apr 2011 19:19
af ManiO
tdog skrifaði:Það splæsir enginn amatör ljósleiðara með góðum árangri... Fyrir utan það kostar búnaður í splæsinguna um hálfa milljón ef ég man rétt.
Fer ljósleiðari í telsey boxið?
Re: Uppsetning á telsey boxi?
Sent: Fös 08. Apr 2011 19:48
af depill
Sko hér fer eftir því hvernig þetta hefur verið gengið frá hjá þér. Telsey boxið mun taka ljósleiðara uppí sig og það er eiginlega ekki hægt að færa telsey boxið án þess að lenda í ja aukakostnaði ( þarft ljósvirkja á svæðið og það mun kosta, þar sem eingöngu fyrsta uppsetningu á GR er frí,þjónustuaðilarnir svo sem eins og við geta ekki gert þetta ).
Þetta er mismunandi eftir útgáfum af Telsey boxum en eins og á boxinu sem ég held á er inntak fyrir ljósleiðaran sem stendur á "IN", þetta ætti að vera SC tengi.
Fiberinn ætti að vera í húsinu þar sem að telsey boxið var síðast. Þar ætti tengið að vera, ef það hefur ekki verið sett hlíf á tengið verður að hreinsa það með rubbing alcahol. Ef tengið er ekki á fibernum eða þá splicingin milli inntaks og þar sem boxið var er farinn ja þá verðuru að fá ljósvirkja.
Annars heldurðu bara áfram með því að taka telsey boxið og tengja ljósleiðarann ( með SC tengingu ) og tengir það í IN tengið á boxinu ( á eldri boxinu þarftu að taka alla hlífina af ef mig minnir rétt, þarf ekki á nýu boxunum ). Og svo festa telseyboxið við vegginn eftir það. Þú setur svo telseyboxið í samband við straum eftir það og þá ætti eftir smá stund að koma link ljós.
Re: Uppsetning á telsey boxi?
Sent: Fös 08. Apr 2011 19:53
af Kristján Gerhard
Er boxið ekki innsiglað?
Re: Uppsetning á telsey boxi?
Sent: Fös 08. Apr 2011 19:54
af ManiO
Ugh, kannast ekki við að hafa séð þessa snúru nein staðar. Þarf reyndar að kíkja heim á eftir, skoða þetta betur á eftir. Er með gamla ljósboxið hins vegar, og það er ekki innsiglað ef ég man rétt.
Re: Uppsetning á telsey boxi?
Sent: Fös 08. Apr 2011 20:47
af ManiO
Jæja, var að tjékka þetta betur. Snúran er inni í ljósboxinu, en það er ekki tengill á endanum (eitthvað hvítt jukk sem ég geri ráð fyrir sé til þess að vernda endann). Þannig að svo virðist að mér vanti ljósvirkja. Einhver sem veit um slíkan sem er á sanngjörnum taxta?
Re: Uppsetning á telsey boxi?
Sent: Fös 08. Apr 2011 23:49
af tdog
ManiO skrifaði:Jæja, var að tjékka þetta betur. Snúran er inni í ljósboxinu, en það er ekki tengill á endanum (eitthvað hvítt jukk sem ég geri ráð fyrir sé til þess að vernda endann). Þannig að svo virðist að mér vanti ljósvirkja. Einhver sem veit um slíkan sem er á sanngjörnum taxta?
Telnet ehf
Re: Uppsetning á telsey boxi?
Sent: Lau 09. Apr 2011 00:17
af ManiO
tdog skrifaði:ManiO skrifaði:Jæja, var að tjékka þetta betur. Snúran er inni í ljósboxinu, en það er ekki tengill á endanum (eitthvað hvítt jukk sem ég geri ráð fyrir sé til þess að vernda endann). Þannig að svo virðist að mér vanti ljósvirkja. Einhver sem veit um slíkan sem er á sanngjörnum taxta?
Telnet ehf
Akranesi? Er enginn hérna í Rvk?
Re: Uppsetning á telsey boxi?
Sent: Lau 09. Apr 2011 00:54
af coldcut
ManiO skrifaði:Akranesi? Er enginn hérna í Rvk?
Hver heldurðu að vilji búa í rvk þegar hann getur búið á Skaganum?
Re: Uppsetning á telsey boxi?
Sent: Lau 09. Apr 2011 01:18
af zedro
coldcut skrifaði:ManiO skrifaði:Akranesi? Er enginn hérna í Rvk?
Hver heldurðu að vilji búa í rvk þegar hann getur búið á Skaganum?
Uuuuuu allir?
Re: Uppsetning á telsey boxi?
Sent: Lau 09. Apr 2011 01:50
af coldcut
Zedro skrifaði:coldcut skrifaði:ManiO skrifaði:Akranesi? Er enginn hérna í Rvk?
Hver heldurðu að vilji búa í rvk þegar hann getur búið á Skaganum?
Uuuuuu allir?
spurning að róa sig í bjórnum zedro...fer þér ekki vel að bulla svona!
En spurning um að fara 'back on topic' áður en MániNúll fer að verða pirripú
Re: Uppsetning á telsey boxi?
Sent: Lau 09. Apr 2011 09:35
af sigurfr
Hérna eru upplýsingar um innanhúslagnaverktaka GR
http://gagnaveita.is/Heimili/TengingLjosleidarans/Verktakar/Mér heyrist að þú ættir að fá heimsókn frá þeim, klárlega ef það þarf að bræða (splice) saman fíberinn einhverstaðar.
Kv. Sigurður
Re: Uppsetning á telsey boxi?
Sent: Lau 09. Apr 2011 10:22
af ManiO
coldcut skrifaði:Zedro skrifaði:coldcut skrifaði:ManiO skrifaði:Akranesi? Er enginn hérna í Rvk?
Hver heldurðu að vilji búa í rvk þegar hann getur búið á Skaganum?
Uuuuuu allir?
spurning að róa sig í bjórnum zedro...fer þér ekki vel að bulla svona!
En spurning um að fara 'back on topic' áður en MániNúll fer að verða pirripú
Þetta er Ohh ekki núll
Ég tékka á þessu, takk.
Re: Uppsetning á telsey boxi?
Sent: Lau 09. Apr 2011 11:46
af coldcut
ManiO skrifaði:Þetta er Ohh ekki núll