Síða 1 af 1
Besta lyklaborðið (og mús) fyrir forritara
Sent: Mið 12. Jan 2011 09:57
af starionturbo
Sælir strákar (og stúlkur).
Ég hef verið að velta fyrir mér nokkrum átriðum varðandi keyboard/mouse setup í vinnunni.
Maður er svo oft að spara þegar kemur að ýmsum hlutum, en afhverju að vera spara þegar kemur að því að kaupa tæki sem þú notar 8 klukkustundir á dag, 5 daga vikunnar, getur látið þig vinna hraðar og þæginlegra.
Nokkrar kröfur, lyklaborðið þarf að vera með almost íslensku layouti. þeas. hafa forritara takkann á milli Shift og Z. Ekki væri verra ef það væri stór Enter takki.
Músin þyrfti einungis að vera með þæginlegu gripi.
Ég var að pæla í Razer Lycosa lyklaborði, en það er ekki með forritara takkanum.
Ég var einnig að pæla í Razer Lachesis mús, en hún virðist vera fín.
Hvað finnst ykkur ?
Re: Besta lyklaborðið (og mús) fyrir forritara
Sent: Mið 12. Jan 2011 10:12
af gardar
Re: Besta lyklaborðið (og mús) fyrir forritara
Sent: Mið 12. Jan 2011 11:12
af Black
Logitech G15 v1, Síðan einhverja þægilega mús, myndi ekki fara útí að kaupa "gaming" mouse fyrir "daily" stuff
Re: Besta lyklaborðið (og mús) fyrir forritara
Sent: Mið 12. Jan 2011 11:32
af Daz
Ég get ekki séð að þetta Rassa lyklaborð sé eitthvað betra en 500 kr qwerty borð sem hægt er að kaupa í rúmfatalagerinum. Þ.e.a.s ef þú ert að hugsa um að slá mikinn kóða inn á það.
Ég þekki menn sem eru mjög hrifnir af
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=1239 einhverjum svona borðum, ég hef aðeins prófað það sjálfur og get ímyndað mér að þegar maður hefur vanist því sé það mjög þægilegt.
(Ég er sjálfur bara með eitthvað gamalt random borð, þarf eiginlega að fara að skipta...)
Re: Besta lyklaborðið (og mús) fyrir forritara
Sent: Mið 12. Jan 2011 11:36
af tdog
Birkir, Tómas hérna. Apple lyklaborðin eru langþægilegust að mínu mati. Hef prufað þó nokkur. Þau eru með <>| takkanum á milli shift og zunnar og svo er á þeim stór enter takki. Það er líka mjög þægilegt að skrifa á þau.
Re: Besta lyklaborðið (og mús) fyrir forritara
Sent: Mið 12. Jan 2011 11:51
af Daz
Ég rölti og kíkti á einn sem er með svona microsoft ergonomic lyklaborð, það er með |<> takka, en reyndar mjóum enter takka. (hann tekur 2 rows, en er mjórri en hefðbundinn takki). Virðist vera til mörg takkalayout af þessu, þetta er með dönskum tökkum sýnist mér.
Re: Besta lyklaborðið (og mús) fyrir forritara
Sent: Mið 12. Jan 2011 12:00
af k0fuz
Það er reyndar ekki selt lengur lyklaborðið sem ég ætlaði að benda á en það er nákvæmlega eins og þetta:
http://buy.is/product.php?id_product=1692 nema bara ekki með mús og ekki þráðlaust.
Það er mjög gott, en ef þér lýst vel á þráðlaust og þessa mús, þá mæli ég með þessu lyklaborði
mjög þægilegt eftir að þú venst "wave-inu" í lyklaborðinu (takkarnir aðeins öðruvísi.)
Lýtur reyndar út fyrir að á þessu borði sem ég linkaði að það sé ekki þessi forritara takki en hann er á mínu borði, samt nákvæmlega eins að öðru leyti.
Re: Besta lyklaborðið (og mús) fyrir forritara
Sent: Mið 12. Jan 2011 12:11
af coldcut
gardar skrifaði:http://www.kinesis-ergo.com/Merchant2/merchant.mvc?Screen=PROD&Product_Code=KB500USBQD-blk&Category_Code=CKBDUSB
/thread
nuff said!
Re: Besta lyklaborðið (og mús) fyrir forritara
Sent: Fim 13. Jan 2011 10:42
af starionturbo
Góðar tillögur í gangi hérna
Ég er að velta fyrir mér að fara í Logitech Wave lyklaborðið, með þráð.
Ég er núna með Lenovo lyklaborð sem fylgdi IBM i5 vinnuvélinni minni og Lenovo mús bara líka.
Ég fer pottþétt í Razer músina, en hvaða lyklaborð verði fyrir valinu er enn stór spurning.
Re: Besta lyklaborðið (og mús) fyrir forritara
Sent: Fim 13. Jan 2011 10:59
af Haxdal
Microsoft Ergonomic lyklaborðin eru einfaldlega best þegar kemur að því að sitja öllum tímum að pikka á lyklaborð.
Mæli svo með Microsoft Natural Wireless Laser Mouse 6000 ergonomic músinni.
Svona ef þér er annt um úlnliðina á þér.
