Síða 1 af 1

Music | Searchit - Vefsíða

Sent: Mið 23. Feb 2011 13:53
af nonni95
Mér finnst þetta snilldar síða
=> http://www.musicsearchit.byethost13.com

Getur leitað að lögum/hljómsveitum og færist inná google þar sem þú færð niðurstöður úr "index" síðum. Það eru líka til fleiri svona síður. Endilega leggið álit ykkar á þetta.

Re: Music | Searchit - Vefsíða

Sent: Mið 23. Feb 2011 13:54
af ManiO
Djöfull er þetta dubious url.

Re: Music | Searchit - Vefsíða

Sent: Mið 23. Feb 2011 14:02
af nonni95
ManiO skrifaði:Djöfull er þetta dubious url.


Kannski virðist það þegar fólk lýtur á það en það er það ekki. Byethost býður uppá fríar vefhýsingar, http://www.byethost.com. Svo til að auka möguleikana á url-um þá eru þeir með byethost13, byethost24, byethost30 o.s.frv.

EDIT:
Mæli annars með þessum hýsingum hjá byethost, mjög góðar miðað við að vera fríar :)

Re: Music | Searchit - Vefsíða

Sent: Mið 23. Feb 2011 14:15
af Daz
nonni95 skrifaði:Mér finnst þetta snilldar síða
=> http://www.musicsearchit.byethost13.com

Getur leitað að lögum/hljómsveitum og færist inná google þar sem þú færð niðurstöður úr "index" síðum. Það eru líka til fleiri svona síður. Endilega leggið álit ykkar á þetta.

Þannig að þetta er annað url til að leita að hljómsveitum á google? Hvaða kosti hefur þessi síða fram yfir t.d. http://www.allmusic.com ?

Re: Music | Searchit - Vefsíða

Sent: Mið 23. Feb 2011 14:26
af einarhr

Re: Music | Searchit - Vefsíða

Sent: Mið 23. Feb 2011 14:30
af Frussi
Daz skrifaði:Þannig að þetta er annað url til að leita að hljómsveitum á google? Hvaða kosti hefur þessi síða fram yfir t.d. http://www.allmusic.com ?


Getur downloadað úr indexum

Re: Music | Searchit - Vefsíða

Sent: Mið 23. Feb 2011 14:51
af Daz
Eina sem hún gerir er að framkvæma ákveðna google leit. Ekkert sem ekki er hægt að gera beint á google.

Re: Music | Searchit - Vefsíða

Sent: Mið 23. Feb 2011 14:56
af dori
Viss þægindi raunar að geta slegið bara inn það sem þú ert að leita að og láta þetta um að fylla uppí leitardótið. Virkar samt frekar pointless fyrir mér. Ég sæi mun meiri not í userscript/browser extension sem myndi gera svona og leyfa þér t.d. að velja hvaða filetype þú ert að reyna að finna.