Síða 1 af 1
Hvaða windows,,,
Sent: Þri 06. Apr 2004 13:39
af MJJ
Ég er að nota XP og er orðinn þreyttur á því að internet explorer skemmist alltaf þegar ég er búinn að hafa það inni í mánuð or some,
Hvaða windows er besta valið, það þarf að virka vel sem server, leikjadæmi, photoshop, það þarf í raun að vera gott til almennrar notkunar.
Er einhver sem er búinn að prufa Betuna af Longhorn?
-Windows XP "Codename Longhorn" Beta,
-Windows XP Professional,
-Windows 2003 Server,
-Windows 2000,
-Windows 98 SE,
-Windows 95,
-Windows 3.11,
Eða hreinlega að nota bara MS-Dos
Sent: Þri 06. Apr 2004 13:41
af Pandemic
hefur þér nokkuð dottið í hug að setja upp Mozilla Firefox eða Firebird internet explorer er ekki það eina í heiminum you know. Ertu kannski að tala um Explorer.exe?
Sent: Þri 06. Apr 2004 13:42
af pyro
besta all-around kerfið er sennilega w2k, og hættu svo að nota IE og notaðu mozilla, miklu betra og öruggara
Sent: Þri 06. Apr 2004 13:43
af MJJ
Já, þú segir nokkuð en mig langar að skipta útaf ýmsu, aðalega þessu samt, ég ætla að setja Firebird inn á hann einhverstaðar og tjekka hvort það virki, ég er búinn að tjekka hvort þetta sé eitthvað rugl í JAVA en fann ekkert að því, ætla að reyna þetta
Sent: Þri 06. Apr 2004 13:47
af MJJ
Heyrðu ég setti Mozilla upp og viti menn það virkar, ég ætla samt að skipta um windows held ég, er einhver kominn með reynslu á longhorn draslið
Sent: Þri 06. Apr 2004 14:02
af pyro
auðvitað virkar mozilla... nú þarftu bara að skipta í linux og þá eru allir glaðir...
welcome to the dark side
Sent: Þri 06. Apr 2004 14:26
af Voffinn
pyro skrifaði:welcome to the dark side
We got cookies
En já, ég myndi frekar setja Firefox inná. Miklu skemmtilegri vafari en mozilla
Sent: Þri 06. Apr 2004 21:07
af ICM
MJJ það er ekki einusinni komið public alpha af longhorn svo ekki búast við því að þú getir notað það kerfi í annað en bara til að geta sagst hafa sett það upp... Frekar að setja upp server 2003 heldur en 2000 en hey þetta hljómar eins og þú sért að fara að setja upp pirated útgáfur svo ég ætla ekki að ráðleggja þér neitt.
Sent: Þri 06. Apr 2004 21:27
af MJJ
Nei IceCaveMan fæ real útgáfu hjá frænda mínum sem má setja upp í mörgum tölvum, er með xp frá honum og real cd-key, ég nenni ekki að vera með pirate dót þá er svo mikið vesen að uppfæra ef í ljós kemur galli í stýrikerfinu þegar maður fær sér eitthvað nýtt í tölvuna, á samt Longhorn pirate drasl en veit ekki hvort ég nenni að setja það upp og svo virkar það kannski ekki
Sent: Þri 06. Apr 2004 21:40
af ICM
þú hefur pottþétt gaman af því að setja upp longhorn en ekki búast við neinu miklu af því og ekki reyna að nota það fyrir aðal kerfi
Sent: Þri 06. Apr 2004 21:51
af MJJ
Held að það sé drasl enn sem komið er, maður fjárfestir í því þegar það kemur eftir fjöldan allan af árum, en hvernig er windows 2003 server ICECAVEMAN
Sent: Þri 06. Apr 2004 21:57
af Zaphod
XP er fínt kerfi þegar þú ert búinn að hreinsa aðeins til í því.
