Síða 1 af 1
Windows Azure (Er þetta framtíðin?)
Sent: Mið 08. Des 2010 02:24
af Hjaltiatla
Rakst á þessa grein og fannst hún mjög áhugaverð.
http://blogs.msdn.com/b/isdev/archive/2008/10/29/microsoft-kynnir-azure.aspxEruð þið eitthvað búnin að heyra af Windows Azure?
Væri til að heyra frá ykkur ef þið hafið eitthverjar upplýsingar sem ekki koma fram í þessari grein.
Allavegana commentið um þetta ef þið hafið eitthvað til málanna að leggja
Re: Windows Azure (Er þetta framtíðin?)
Sent: Mið 08. Des 2010 02:32
af Eiiki
Glæsilegt að sjá að þeir séu komnir með cloud inní stýrikerfisbransann, aldrei aftur að vesenast með galla og annað slíkt(windows VISTA) bara þetta uppfærir sig sjálfkrafa. Loksins hafa þeir áttað sig á því að þeir séu nógu stórir og miklir og veltan það góð að þeir þurfa ekki að vera að hanna og selja nýtt (og gallað) stýrikerfi á 3 ára fresti.
Re: Windows Azure (Er þetta framtíðin?)
Sent: Mið 08. Des 2010 02:36
af coldcut
A little late to the party are we?
Chrome OS anyone?
Re: Windows Azure (Er þetta framtíðin?)
Sent: Mið 08. Des 2010 02:57
af Hjaltiatla
coldcut Skrifaði:
A little late to the party are we?
Chrome OS anyone?
hehe
Samkeppni er bara af hinu góða.
Hef reyndar ekki prófað Chrome os.Er það að reynast vel??
Re: Windows Azure (Er þetta framtíðin?)
Sent: Mið 08. Des 2010 03:10
af Viktor
Þessi grein er nú frá því í október 2008
Re: Windows Azure (Er þetta framtíðin?)
Sent: Mið 08. Des 2010 03:20
af Hjaltiatla
Sallarólegur Skrifaði:
Þessi grein er nú frá því í október 2008
Jámm reyndar.
Er ekki að tala um þann hluta endilega,Bara er að afla mér upplýsinga ef fólk veit meir en ég.
Af því sem ég hef skoðað þá finnst mér þetta vera sniðugt.
Re: Windows Azure (Er þetta framtíðin?)
Sent: Mið 08. Des 2010 12:42
af dori
coldcut skrifaði:A little late to the party are we?
Chrome OS anyone?
Mér gæti skjátlast en ég held að Azure sé meira eins og Amazon EC2 (líkist Google App Engine meira en Chrome OS).
http://www.microsoft.com/windowsazure/
Re: Windows Azure (Er þetta framtíðin?)
Sent: Mið 08. Des 2010 13:45
af Hjaltiatla
dori Skrifaði:
Mér gæti skjátlast en ég held að Azure sé meira eins og Amazon EC2 (líkist Google App Engine meira en Chrome OS).
Er sammála þér með það. Finnst Windows Azure ekki vera með sömu áherslur og Chrome Os.
Re: Windows Azure (Er þetta framtíðin?)
Sent: Mið 08. Des 2010 14:34
af dori
Hjaltiatla skrifaði:Er sammála þér með það. Finnst Windows Azure ekki vera með sömu áherslur og Chrome Os.
Það sem ég ætlaði að reyna að koma frá mér tókst kannski ekki. Azure er server hugbúnaður. Chrome OS er hannað til að vera einfalt notendakerfi.
Þetta er ekki eins og að bera saman Mac og Windows. Meira í áttina að því að bera saman burðarþunga flutningaskips og segway. Algjörlega gagnslaust.
Re: Windows Azure (Er þetta framtíðin?)
Sent: Mið 08. Des 2010 14:38
af Hjaltiatla
dori skrifaði:
Það sem ég ætlaði að reyna að koma frá mér tókst kannski ekki. Azure er server hugbúnaður. Chrome OS er hannað til að vera einfalt notendakerfi.
Þetta er ekki eins og að bera saman Mac og Windows. Meira í áttina að því að bera saman burðarþunga flutningaskips og segway. Algjörlega gagnslaust.
Hehe ég var allveg að fatta hvað þú varst að fara hins vegar.Eina sem er sambærilegt við þessi kerfi er að það er stuðst við cloud computing í báðum þeirra.
Re: Windows Azure (Er þetta framtíðin?)
Sent: Mið 08. Des 2010 15:08
af coldcut
þá biðst ég afsökunar á að hafa komið með þetta innlegg...nenni bara ómögulega að lesa e-ð um Microsoft nema það sé banter!
sé núna að ég hefði bara átt að sleppa þessu...
Re: Windows Azure (Er þetta framtíðin?)
Sent: Mið 08. Des 2010 15:41
af Hjaltiatla
Haha no hard feelings hérna meginn allavegana