Datt í hug hvort einhver hérna veit hvað málið er.
En staðan er þessi að ég er með PC tölvu heima með Windows XP Pro. Svakalega fín vél og allt virkar 100% en það sem ég skil ekki alveg er að hún kveikir óreglulega á sér randomly. Maður vaknar kannski og þá er tölvan búin að kveikja á sér. Þetta er voðalega skrítið.
Getur það verið að það sé einhver stilling einhverstaðar í tölvunni sem lætur hana kveikja á sér á einhverjum tímapunkti? Þetta er vél sem ég setti saman sjálfur frá grunni og enginn búinn að vera í henni nema ég sjálfur. Eina sem mér dettur í hug hvort það geti verið að automatic updates kveiki á vélinni þegar hún á að tékka á uppfærslum. Því það er kveikt á automatic updates en ég hélt samt að þetta væri þannig að vélin kveikti ekki sjálf á sér ef það er slökkt á henni þegar hún á að athuga með uppfærslur.
Vélin virkar 100% og ekkert vesen á henni og er vírushreinsuð og ekkert óeðlilegt kemur í ljós við vírushreinsanir.
Einhverjar hugmyndir hvað ég gæti prufað að tékka á svo hún kveiki ekki á sér bara hvenær sem er?
Þetta er vél sem ég nota það lítið þannig mér finnst óþarfi að hún sé að kveikja á sér af einhverju sjálfstæði.
Bætt við:
Hún gerir þetta ekki á hverri einustu nóttu heldur nokkuð óreglulega en mér finnst eins og hún sé að þessu á nóttunni frekar en á daginn.
Tölva kveikir random á sér
-
Höfundur - Græningi
- Póstar: 43
- Skráði sig: Fim 25. Feb 2010 02:56
- Reputation: 0
- Staða: Ótengdur
Tölva kveikir random á sér
Síðast breytt af gunnarasgeir á Mið 09. Mar 2011 19:25, breytt samtals 1 sinni.
-
- Kóngur
- Póstar: 4431
- Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
- Reputation: 6
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Re: Tölva kveikir random á sér
er nokkuð þjófatengi á takkanum og leitt inn í næsta herbergi
annars er þetta örugglega stillingaratriði í power options í control panel
annars er þetta örugglega stillingaratriði í power options í control panel
ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!
Re: Tölva kveikir random á sér
mér datt strax í hug að á vélinn sé netkort sem styður wakeup lan
og það sé eitthvað að klikka og fær straum frá router sem kveikir á því
langsótt já en hugsanlegt
einnig er annað atriði sem ég mundi ath er að hvort að það sé vírus í tölvunni
*edit lagfærði stafsédningarvillú
og það sé eitthvað að klikka og fær straum frá router sem kveikir á því
langsótt já en hugsanlegt
einnig er annað atriði sem ég mundi ath er að hvort að það sé vírus í tölvunni
*edit lagfærði stafsédningarvillú
CIO með ofvirkni
Re: Tölva kveikir random á sér
Byrjar strax á því að athuga Wake on lan í bios og eh staðar í network stillingunum.