Sent: Mið 07. Apr 2004 09:58
af MJJ
Zaphod hverju á ég að henda og svona úr því seg mér
Sent: Mið 07. Apr 2004 10:31
af pyro
Hérna er vefur sem er sniðugur, og segir þér hvernig á að configga WinXP fyrir mismunandi tilgang kerfisins. Mæli með þessu fyrir alla.
http://www.blackviper.com/WinXP/servicecfg.htm
Sent: Mið 07. Apr 2004 12:41
af ICM
Síðan sem pyro benti á er nauðsinleg. síðan er:
http://www.kellys-korner-xp.com/xp.htm
http://members.lycos.co.uk/nirsoft1/ - Fullt af verkfærum sem óhreinka ekki einusinni registrýið hjá þér.
http://www.x-setup.net/ - Eitt besta ókeypis samansafnið af regystrí tvíkum sem komið hefur verið í mannamál.
Eiginlega verður að finna allt hjá sjálfum þér hvað
þú þarft.
Sent: Fim 08. Apr 2004 18:08
af galldur
"internet explorer skemmist alltaf þegar ég er búinn að hafa það inni í mánuð "
svarið er einfalt hættu að fikta .
Sent: Fim 08. Apr 2004 18:15
af MJJ
galldur maður lærir ekkert nema að fikta, svo er þín staða nú fiktari,,,
Sent: Fim 08. Apr 2004 18:54
af galldur
alveg rétt hjá þér. var aðeins of snöggur að senda svarið inn
ég lærði allt sjálfur á fikti....
það er bara svo mikið af fólki sem hefur ekki hundsvit á tölvum og kemur svo vælandi til manns með hana í viðgerð.
hin týpan er fólk sem kann slatta (eða veit allaf best) , venjulega eru vélarnar þeirra óstarfhæfar.....
Sent: Fim 08. Apr 2004 19:58
af MJJ
Amma keypti sér tölvu um daginn ég kenndi henni undirstöðuatriðin á internetinu og í windows og ritvinnslu, svo sagði ég henni bara að fikta og hún er búinn að gera það og ekkert komið upp ennþá. Amma gamla er búin að slá pabba mínum út í tölvukunnáttu
Sent: Fim 08. Apr 2004 20:27
af hubcaps
Fiktið er eina vitið, það er alltaf hægt að laga það sem fer úrskeiðis..
Lík saga og sú sem MJJ sagði, ég setti upp tölvu fyrir Afa og Ömmu fyrir tveimur árum síðan og sá gamli byrjaði á því að undrast á því hversu ótrúlega tæknilegt verkfæri músin væri (þurfti að kenna honum hvernig átti að nota hana)
Ég sagði þeim að þau gætu fiktað alveg einsog þau gætu því það myndi hvort eð er aldrei valda neinu alvarlegu (ekki einsog þau færu bara beint í registry-ið og léku sér að eyða hinu og þessu)
Tvö ár liðin, ekkert komið uppá. Setti up ADSL fyrir þau fyrir nokkrum mánuðum.... hafa bæði komist vel áfram bara á fiktinu (og smá ensku kunnáttu)
Um að gera fyrir alla að fikta sem mest því hvaða skaði gæti svosem hlotist af því ef einhver óvanur tölvum er að fikta, það er alltaf hægt að gera við þetta
Sent: Fim 08. Apr 2004 21:00
af Gandalf
Þar sem þessi þráður er byrjaður að snúast útí það að hreinsa til í Winxp og hvernig gera má windows betra vil ég benda á mjög gott forrit sem virkar vel í stað windows explorer. Forritið heitir Total Commander (gamla windows commander)
http://www.ghisler.com/. Er reyndar Shareware, en mæli með að þið prufið það allavega og kaupið það svo ef þið fílið það. GEÐVEIKT forrit. Gerir allt með lyklaborðinu = meiri hraði.
Sent: Fim 08. Apr 2004 21:21
af skipio
Gandalf skrifaði:Þar sem þessi þráður er byrjaður að snúast útí það að hreinsa til í Winxp og hvernig gera má windows betra vil ég benda á mjög gott forrit sem virkar vel í stað windows explorer. Forritið heitir Total Commander (gamla windows commander)
http://www.ghisler.com/. Er reyndar Shareware, en mæli með að þið prufið það allavega og kaupið það svo ef þið fílið það. GEÐVEIKT forrit. Gerir allt með lyklaborðinu = meiri hraði.
Minnir á gamla góða NC í DOS (Norton Commander). Það var mjög þægilegt í notkun.