Síða 1 af 2

Internet Explorer 9

Sent: Mið 16. Mar 2011 23:18
af Tiger
Sælir, hafið þið eitthvað prufað nýja Internet Explorer 9 sem kom út í loka útfgáfu núna fyrir stuttu?

Ég hef ekki fílað IE lengi lengi, en er búinn að lesa góða dóma um þennan nýja og á hann að hafa margt fram yfir Chrome og Firefex...... og eftir að hafa prufað í kvöld sletta þá er ég bara nokkuð sáttur.

Re: Internet Explorer 9

Sent: Mið 16. Mar 2011 23:19
af djvietice
Ég aldrei nota IE :crazy

Re: Internet Explorer 9

Sent: Mið 16. Mar 2011 23:27
af dori
Mér finnst leiðinlegt að ie9 styður ekki mjög flotta hluti í "html5" sem gerir html að virkilegu platformi fyrir forrit. Dæmi um það sem ég á við eru Web Sockets, Web Workers, File API, History Management (pushState etc.) sem er eitthvað sem allir hinir major vafrarnir styðja (m.a.s. sumir mobile vafrar). Opera er reyndar ekki með suma af þessum hlutum heldur.

Annars þá er alveg klárt mál að ie9 er flottur vafri. Viss galli að hann sé bara fyrir Vista/7 því að þetta þýðir að ie8 er orðinn nýji ie6 þar sem XP er ekkert að fara að hverfa á næstunni.

Re: Internet Explorer 9

Sent: Mið 16. Mar 2011 23:46
af KrissiK
prufaði það fyrst í gær eða fyrradag, tölvan min krassadi i dag og ég þurfti að gera system restore.. kominn aftur í Firefox 4 Beta 12 :) , samt er IE9 mjööög góður og þæginlegur uppá venjulega daglega notkun.

Re: Internet Explorer 9

Sent: Mið 16. Mar 2011 23:50
af Frost
http://www.youtube.com/watch?v=FzD6Mk7c ... ideo_title - Benchmark.

Chrome all the way og mun mögulega aldrei skipta :sleezyjoe

Re: Internet Explorer 9

Sent: Fim 17. Mar 2011 00:32
af addifreysi
Frost skrifaði:http://www.youtube.com/watch?v=FzD6Mk7cp-U&feature=channel_video_title - Benchmark.

Chrome all the way og mun mögulega aldrei skipta :sleezyjoe


Satt, eftir að ég byrjaði að nota Chrome hef ég ekki geta notað annað :happy

Re: Internet Explorer 9

Sent: Fim 17. Mar 2011 00:45
af intenz
Þó ég kjósi Chrome ætla ég mér nú að prófa IE9.

Re: Internet Explorer 9

Sent: Fim 17. Mar 2011 00:50
af Danni V8
Byrjaði að nota Chrome um daginn og notaði hann í ca 3 vikur og skipti síðan aftur í FireFox. Náði í FireFox RC1 og er að fíla hann í botn!

Chrome lagðist mjög vel í mig fyrst, allt virtist virka hraðar og betur í browsernum en síðan finnst mér þetta bara hafa verið placebo effect og á endanum fannst mér allt bara svo pirrandi við hann. T.d. að download koma neðst niðri í staðinn fyrir sér glugga, Ad Block var ekki að virka eins vel og í FireFox, Google Instant er ekki í Chrome. Bara svona smáatriði sem fara í taugarnar á mér en gera browserinn ekkert endilega verri. Bara hentar ekki fyrir mig.

Prófaði IE9 líka og líkaði bara nokkuð vel. Flott að getað dregið síður niður í taskbar og þá kemur sér icon fyrir síðuna sem er hægt að pinna niður og þegar maður opnar gegnum það shortcut verða back/forward takkarnir í sama lit og er áberandi á síðunni, t.d. appelsínugult fyrir Vaktina.

En ég á eflaust eftir að halda mig við FireFox. Líkar vel við nýja og er svo svakalega vanafastur :P

Re: Internet Explorer 9

Sent: Fim 17. Mar 2011 01:00
af Kobbmeister
Frost skrifaði:http://www.youtube.com/watch?v=FzD6Mk7cp-U&feature=channel_video_title - Benchmark.

Chrome all the way og mun mögulega aldrei skipta :sleezyjoe

Damnit, var að fara að posta þessu. Annars já, Chrome FTW!

Re: Internet Explorer 9

Sent: Fim 17. Mar 2011 07:49
af Matti21
http://people.mozilla.com/~prouget/ie9/

Sjálfur er ég með Firefox 4 RC og hann er svakalega góður. Mjög hraður og mjög stable. Það eina sem crashar af og til er flash og það er bara vegna þess að ég er á makka og makkinn og flash hafa aldrei spilað vel saman. Firefox 4 lætur mann þá bara vita og býður manni að refresha síðuna til þess að fá flash aftur í gang.
Það er bara eitthvað við Chrome sem ég fíla ekki. Finnst Firefox bara betur skipulagður einhvernvegin. Vill geta haft bookmarks með síðum sem ég skoða reglulega í sér toolbar efst og svo dýrka ég group tabs fítusinn í Firefox 4. Algjör snilld þegar maður er að skoða mikið af drasli í einu. App tabs er líka snilld ef maður er með eitthvað í gangi sem maður vill alls ekki loka.

