Síða 1 af 1

wireless lan speed 1 mb/ps

Sent: Fös 10. Des 2010 03:12
af heisi
Sælt verið liðið

Heyriði er með tvær tölvur í íbúðinni minni tengdar þráðlaust á netið. Hef verið með þráðlaust net í allan vetur og hefur það virkað mjög vel þangað til nú. Ég fæ gríðarlega stóra laggkippi og oft marga í einu sem endast í svolítið langan tíma. Þetta gerist eiginlega aðeins ef ég er að nota netið mikið.

Þegar ég fæ þessa laggkippi þá virðist það stafa af speed þegar ég fer með örina yfir netið. Þetta á við báðar tölvur en netið byrjar í 48-54 mb/ps og fellur svo niður í 1. Þegar í 1 er komið þá verður netið allsvaðalega hægt og glatað!

Veit einhver ráð við þessum andskotans vanda?

Re: wireless lan speed 1 mb/ps

Sent: Fös 10. Des 2010 23:33
af johnnyb
gæti verið að nágranni þinn hafi verið að fá sér nýjan router og hann er á sömu rás

en þú getur prófað að skipta um rás á routernum

annars eru svona routerar voðalegt drasl og endast ekki mörg árinn þannig að þinn gæti líka farinn að verða þreyttur

Re: wireless lan speed 1 mb/ps

Sent: Fös 10. Des 2010 23:38
af AntiTrust
Fáðu þér e-rn Wifi Analyser og skoðaðu hvort að netið hjá þér sé að skerast á við e-r önnur þráðlaust net, þá á ég við rásir/tíðnir eins og johnnyb benti þér á.

Finnst reyndar ólíklegt að hraðinn droppi svona hrikalega niður.