Síða 1 af 1

Kemst ekki í 100hz á Windows 7

Sent: Mið 09. Feb 2011 14:25
af Ingi90
Sælir Drengir

Jæja stend í smá böggi við tölvuna mína , Þar sem hún er frekar ný eða umþb. 3 Mánaðar gömul

Byrjaði með Xp & var auðvitað með 100Hz-120Hz

Svo ákvað ég að setja upp Windows 7 64-Bit , Vélin vinnur heví betur & allt það

En andskotans vesenið er að hún fer einungis uppí 85 Hz mér finnst það frekar spes þar sem ég er nú á túbu & svona

Þegar ég td. fer í Cs að dunda mér er með Launch Options í -freq 100 & ýmislegt fl.

en þá opnast leikurinn bara í Window , og strax ef ég hendi niðrí -freq 85 þá opnast að fullu

Veit einhver hér hvað vesenið er ? Ég kýs að vera í 100Hz þar sem mér finnst allt vera meira smooth & vinna hraðar

Kannski er það ég bara , Er ekki svo mikill tölvugúrú

Ég er búin að prufa Driverinn á disknum sem fylgdi vélinni & líka á Nvidia.com

Þetta er Nvidia GTX 460 Kort - 768 Mb

Afsakið Stafsetningarvillur ef þær eru margar.

MBK

Ingi

Re: Kemst ekki í 100hz á Windows 7

Sent: Mið 09. Feb 2011 14:32
af Daz

Re: Kemst ekki í 100hz á Windows 7

Sent: Mið 09. Feb 2011 14:45
af Ingi90
Daz skrifaði:http://hardforum.com/showthread.php?t=1391036 ?


Mikið hryllilega er ein lýsing þarna flókin
Verður góð spurning hvort maður geti þetta :shock:

Re: Kemst ekki í 100hz á Windows 7

Sent: Mið 09. Feb 2011 14:49
af Eiiki
Þú semsagt hægri smellir á desktopið og ferð í skjákorts properties, þar áttu að fara í manage custom resulutions og svo create custom resulution, þar í advanced og setja í manual.
Mynd
Hérna sérðu að ég númera frá 1-3 og svo þar sem stendur frefresh rate eða hjá mér stendur GDI refresh rate hækkaru bara upp í 100 :)

Re: Kemst ekki í 100hz á Windows 7

Sent: Mið 09. Feb 2011 14:59
af Ingi90
Eiiki skrifaði:Þú semsagt hægri smellir á desktopið og ferð í skjákorts properties, þar áttu að fara í manage custom resulutions og svo create custom resulution, þar í advanced og setja í manual.
Mynd
Hérna sérðu að ég númera frá 1-3 og svo þar sem stendur frefresh rate eða hjá mér stendur GDI refresh rate hækkaru bara upp í 100 :)


Mynd
Liggur smá bobbi þarna , ég get ekki farið inní neitt Manage Resulutions

Re: Kemst ekki í 100hz á Windows 7

Sent: Mið 09. Feb 2011 15:00
af KrissiK
ef þú ert með DVI tengi gerðu þá þetta... , set mynd í viðhengi. :idea:

Re: Kemst ekki í 100hz á Windows 7

Sent: Mið 09. Feb 2011 15:19
af Ingi90
Jæja fann þetta þurfti að fara pínu aðra leið

en er með bara 1152 x 864 næ sammt 100hz þar

Eini vandinn er núna canner , Neitar því ennþá

það verður eflaust að hafa sig held ég :dissed

Re: Kemst ekki í 100hz á Windows 7

Sent: Mið 09. Feb 2011 15:20
af KrissiK
sástu ekki það sem ég postaði eða? .. virkaði allavega fyrir mig og örugglega aðra á vaktinni. ;)

Re: Kemst ekki í 100hz á Windows 7

Sent: Mið 09. Feb 2011 15:47
af Ingi90
KrissiK skrifaði:sástu ekki það sem ég postaði eða? .. virkaði allavega fyrir mig og örugglega aðra á vaktinni. ;)


Ætla prufa þetta

Reyndar er einhvað fjandans millistykki , s.s

ég veit ekki nöfnin á tengjunum

en , þetta bláa kemur frá skjánum , í eitt hvítt sem fer í tölvuna

þannig á ég að taka af hvíta tenginu ? sem tengist í tölvuna sjálfa

Re: Kemst ekki í 100hz á Windows 7

Sent: Mið 09. Feb 2011 16:00
af birgirdavid
Þetta bláa tengi nefnist VGA tengi og hvíta tengið DVI, já þú tekur þessa pinna af hvíta tenginu :megasmile

Re: Kemst ekki í 100hz á Windows 7

Sent: Mið 09. Feb 2011 18:53
af KrissiK
Kuldabolinn skrifaði:Þetta bláa tengi nefnist VGA tengi og hvíta tengið DVI, já þú tekur þessa pinna af hvíta tenginu :megasmile

x2 , ég er með millistykki og það virkaði hjá mér :)

Re: Kemst ekki í 100hz á Windows 7

Sent: Mið 09. Feb 2011 18:54
af HelgzeN
ertu með réttar stillingar í launch options ?

Re: Kemst ekki í 100hz á Windows 7

Sent: Fim 10. Feb 2011 11:36
af Ingi90
Ég prufaði þetta með pinnana , Virkaði ekki hjá mér reyndar braut ég einn auka óvart :-"

Átti vara sem betur fer

En þetta eru Launch Options sem ég er með

-noforcemacce -noforcemparms -freq 100 -32bpp -high

Re: Kemst ekki í 100hz á Windows 7

Sent: Fim 10. Feb 2011 13:37
af MuGGz
Ertu búinn að taka hakið úr "hide modes that this monitos cannot display" ?? í monitor stillingunum ....

Þetta hefur virkað á öllum win7 vélum sem ég hef gert þetta


taka pinnana 2 úr millistykkinu, taka hakið úr og setja -freq 100 í launch option and voila, 100hz

Re: Kemst ekki í 100hz á Windows 7

Sent: Fim 10. Feb 2011 13:44
af Ingi90
MuGGz skrifaði:Ertu búinn að taka hakið úr "hide modes that this monitos cannot display" ?? í monitor stillingunum ....

Þetta hefur virkað á öllum win7 vélum sem ég hef gert þetta


taka pinnana 2 úr millistykkinu, taka hakið úr og setja -freq 100 í launch option and voila, 100hz


Náði að redda mér einhverju bráðabirgða , prufaði að brjóta úr Millistykkinu í gær , braut 3 óvart & volla enginn mynd á skjáinn

Haha , Þarf bara rúlla kaupa mér nýtt , til að eiga vara áður en ég prufa aftur

Er sammt í 1152x864 í 100hz núna

en ómögulega kemst ég í 100hz í Canner , Þarf bara redda þessu pinnadóti

Re: Kemst ekki í 100hz á Windows 7

Sent: Fös 11. Feb 2011 01:46
af Ingi90
Jæja Drengir

Þakka ykkur kærlega fyrir alla aðstoðina þetta bjargaðist á endanum

Tók vélina í gegn straujaði hana fór yfir hvert einasta detail , Setti driverinn af disknum upp

Skipti yfir í hitt tengið aftaná 2x alveg eins , Volla alltí einu get ég hoppað yfir 100hz Easy Stöff

Klárlega leitast eftir hjálp hér sammt aftur :)

Takk Takk

Re: Kemst ekki í 100hz á Windows 7

Sent: Fös 11. Feb 2011 01:58
af birgirdavid
Það er nú gott að þetta reddaðist :megasmile