Síða 1 af 1

hvaða wireless kubbur er bestur

Sent: Mán 13. Des 2010 21:30
af darkppl
daginn/kvöldið ég var að leita að ódýrum en góðum usb wireless net kubbi. vitið þið um einhverja :)

Re: hvaða wireless kubbur er bestur

Sent: Mán 13. Des 2010 21:35
af Lexxinn
Fengum 11mb/s með þessum um daginn

http://www.att.is/product_info.php?cPat ... 6337437a5b

Re: hvaða wireless kubbur er bestur

Sent: Mán 13. Des 2010 23:36
af darkppl
takk fyrir en er hann góður fyrir leikjaspilun

Re: hvaða wireless kubbur er bestur

Sent: Mán 13. Des 2010 23:39
af AntiTrust
Afhverju ekki að notast frekar við PoE ef ætlunin er leikjaspilun?

Re: hvaða wireless kubbur er bestur

Sent: Þri 14. Des 2010 01:00
af Klemmi
AntiTrust skrifaði:Afhverju ekki að notast frekar við PoE ef ætlunin er leikjaspilun?


Kaldhæðni?

Re: hvaða wireless kubbur er bestur

Sent: Þri 14. Des 2010 01:07
af AntiTrust
Klemmi skrifaði:
AntiTrust skrifaði:Afhverju ekki að notast frekar við PoE ef ætlunin er leikjaspilun?


Kaldhæðni?


Nei, reyndar ekki. Viðurkenni þó fúslega að af öllu því sem ég geri í tölvum er leikjaspilun og þá sérstaklega online spilun í seinasta sæti by far. Hefði þó haldið að með góðu 200Mbps PoE kitti og fínum lögnum ætti það að vera talsvert stabílla en 802.11b/g á venjulegi heimili með nokkra veggi á milli.

En ég gæti haft kolrangt fyrir mér, þekki ekki gaming over WiFi vs. PoE, veit bara að media streaming er talsvert stöðugra.

Re: hvaða wireless kubbur er bestur

Sent: Þri 14. Des 2010 01:23
af Klemmi
Held þú sért að rugla samt til að byrja með saman PoE við EoP :)

En að öðru leiti að þá hélt ég að svartíminn væri ekki neitt frábær með EoP tengingu en að sama skapi gæti ég verið að tala tóma tjöru. Varðandi stream er það hins vegar allt annað mál, þ.e.a.s. svartími skiptir litlu máli í stream þar sem það byggir yfirleitt að einhverju leiti á buffer á meðan leikjaspilun gæti ekki gengið upp á þann hátt. S.s. svo lengi sem sambandið er stöðugt, þá ertu í góðum málum með stream þó svo að svartíminn sé ekki merkilegur :)

Væri reyndar gaman að heyra frá einhverjum sem hefur reynslu af WiFi vs. EoP í leikjaspilun, ekki verra að geta þá mælt með eða á móti breytingum fyrir þá sem eru með þráðlaust en vilja betri svartíma :beer

EDIT: en það er að sjálfsögðu allt betra en wifi í gegnum marga og þykka veggi ;)

Re: hvaða wireless kubbur er bestur

Sent: Þri 14. Des 2010 13:25
af darkppl