Síða 1 af 1

Heimasíðugerð

Sent: Mið 19. Jan 2011 16:17
af isr
Sæl(ir) ég ætla að reyna gera heimasíðu,hef aldrei gert það áður,hvaða forrit er best að nota? þarf ég að redda mér leni áður en ég byrja eða er hægt að græja það eftir á.
Ég náði mér í Dreamweaver finnst það frekar flókið,var búinn að googla uppl um það en það voru milljón útgáfur af því hvernig ætti að nota það.
Eru einhverjar lausnir.

Re: Heimasíðugerð

Sent: Mið 19. Jan 2011 16:20
af GuðjónR
Í MacosX er forrit sem heitir iWeb, fáránlega einfalt.
Mig minnir að Microsoft Publisher sé einfalt forrit til að gera vefsíður líka.

Re: Heimasíðugerð

Sent: Mið 19. Jan 2011 16:22
af B.Ingimarsson
ef dreamweaver er of flókið þá er bara eiithvað einsog yola.com eða joomla (veit samt ekkert hvernig það virkar) kannski bluevoda
dreamweaver er samt mjög gott forrit, þú lærir á það með því að nota það

Re: Heimasíðugerð

Sent: Mið 19. Jan 2011 16:23
af Páll
bluevoda.com mjög einfalt..

Re: Heimasíðugerð

Sent: Mið 19. Jan 2011 16:56
af beatmaster
notepad

Re: Heimasíðugerð

Sent: Mið 19. Jan 2011 17:00
af zedro
beatmaster skrifaði:notepad

Notepad++
eða
SciTE

Ég notaði Htmlhelp.com mikið í denn en hún er kannski orðin soldið dated núna.

Svo fikta svaka mikið :D

HTML Structure skrifaði:

Kóði: Velja allt

<!DOCTYPE HTML PUBLIC "-//W3C//DTD HTML 4.01//EN"
        "http://www.w3.org/TR/html4/strict.dtd">
<HTML>
  <HEAD>
    <TITLE>The document title</TITLE>
  </HEAD>
  <BODY>
    <H1>Main heading</H1>
    <P>A paragraph.</P>
    <P>Another paragraph.</P>
    <UL>
      <LI>A list item.</LI>
      <LI>Another list item.</LI>
    </UL>
  </BODY>
</HTML>


Re: Heimasíðugerð

Sent: Mið 19. Jan 2011 17:15
af Haxdal
Ef þú veist ekkert um Heimasíðugerð en er alvara með að læra hana þá myndi ég sleppa öllu WYSIWYG dóti til að byrja með og fara í grunninn.

Mæli með Scite editornum, hann er open source og er með syntax highlighting. http://www.scintilla.org/SciTEDownload.html

W3Schools eru með góða tutorials um hina ýmsu þætti í heimasíðugerð. Svo er ótrulegt hvað hægt er að finna með hjálp Google :)
HTML : http://www.w3schools.com/html/html_intro.asp
CSS : http://www.w3schools.com/css/css_intro.asp
Javascript : http://www.w3schools.com/js/js_intro.asp

Þegar þú veist svona hvernig grunnurinn virkar þá geturðu farið að kíkja á "advanced" dót einsog Code Behind scripting og gagnagrunnstengingar og fleira skemmtilegt. En þú þarft að vera með heimasíðupláss á vefþjón til þess, eða setja upp IIS eða Apache vefþjón á vélina þína.
PHP : http://www.w3schools.com/php/php_intro.asp
ASP : http://www.w3schools.com/asp/asp_intro.asp
SQL : http://www.w3schools.com/sql/sql_intro.asp

Svo ef þú ert virkilega daring þá geturðu kíkt á að vefsíðugerð með C#, .Net eða Java.

Re: Heimasíðugerð

Sent: Mið 19. Jan 2011 17:48
af gardar

Re: Heimasíðugerð

Sent: Sun 23. Jan 2011 05:45
af dori
Zedro skrifaði:

Kóði: Velja allt

<!DOCTYPE HTML PUBLIC "-//W3C//DTD HTML 4.01//EN"
        "http://www.w3.org/TR/html4/strict.dtd">
<HTML>
  <HEAD>
    <TITLE>The document title</TITLE>
  </HEAD>
  <BODY>
    <H1>Main heading</H1>
    <P>A paragraph.</P>
    <P>Another paragraph.</P>
    <UL>
      <LI>A list item.</LI>
      <LI>Another list item.</LI>
    </UL>
  </BODY>
</HTML>


[-X pff... get with the program, html5 er málið :P (þó að það sé að verða meira buzz en ajax var fyrir nokkrum árum)... hérna er hægt að ná í basic html5 project: http://html5boilerplate.com/

En í fullu alvöru og beint til höfundar þessa þráðar þá er sú síða sem mér finnst vera hvað best til að læra htmldog. w3schools dettur svosem inn þegar ég er að leita að reference fyrir vissa hluti og er alveg gagnlegt en það er eitthvað við það batterí sem böggar mig. Á htmldog er uppbygging html kóða útskýrð mjög vel og þú færð fína kennslu í css. Þegar þú ert kominn með þetta á hreint þá er sniðugt að fara að skoða hvað þú getur gert með javascript og html5. Ég mæli bókinni eftir þennan til að læra javascript (það er líka fullt af góðu efni á síðunni hans) og með þessari hérna til að læra html5. Ég á þessar bækur og get vottað fyrir þær, ef þú vilt alls ekki kaupa góðar bækur og styrja alvöru kennslu á þessu sviði þá gætu þær leynst einhversstaðar á netinu *hint hint*.

Re: Heimasíðugerð

Sent: Sun 23. Jan 2011 11:36
af beatmaster
Mig hafði alltaf langað til að læra inná heimasíðugerð, ég hafði gert eina heimasíðu með BlueVoda en gerði mér alveg grein fyrir því að ég var ekki að læra neitt inná html með því

Svo hafði ég lesið mikið um html for beginners og html tutorials o.s.frv en gafst alltaf strax upp og fannst mér ekki vera að skilja þetta

Svo fann ég þennann tutorial frá htmldog og það opnaði loks augu mín fyrir html og hvernig það virkar, þetta er að mínu mati langbesta byrjunin til að skoða html af einhverju viti, svo er restin bara æfing og að bæta við sig advanced þekkingu þegar að skilningurinn leyfir :happy

Re: Heimasíðugerð

Sent: Þri 15. Feb 2011 15:46
af snaeji
Er ekki hægt að nota eitthvað einfalt forrit og nálgast einhver frí template eða eitthvað í þá áttina sem maður getur breytt og sett síðan inn gögn ?

Þarf þetta eingöngu sem smá viðmót fyrir skjöl, texta og mögulega eitthvað af myndböndum.

Re: Heimasíðugerð

Sent: Þri 15. Feb 2011 16:09
af gardar
snaeji skrifaði:Er ekki hægt að nota eitthvað einfalt forrit og nálgast einhver frí template eða eitthvað í þá áttina sem maður getur breytt og sett síðan inn gögn ?

Þarf þetta eingöngu sem smá viðmót fyrir skjöl, texta og mögulega eitthvað af myndböndum.



Mæli með því að nota tilbúin frí CMS til dæmis http://xoops.org/ eða http://www.joomla.org/

Þú getur svo fengið alls kyns útlit á þessi kerfi, eða búið til þitt eigið.

Re: Heimasíðugerð

Sent: Þri 15. Feb 2011 21:19
af snaeji
Þakka hjálpina :megasmile