Síða 1 af 2

Aflgjafa líf + sjá hvað tölvan er góð ?

Sent: Sun 06. Mar 2011 19:01
af nerd0bot
Hvernig get ég séð hvað aflgafinn minn er að gefa mikkin straum og hvort hann sé að virka eða ekki, líka sjá hvort það sé álag á honum eða ekki.

Bætt Við: ég væri til að taka eithverja könnun sem fólk er að taka nú til dags og sjá hvað tölvan minn er góð.

Re: Aflgjafa líf

Sent: Sun 06. Mar 2011 19:08
af Arnarr
Tel að besta lausnin sé að redda sér ampertöng

Re: Aflgjafa líf

Sent: Sun 06. Mar 2011 19:16
af nerd0bot
Hvað er það verkfæri eða ?

Bætt við: vill helst ekki þurfa að kaupa neit.

Re: Aflgjafa líf

Sent: Sun 06. Mar 2011 19:36
af beggi90
nerd0bot skrifaði:Hvernig get ég séð hvað aflgafinn minn er að gefa mikkin straum og hvort hann sé að virka eða ekki, líka sjá hvort það sé álag á honum eða ekki.


Held að það væri best að nota psu tester í þetta en fyrst þú vilt ekki kaupa neitt...

Re: Aflgjafa líf

Sent: Sun 06. Mar 2011 19:54
af axyne
held þú sleppur aldrei með að nota einhvern búnað til að gera test á afgjafa.

Ef þú vild gera nákvæmt test þá Þarftu eitthvað fast load (viðnám) til að prófa hann með, stór viðnám sem þola a.m.k 200 W
Spennumælir og ampermælir (fjölsviðsmælir)

+þú þarft að vera nokkuð öruggur að þú vitir hvað þú ert að gera.

það er ekkert eh forrit til sem þú getur notað.

Re: Aflgjafa líf

Sent: Sun 06. Mar 2011 19:56
af nerd0bot
ég þarf ekkert svaka nákvæmt, vill bara sjá svona lægstu tölur hvernig hann er að virka, ætla að hafa aflgjafan í server.

Re: Aflgjafa líf

Sent: Sun 06. Mar 2011 20:00
af axyne
nerd0bot skrifaði:ég þarf ekkert svaka nákvæmt, vill bara sjá svona lægstu tölur hvernig hann er að virka, ætla að hafa aflgjafan í server.


þá er ekkert nema lesa á aflgjafann, ef það stendur ekkert á honum þá googla og lesa data sheet.....

Re: Aflgjafa líf

Sent: Sun 06. Mar 2011 20:01
af nerd0bot
þetta er þessi aflgjafi "LC-A300ATX"

Re: Aflgjafa líf

Sent: Sun 06. Mar 2011 20:22
af axyne
Mynd

Re: Aflgjafa líf

Sent: Sun 06. Mar 2011 20:30
af nerd0bot
Hérna var að taka mynd af þessu, þessar tölvur merkja því miður ekkert í minnum haus =S

Mynd

Re: Aflgjafa líf

Sent: Sun 06. Mar 2011 20:31
af dori
Ég er nokkuð viss um að sumir BIOSar gefi upplýsingar um "raunveruleg volt" sem PSUinn er að gefa frá sér á +3.3v, +5v, +12v (og einhver forrit sem geta lesið þetta, man ekki nógu vel samt).

Svo er hérna eitthvað um hvernig þú átt að prófa PSU.

Hvað er það annars sem þú ert að velta fyrir þér? Viltu vita hvort það sé að gefa rétt volt? Viltu vita hvort það sé að gefa nógu mörg amper fyrir einhvern vissan búnað sem þú ætlar að keyra?

Re: Aflgjafa líf

Sent: Sun 06. Mar 2011 20:34
af nerd0bot
ég vill vita hvort hann sé nálægt dauða eða ekki, er bara að spá í því, hvort sem er þessi tölvan sem ég er að gera á ekki að vera svakaleg, kassin er hér, er að reyna að gera bettri vindgang og gera hann flottari, mér leiðist líka.

Re: Aflgjafa líf

Sent: Sun 06. Mar 2011 20:51
af Daz
dori skrifaði:Ég er nokkuð viss um að sumir BIOSar gefi upplýsingar um "raunveruleg volt" sem PSUinn er að gefa frá sér á +3.3v, +5v, +12v (og einhver forrit sem geta lesið þetta, man ekki nógu vel samt).