Re: Besta lyklaborðið (og mús) fyrir forritara
Sent: Fim 13. Jan 2011 11:20
af GrimurD
Ég var að nota þetta
hér í að forrita í fyrra þar til að ég eyðilagði það með því að hella mjólk yfir það. Alveg frábært lyklaborð. Er alltaf að bíða eftir því sjálfur að það komi svona ergonomic lyklaborð með baklýstum tökkum og bluetooth. En það virðist ekki vera nægur markaður til þess að framleiða það. Til endalaust mikið af þessum useless gaming lyklaborðum en lítið af svona þægilegum ergonomic lyklaborðum.
Re: Besta lyklaborðið (og mús) fyrir forritara
Sent: Fim 13. Jan 2011 11:21
af coldcut
Haxdal skrifaði:Microsoft Ergonomic lyklaborðin eru einfaldlega best þegar kemur að því að sitja öllum tímum að pikka á lyklaborð.
Mæli svo með Microsoft Natural Wireless Laser Mouse 6000 ergonomic músinni.
Svona ef þér er annt um úlnliðina á þér.
Nei kallinn minn...Kinesis-ergo borðin eru langbest þegar kemur að því að sitja öllum tímum að pikka á lyklaborð. Ekki bara mín skoðun heldur allra reviewa sem ég hef lesið um ergonomic lyklaborð og þau eru ekki fá!
Besta mús...ergonomic mús. Trackball jafnvel (Logitech trackman t.d.).
Annars eitt...skil ekki af hverju þú vilt hafa hornklofatakkana á milli shitf og z. Það er svo miklu þægilegra að forrita með US-layout á lyklaborðinu að það er ekki fyndið. Þannig að íslenskt layout finnst mér ókostur, en það er bara ég (og margir aðrir).
Re: Besta lyklaborðið (og mús) fyrir forritara
Sent: Fim 13. Jan 2011 11:39
af Haxdal
coldcut skrifaði: Nei kallinn minn...Kinesis-ergo borðin eru langbest þegar kemur að því að sitja öllum tímum að pikka á lyklaborð.
Eflaust, ef maður vill eyða 325$ + tollum og vörugjöldum og sendingarkostnaði í lyklaborð. Ég vissi ekki einu sinni af þessu lyklaborði áður en ég las þennan þráð og fyrir minn smekk er ég ekki tilbúinn að eyða svona geðveikri upphæð í lyklaborð.
coldcut skrifaði: Trackball jafnvel (Logitech trackman t.d.).
Trackballs eru já bestu mýsnar ef maður er þegar með ónýta úlnliði, ég hef prófað trackballs og þótt það var fínt fyrir úlnliðinn þá var ég ekki ánægður með að það vantar back/forward takka og omniscrollwheel sem hægir alltof mikið á mér. Ég tek nothæfni framyfir trackballs any time þar sem ég er ekki ennþá búinn að eyðileggja á mér úlnliðina.
Re: Besta lyklaborðið (og mús) fyrir forritara
Sent: Fim 13. Jan 2011 11:49
af coldcut
Haxdal skrifaði:Trackballs eru já bestu mýsnar ef maður er þegar með ónýta úlnliði, ég hef prófað trackballs og þótt það var fínt fyrir úlnliðinn þá var ég ekki ánægður með að það vantar back/forward takka og omniscrollwheel sem hægir alltof mikið á mér. Ég tek nothæfni framyfir trackballs any time þar sem ég er ekki ennþá búinn að eyðileggja á mér úlnliðina.
Fáránlega þægileg mús!
Re: Besta lyklaborðið (og mús) fyrir forritara
Sent: Fim 13. Jan 2011 11:55
af Daz
Haxdal skrifaði:coldcut skrifaði: Trackball jafnvel (Logitech trackman t.d.).
Trackballs eru já bestu mýsnar ef maður er þegar með ónýta úlnliði, ég hef prófað trackballs og þótt það var fínt fyrir úlnliðinn þá var ég ekki ánægður með að það vantar back/forward takka og omniscrollwheel sem hægir alltof mikið á mér. Ég tek nothæfni framyfir trackballs any time þar sem ég er ekki ennþá búinn að eyðileggja á mér úlnliðina.
Trackballs geta alveg haft back-forward og scroll wheel. T.d.
Logitech Wireless Trackball M570
Re: Besta lyklaborðið (og mús) fyrir forritara
Sent: Fim 13. Jan 2011 12:01
af Haxdal
ég prófaði bara svona
Re: Besta lyklaborðið (og mús) fyrir forritara
Sent: Fim 13. Jan 2011 12:09
af gardar
Haxdal skrifaði:coldcut skrifaði: Nei kallinn minn...Kinesis-ergo borðin eru langbest þegar kemur að því að sitja öllum tímum að pikka á lyklaborð.
Eflaust, ef maður vill eyða 325$ + tollum og vörugjöldum og sendingarkostnaði í lyklaborð. Ég vissi ekki einu sinni af þessu lyklaborði áður en ég las þennan þráð og fyrir minn smekk er ég ekki tilbúinn að eyða svona geðveikri upphæð í lyklaborð.
Ef líf þitt snýst um að hamra á lyklaborð þá er það vel réttlætanlegt að eyða þokkalegum upphæðum í ágætt borð.
Ég stefni sjálfur á kinesis borð og dvorak í náinni framtíð.
Re: Besta lyklaborðið (og mús) fyrir forritara
Sent: Fim 13. Jan 2011 12:42
af SteiniP
ég er sjálfur með logitech media lyklaborð sem ég fékk á 3000 kall 2005.
Nota það alltaf þegar ég þarf að pikka mikið í staðinn fyrir g15 borðið.
Hef líka aðeins verið að spá í að fá mér mechanical lyklaborð, á víst að vera gott að pikka á þau.