Síða 1 af 1

Ómerkilegustu forritunarverkefni fyrr og síðar í keppni HR?

Sent: Lau 26. Mar 2011 12:54
af Viktor
Hversu léttar og ómerkilegar þrautir er hægt að hafa í forritunarkeppni? Mér blöskrar.



http://mbl.is/frettir/innlent/2011/03/2 ... _forritun/


T.d. eiga keppendur að búa til forrit sem les inn meðalregn í hverjum mánuði. Forritið birtir hvert meðalregnið er yfir árið og í hvaða mánuði er mest regn og í hvaða mánuði er minnst regn.


Einnig eiga nemendur að búa til forrit sem reikna á fermetrafjölda herbergis. Forritið spyr um lengd og breidd herbergis í metrum, en forritið svarar hver fermetrafjöldinn er.


Þá eiga keppendur að búa til forrit sem skráir niður árangur keppenda í hástökki, þar sem tekið er tilliti til þess hvort hástökkvararnir fara yfir í fyrstu, annarri eða þriðju tilraun eða alls ekki.

Re: Ómerkilegustu forritunarverkefni fyrr og síðar í keppni?

Sent: Lau 26. Mar 2011 12:55
af Hvati
shii...

Re: Ómerkilegustu forritunarverkefni fyrr og síðar í keppni HR?

Sent: Lau 26. Mar 2011 12:59
af Daz
Flækjustigið skiptir engu, úrlausnin er til dóms. Þetta er líka framhaldsskólakeppni svo það er ekki víst að allir þar hafi kynnt sér helstu algóriþma og bestunaraðferðir #buzzwordtalk

Re: Ómerkilegustu forritunarverkefni fyrr og síðar í keppni HR?

Sent: Lau 26. Mar 2011 13:09
af rapport
Ég skil fréttina Þannig að kepnnin er "frjáls" að örðu leiti en með þessi atriði...

Þeta er svona eins og "grunnæfingar" sem þarf að klára ef fólk ætlar að vera með...

Re: Ómerkilegustu forritunarverkefni fyrr og síðar í keppni HR?

Sent: Lau 26. Mar 2011 14:53
af hagur
Hefur alltaf verið svona a.m.k í alpha deildinni, sem er auðveldari. Annars snýst þetta líka mikið um hvernig lausnin er skrifuð eins og hefur komið fram.

Re: Ómerkilegustu forritunarverkefni fyrr og síðar í keppni HR?

Sent: Lau 26. Mar 2011 15:00
af Kobbmeister
hagur skrifaði:Hefur alltaf verið svona a.m.k í alpha deildinni, sem er auðveldari. Annars snýst þetta líka mikið um hvernig lausnin er skrifuð eins og hefur komið fram.

Delta er auðveldust, Alpha er erfiðust.

Re: Ómerkilegustu forritunarverkefni fyrr og síðar í keppni HR?

Sent: Lau 26. Mar 2011 16:19
af ManiO
Ég tók nú þátt í Delta keppninni fyrir nokkrum árum, og minnir mig að þessi verkefni hafi verið talsvert flóknari. Vann sjálfur ekki til verðlauna í forritunarhlutanum en vann lógó keppnina :)

Re: Ómerkilegustu forritunarverkefni fyrr og síðar í keppni HR?

Sent: Lau 26. Mar 2011 16:49
af Haxdal
haha, ég tók þátt í fyrstu keppninni sem var haldin, þá var bara eitt erfiðleikastig í keppninni og verkefnin voru svipuð og þetta, svo árið á eftir þá tók ég þátt aftur og þá var búið að skipta þessu í tvennt og núna sé ég að það er búið að skipta þessu enn frekar niður sem er bara fínt. Fólk hefur misjafna reynslu af forritun og leiðinlegt að útiloka þá sem eru nýbyrjaðir við að keppa með að hafa alltof erfið verkefni.

Re: Ómerkilegustu forritunarverkefni fyrr og síðar í keppni HR?

Sent: Lau 26. Mar 2011 18:01
af jonrh
Það eru í kringum 20 dæmi í stighækkandi erfiðleika sem á að leysa í kapp við tímann. Dæmin sem þú vitnaðir í eru fyrstu dæmin sem flestir klára mjög fljótt. Fyrir þá sem hafa áhuga á að spreyta sig þá má finna öll verkefnin hérna.

Re: Ómerkilegustu forritunarverkefni fyrr og síðar í keppni HR?

Sent: Lau 26. Mar 2011 19:01
af raRaRa
Þessi verkefni á mbl.is eru tekin úr delta verkefnunum sem er auðveldasta stigið.

Alpha verkefnin eru mun flóknari og krefjast meiri þekkingu en delta og beta.

Svo má bæta við að þetta er forritunarkeppni framhaldsskólana, ekki háskólastig.

Re: Ómerkilegustu forritunarverkefni fyrr og síðar í keppni HR?

Sent: Fös 01. Apr 2011 18:22
af SuprDewd
Þessi frétt fer ekkert smá mikið í taugarnar á mér!
Lítur út fyrir að við séum eitthverjir smákrakkar. :face

Anyways, dæmin eru hérna ef eitthver vill sjá.