Re: Internet Explorer 9

Sent: Fim 17. Mar 2011 10:36
af Zpand3x
Danni V8 skrifaði:... Google Instant er ekki í Chrome. ...

Júbb.. auðvitað setur google þetta í sinn eigin browser
http://www.google.com/instant/
Crome v5/6

Re: Internet Explorer 9

Sent: Fim 17. Mar 2011 17:46
af Blackened
Matti21 skrifaði:Vill geta haft bookmarks með síðum sem ég skoða reglulega í sér toolbar efst


það er nú reyndar möguleiki.. ferð bara í Tools - Always show bookmarks bar eða bara Ctrl+Shift+B

Re: Internet Explorer 9

Sent: Fim 17. Mar 2011 17:48
af dori
Matti21 skrifaði:http://people.mozilla.com/~prouget/ie9/

Sjálfur er ég með Firefox 4 RC og hann er svakalega góður. Mjög hraður og mjög stable. Það eina sem crashar af og til er flash og það er bara vegna þess að ég er á makka og makkinn og flash hafa aldrei spilað vel saman. Firefox 4 lætur mann þá bara vita og býður manni að refresha síðuna til þess að fá flash aftur í gang.
Það er bara eitthvað við Chrome sem ég fíla ekki. Finnst Firefox bara betur skipulagður einhvernvegin. Vill geta haft bookmarks með síðum sem ég skoða reglulega í sér toolbar efst og svo dýrka ég group tabs fítusinn í Firefox 4. Algjör snilld þegar maður er að skoða mikið af drasli í einu. App tabs er líka snilld ef maður er með eitthvað í gangi sem maður vill alls ekki loka.
Þú getur pinnað bookmark barinn efst í Chrome. Það sem þú kallar app tabs er líka til í Chrome (pin tab, þá opnast hann líka með vafranum).

Group tabs er held ég ekki mögulegt. Annars þá er ég ekki að gagnrýna það að þú fílir ekki Chrome, ég fann mig í honum (að hluta til vegna þess að IMHO er miiiklu betra að debugga javascript þar en í Firebug) en hann er auðvitað ekki allra.

Annars eru rökin sem MS menn koma með fyrir því að þeir nota bara prófin hjá W3C en ekki html5test (að þeir hafi gert þau mistök að fara ekki eftir stöðlum -> ie6) mjög léleg að mínu mati. Hlutir á vefnum eru staðlaðir eftir að þeir komast í notkun, ekki öfugt. Það er kannski leiðinlegt fyrir suma en það tryggir miklu hraðara flæði af nýjum möguleikum.

Re: Internet Explorer 9

Sent: Fim 17. Mar 2011 17:53
af vesley
Er að fýla IE9 . En finnst ég liggur við bara vera að nota google chrome. Sé ekki neinn merkilega mikinn mun.

Re: Internet Explorer 9

Sent: Fim 17. Mar 2011 18:51
af reyndeer
Nýja IE iconið er forljótt, hefðu átt að halda sig við gamla glassy dæmið :pjuke

Re: Internet Explorer 9

Sent: Fim 17. Mar 2011 19:05
af Black
ég ætlaði að fara installa honum en þá kom gígantískur listi yfir hluti sem ég þarf að loka til að geta haldið áframm.. ég hreinlega nenni því ekki 20 applications :thumbsd

Re: Internet Explorer 9

Sent: Fim 17. Mar 2011 19:16
af biturk
sé enga ástæðu til að yfirgefa chrome, besti browser sem hefur komið fyrr og síðar.

bvara það að dl gluggar fara beint niður í toolbar þar gerir hann unaðslegann, opnar aldrei neina popup, þurfti ekki að ná í sér adblocker einu sinni, crashar nánast aldrei sama hversu mörg töb ég er með.......

getur ekki fengið betri browser

Re: Internet Explorer 9

Sent: Fim 17. Mar 2011 19:16
af lukkuláki
Er Internet Explorer fan :) En IE9 var hörmulegt þegar ég prófaði það
var alltaf að lenda í síðum sem virkuðu asnalega eða hreinlega virkuðu ekki með IE9 þannig að ég fór til baka í 8
En Chrome er mjög góður nota hann líka.

Re: Internet Explorer 9

Sent: Fim 17. Mar 2011 19:19
af bulldog
Internet explorer sökkar svo einfalt er það.

Re: Internet Explorer 9

Sent: Fim 17. Mar 2011 19:59
af lukkuláki
bulldog skrifaði:Internet explorer sökkar svo einfalt er það.


