Síða 1 af 1

toshipa satellite ofhitnar

Sent: Mán 20. Des 2010 22:30
af jardel
er með toshipa satellite l500 1v1 er ekki búinn að eiga hann í ár mál með vexti að hún er farinn að hita svo svakalega er einhver hérna sem gæti gefið mér eithvað ráð við því að verður hún alltaf svona bara

Re: toshipa satellite ofhitnar

Sent: Mán 20. Des 2010 22:45
af jardel
einhver sem veit eithvað um þetta :catgotmyballs

Re: toshipa satellite ofhitnar

Sent: Mán 20. Des 2010 22:47
af Páll
Taktu hana í sundur og fjarlægðu rykið sem að stíflar opið að viftunni.

Re: toshipa satellite ofhitnar

Sent: Mán 20. Des 2010 22:55
af GuðjónR
Þú gætir verið með vírus/spyware, svoleiðis forrit setja cpu oft í botn með tilheyrandi viftlulátum og hita.
Gætir byrjað á því að setja windows upp á nýtt.

Re: toshipa satellite ofhitnar

Sent: Lau 25. Des 2010 19:21
af jardel
Engar fleiri hugmyndir?

Re: toshipa satellite ofhitnar

Sent: Lau 25. Des 2010 19:26
af hauksinick
Kannski er þetta afþví að þú skrifar "Toshiba" "Toshipa" :roll: :happy

Re: toshipa satellite ofhitnar

Sent: Lau 25. Des 2010 19:30
af jardel
hvað halið þið að sé málið leiðinlegt að kaupa svona dýra tölvu síðan er ekki hæg að vera i henni fyrir hita

Re: toshipa satellite ofhitnar

Sent: Lau 25. Des 2010 19:39
af zdndz
eins og hefur verið sagt hérna, þá getur það verið ryk hafi safnast upp í tölvunni og/eða vírus sem er að bögga,

getur checkað hitann á tölvunni, t.d. með forritinu HWMonitor og farið síðan á heimasíðu framleiðandans og séð þá hvað hitinn má fara hátt, sem sagt hvort hitinn er fyrir ofan viðmiðunarmörkum

Re: toshipa satellite ofhitnar

Sent: Lau 25. Des 2010 19:51
af lukkuláki
Hún er alveg örugglega bara mökkfull af ryki
Það er ótrúlegt hvað það er fljótt að safnast saman og verða að "rykvegg" þannig að viftan er
alltaf í botni og vélin að reyna að kæla sig en ekkert gengur þannig að hún slekkur á sér í ákv. hitastigi frekar en að eyðileggja vélbúnaðinn.

Stundum er ekkert stórmál að komast að viftunni til að hreinsa þetta en ég mæli ekki með því að þú farir að rífa hana sjálfur nema þú kunnir til verka.

Re: toshipa satellite ofhitnar

Sent: Lau 25. Des 2010 19:53
af jardel
en varðandi virusinn ég hef verið að nota avast vírusvörnina hún finnur nú engan vírus hjá mér, reyndar pirate virusvörn engu að síður

Re: toshipa satellite ofhitnar

Sent: Lau 25. Des 2010 20:37
af jardel
?

Re: toshipa satellite ofhitnar

Sent: Lau 25. Des 2010 20:39
af biturk
þetta er ryk, tjekkaðu á því áður en þú gerir annað, skiptir engu þó vírusvörnin sé pirate, sama software engu að síður

ég er 100% á því að þetta er ryk svo að viftan nær ekki að kæla, láttu rykhreinsa hana áður en þú skemmir eitthvað