Síða 1 af 1
Telesy box og bein aðgangur
Sent: Þri 05. Apr 2011 16:19
af Pandemic
Sælir, ég er með ljósleiðara og það er hvimleitt að vera með Server í gegnum routerinn sem Tal skaffar þar sem hann þolir enganveginn troughputið sem ljósleiðarinn er að gefa og crashar þar að leiðandi mjög oft.
Þannig ég ætlaði bara að setja tölvu á milli sem eldvegg og sjá bara um þetta sjálfur. En þegar ég tengi vélina í boxið þá fæ ég alltaf upp OR splashið og er beðinn um notandanafn og lykilorð og þegar það hefur verið slegið inn fæ ég bara eitthvað áskrifaroverview og kemst ekki framhjá því.
Á bara að vera nóg að slá inn lykilorð og pass og good to go?
Re: Telesy box og bein aðgangur
Sent: Þri 05. Apr 2011 16:39
af einarth
Sæll.
Ertu að tengja í sama port á Telsey og router var tengdur í áður, eða eru að nota annað port?
Þetta á að virka þannig að þú tengir í ISP port (port 1-2) og ef það er óskráð tæki þá færðu 10.x.x.x ip tölu. Frá henni færðu upp kerfi GR í vafra og slærð inn nafn og lykilorð. Eftir það þarftu að endurræsa tækið (eða ipconfig release-renew) og þá færðu public ip tölu og tækið er skráð.
Kv, Einar.
Re: Telesy box og bein aðgangur
Sent: Þri 05. Apr 2011 17:10
af pattzi
Keyptu þér bara alvöru router .
Re: Telesy box og bein aðgangur
Sent: Þri 05. Apr 2011 17:13
af gardar
pattzi skrifaði:Keyptu þér bara alvöru router .
Miklu betra/skemmtilegra að henda upp server og nota hann sem router
Re: Telesy box og bein aðgangur
Sent: Þri 05. Apr 2011 17:30
af pattzi
gardar skrifaði:pattzi skrifaði:Keyptu þér bara alvöru router .
Miklu betra/skemmtilegra að henda upp server og nota hann sem router
okey:-)
Re: Telesy box og bein aðgangur
Sent: Mið 06. Apr 2011 15:50
af ponzer
Pandemic skrifaði:Sælir, ég er með ljósleiðara og það er hvimleitt að vera með Server í gegnum routerinn sem Tal skaffar þar sem hann þolir enganveginn troughputið sem ljósleiðarinn er að gefa og crashar þar að leiðandi mjög oft.
Þannig ég ætlaði bara að setja tölvu á milli sem eldvegg og sjá bara um þetta sjálfur. En þegar ég tengi vélina í boxið þá fæ ég alltaf upp OR splashið og er beðinn um notandanafn og lykilorð og þegar það hefur verið slegið inn fæ ég bara eitthvað áskrifaroverview og kemst ekki framhjá því.
Á bara að vera nóg að slá inn lykilorð og pass og good to go?
Ég setti upp headless Smoothwall vél sem gerir þetta fyrir mig, það sem ég þurfti að gera var að tengja mig á lappanum beint í boxið og fara í gegnum þennann áskriftar wizard og þegar það er búið þá þarftu að setja inn MAC addressuna á netkortinu sem þú ætlar að tengja í boxið (sem mun þá væntanlega vera eitt af netkortunum á vélini sem þú ætlar að láta routa fyrir þig) í Network devices í þessum Gagnaveitu portal
þegar þú ert búinn að því þarftu að restarta telsey boxinu og þá ertu góður jafnvel restarta eða bara flusha dns'ið á router vélini.
Re: Telesy box og bein aðgangur
Sent: Mið 06. Apr 2011 16:58
af Pandemic
Takk fyrir svörin, ég prófa þetta eftir próf þegar ég hef tíma.
Re: Telesy box og bein aðgangur
Sent: Mið 06. Apr 2011 18:09
af Gullisig
Mac talan á netkorti vélar sem þú ert að tengja við telsay þarft þú að gefa upp og setja í OR síðuni settu bara aftur gamla router við telsay og bættu við mac tölunni og viola ,, ps ég er með þetta svona eins og þú ert að reyna ,,, hef eina vél keyrandi ISA firewall
Re: Telesy box og bein aðgangur
Sent: Mið 06. Apr 2011 21:43
af braudrist
Mig minnir að þú þurfir að hringja í Vodafone og gefa þeim upp MAC addressuna, ekki OR.
Re: Telesy box og bein aðgangur
Sent: Mið 06. Apr 2011 21:47
af Páll
Þarft að skrá þig inn á OR síðunni og setja inn mac addressuna, og restarta svo boxinu.
Er sjálfur með server beintengdan við telseybox.