Hef lesið að það séu einmitt frekar óáreiðanlegar tölur.

nerd0bot skrifaði:ég vill vita hvort hann sé nálægt dauða eða ekki, er bara að spá í því, hvort sem er þessi tölvan sem ég er að gera á ekki að vera svakaleg, kassin er hér, er að reyna að gera bettri vindgang og gera hann flottari, mér leiðist líka.

Verst lyktandi mod allra tíma?

Re: Aflgjafa líf

Sent: Sun 06. Mar 2011 20:53
af nerd0bot
Ég er að meina auka loftflæði =D

Re: Aflgjafa líf

Sent: Sun 06. Mar 2011 21:09
af Revenant
Ef þetta er "ódýr" aflgjafi þá sakar ekki að skoða inní hann og athuga hvort að rafvökvaþéttarnir séu bólgnir.

Ef þú ætlar hinsvegar að mæla aflgjafann og athuga hvort hann uppfylli örugglega ATX staðalinn þá þarftu að hafa góðan fjölmæli til að mæla tómgangsspennu (þ.e. spennu með engu álagi) og síðan spennu undir álagi (t.d. með prime95 í gangi EÐA tengja aflgjafnn við stilliviðnám) og athuga hvort spennan sé innan ±5%.

Re: Aflgjafa líf

Sent: Sun 06. Mar 2011 21:17
af nerd0bot
þetta er sko eldgamalt myndi ég segja, skal opna og taka mynd.


Mynd
Mynd
Mynd

Re: Aflgjafa líf

Sent: Sun 06. Mar 2011 23:00
af dori
Daz skrifaði:
dori skrifaði:Ég er nokkuð viss um að sumir BIOSar gefi upplýsingar um "raunveruleg volt" sem PSUinn er að gefa frá sér á +3.3v, +5v, +12v (og einhver forrit sem geta lesið þetta, man ekki nógu vel samt).

Hef lesið að það séu einmitt frekar óáreiðanlegar tölur.

Góður punktur... Ég man bara eftir að hafa séð þetta og datt í hug að benda á það :P Þá er það bara að rokka voltmælinn.

Re: Aflgjafa líf + sjá hvað tölvan er góð ?

Sent: Sun 06. Mar 2011 23:14
af nerd0bot
Revenant það eru komnar myndir að innan.

Re: Aflgjafa líf + sjá hvað tölvan er góð ?

Sent: Sun 06. Mar 2011 23:57
af chaplin
Passaðu þig þegar þú oppnar aflgjafa, vertu viss um að það sé engin straumur á honum og ekki snert neitt!

Re: Aflgjafa líf + sjá hvað tölvan er góð ?

Sent: Mán 07. Mar 2011 01:01
af dori
Passa sig ótrúlega vel á að snerta ekkert á þessu svæði þegar ef það er búið að vera í sambandi einhverntíma síðustu mánuði. Eða bara sleppa því að opna þetta/snerta þetta eins og daanielin segir.
psu.png
psu.png (717.12 KiB) Skoðað 2299 sinnum

Re: Aflgjafa líf + sjá hvað tölvan er góð ?

Sent: Mán 07. Mar 2011 06:50
af snaeji
hvað erum við að tala um mikið raflost ?

Re: Aflgjafa líf + sjá hvað tölvan er góð ?

Sent: Mán 07. Mar 2011 08:30
af nerd0bot
Takk fyrir ábendinguna, ég var ekki búinn að snerta neit og það er búið að vera slökkt á þessu aflgjafa í sirka viku ef ekki tvær.

Re: Aflgjafa líf + sjá hvað tölvan er góð ?

Sent: Mán 07. Mar 2011 08:31
af vesley
snaeji skrifaði:hvað erum við að tala um mikið raflost ?



Virkilega mikinn raflost. Þessi straumur gæti verið lífshættulegur.

Re: Aflgjafa líf + sjá hvað tölvan er góð ?

Sent: Mán 07. Mar 2011 08:54
af dori
nerd0bot skrifaði:Takk fyrir ábendinguna, ég var ekki búinn að snerta neit og það er búið að vera slökkt á þessu aflgjafa í sirka viku ef ekki tvær.

Það er yfirleitt talað um einhverja mánuði þannig að þessi gæti verið með bullandi hleðslu.

Re: Aflgjafa líf + sjá hvað tölvan er góð ?

Sent: Mán 07. Mar 2011 09:30
af nerd0bot
ok, ég tók bara lokið af tók myndir og sett það strax aftur á, er það ekki í lagi ?