Nei það er reyndar ekki svo einfalt.
Ég hef mjög oft lent í því að fólk kemur með tölvu í viðgerð og hún er stappfull af vírusum, spyware og rusli eftir torrent og limewire svo eitthvað sé nefnt.

Ferlið er oft svona.
"Ég var að nota Internet explorer en svo bara hætti hann bara að virka !
þá var mér sagt að nota Firefox og hann virkaði í 2 mánuði síðan hætti hann að virka.
Þá setti ég upp Chrome, Opera eða eitthvað annað og það gekk í x marga mánuði.

My point er það að þegar IE hætti að virka, þá var vélin þegar orðin sýkt af vírusum, spyware og þannig drasli sem þurfti að hreinsa og laga
en IE var stimplað drasl fyrir að virka ekki.
Ef Internet explorer virkar ekki þá er eitthvað að tölvunni sem þarf að laga það er ekki lausnin að setja bara annan og fleiri browsera í vélina nema þá skammtímalausn.
Svo er allt önnur saga með hraðamun á vöfrum og þessháttar þar er IE kannski ekki efst á blaði en IE 7 og 8 hefur virkað vel á öllum mínum vélum á mínu heimili og minna nánustu í áraraðir án nokkurra einustu vandræða.

Re: Internet Explorer 9

Sent: Fim 17. Mar 2011 20:19
af Black
:8) Jæa ég er að prufa þennan browser núna, ég er búinn að customize-a hann aðeins samt alveg einhvað sem pirrar mig, hér kemur listi:

nr.1# Fyrsta sem gerðist þegar ég fór inná facebook var "Do you want to make facebook your homepage".. Nei þegar ég fór inná facebook "Set Facebook as your home no!!

nr.2# Bookmarks bar er forljótur eða favourits eins og þetta heitir í IE

nr.3# Most popular gluggarnir það er ekki hægt að læsa þeim, ég væri til í að hafa vaktina alltaf þar og aðrar síður

nr.4# það er alltaf sama leiðinlega options draslið, hefur ekki breyst í mörg ár :uhh1

annars er þetta fínasti browser og ég ætla prufa hann nánar í kvöld og gefa honum séns, wish me luck :lol:

Re: Internet Explorer 9

Sent: Fim 17. Mar 2011 20:36
af SolidFeather
Internet Explorer?



---



















---































---












































---

















Mynd

Re: Internet Explorer 9

Sent: Fim 17. Mar 2011 21:08
af bulldog
fyrirgefðu .... ég meinti Internet EXPLOITER :money

Re: Internet Explorer 9

Sent: Fim 17. Mar 2011 21:29
af Frantic
IE er ekki drasl af því að hann hættir að virka hjá einhverri núbbaköku.
IE er drasl því hann þýðir html allt öðruvísi heldur en aðrir browserar.
MS halda að þeir séu það merkilegir að allir eigi að fylgja þeim í stöðlum. (AF HVERJU ÆTTI AÐ ÞURFA AÐ VERA COMPATIBILITY MODE Í BROWSER???? :mad )
IE er drasl því hann er alltof þungur í vinnslu, sem reyndar er að lagast núna.
IE er drasl þegar hann er miðaður við aðra vafra, sem er reyndar að lagast núna líka.

IE hefur bara alltaf verið lélegur.
Ég er búinn að prófa IE 9 og já thumbs up fyrir hraðamuninn. Chrome er samt betri, hreinlegri og fljótari. ;)

Re: Internet Explorer 9

Sent: Fim 17. Mar 2011 21:35
af dori
Black skrifaði:nr.4# það er alltaf sama leiðinlega options draslið, hefur ekki breyst í mörg ár :uhh1

Talandi um options. Shitt hvað Chrome er að rokka með nýju options síðurnar sínar.


JoiKulp skrifaði:IE er ekki drasl af því að hann hættir að virka hjá einhverri núbbaköku.
IE er drasl því hann þýðir html allt öðruvísi heldur en aðrir browserar.
MS halda að þeir séu það merkilegir að allir eigi að fylgja þeim í stöðlum. (AF HVERJU ÆTTI AÐ ÞURFA AÐ VERA COMPATIBILITY MODE Í BROWSER???? :mad )
IE er drasl því hann er alltof þungur í vinnslu, sem reyndar er að lagast núna.
IE er drasl þegar hann er miðaður við aðra vafra, sem er reyndar að lagast núna líka.

IE hefur bara alltaf verið lélegur.
Ég er búinn að prófa IE 9 og já thumbs up fyrir hraðamuninn. Chrome er samt betri, hreinlegri og fljótari. ;)

Þetta er bara rangt. IE 6 var eitt það besta sem hefur komið fyrir vefinn þó svo að hann hafi breyst í bölvun þegar fólk neitaði að uppfæra.

http://www.brucelawson.co.uk/2010/in-praise-of-ie6/