Síða 1 af 1
Er vandamál á ADSL tengingum Símans?
Sent: Fös 19. Nóv 2010 10:18
af Krissinn
Hef lesið nokkra þræði hér sem lýsa sama vandamálinu í flestum tilfellum og er það varðandi lélegt netsamband eða ADSL netsamband á Internetþjónustu Símans. Í 2 daga hefur internetið hjá mér verið mjög lélegt, er með Speedtouch 585 V6 router frá Símanum og áskriftarleiðin er 16m/s 120 GB erl. niðurhal og þessa 2 daga hefur netið einmitt dottið svona út eða tölvan verið mjög lengi að koma sér inná síður og í mörgum tilfellum komið að vafrinn fann ekki þá síðu sem hefur kannski komið upp og dottið svo niður eftir nokkrar sec. Eins og í gær þá átti ég í vandræðum með að komast í samband við netsamtalið á Póstinum. Hef endurræst routerinn oft og er búinn að keyra einhverja uppfærslu af vefnum hjá Símanum en yfirleitt duga þessar endurræsingar stutt og allt fer í sama horf. Ég er einnig með 2 myndlykla frá Símanum en það er alltaf slökkt á öðrum þeirra þegar hann er ekki í notkun og sama gildir um hinn nema það er kannski oftar kveikt á honum. Ég er auk þess með 4 tölvur en núna eru þær reyndar 5, 2 borðtölvur og 3 fartölvur. Og sama vandamálið virðist vera í þeim öllum varðandi netsambandið en myndlyklarnir truflast ekkert sem er líklega útaf því að þeir eru með þetta 4 MB af tengingunni alveg útaf fyrir sig. En hvað get ég gert til að koma þessu í stabílt samband á ný? Skipta um router eða? Er búinn að athuga með þessa nýju routera en það er ekkert til á Höfuðborgarsvæðinu allavegana. Endilega hjálpa mér
Re: Er vandamál á ADSL tengingum Símans?
Sent: Fös 19. Nóv 2010 10:24
af hvilberg
Fyrir það fyrsta þá eru þessir speedtouch routerar alveg handónýtir. En eitt sem þú gætir prófað er að slökkva á "web browsing interception" stundum veldur sá fídus truflunum á sambandinu.
Ég mæli með því að þú skilir inn þessum router og fáir þér einn af þessum nýju sem Síminn er með (en á ekki á lager núna)
Hringja í símann og kvarta undan speedtouch - þrýsta þar með á þá að kaupa inn nýja routera.
Re: Er vandamál á ADSL tengingum Símans?
Sent: Fös 19. Nóv 2010 10:32
af Krissinn
hvilberg skrifaði:Fyrir það fyrsta þá eru þessir speedtouch routerar alveg handónýtir. En eitt sem þú gætir prófað er að slökkva á "web browsing interception" stundum veldur sá fídus truflunum á sambandinu.
Ég mæli með því að þú skilir inn þessum router og fáir þér einn af þessum nýju sem Síminn er með (en á ekki á lager núna)
Hringja í símann og kvarta undan speedtouch - þrýsta þar með á þá að kaupa inn nýja routera.
Takk fyrir ábendinguna
Er búinn að láta taka frá fyrir mig næst þegar þetta kemur en ég efast um að þeir muni gera það fyrir mig. Kannski að ég ætti samt að fá nýjan svona V6 router á meðan? Þegar ég bjó í foreldrahúsum þá fór pabbi minn 3 sinnum til að fá nýjan speedtouch router. Var í heimsókn hjá honum um daginn og gafst upp og skilaði routerinum hjá honum og setti Linksys WAG200G router í staðinn. Ég væri löngu búinn að kaupam ér eigin router ef ég væri ekki með IP tv-ið
Re: Er vandamál á ADSL tengingum Símans?
Sent: Fös 19. Nóv 2010 11:04
af oskar9
ég er með nýjan thomson router frá þeim sem er að virka fínt, lenti í einhverjum hraðadroppum og vesen, lagaðist þegar ég slökti á web browsing interception
Allt komið í lag núna
Re: Er vandamál á ADSL tengingum Símans?
Sent: Fös 19. Nóv 2010 13:14
af Krissinn
Fór í Símann í Ármúla og var svo heppinn að fá síðasta hvíta routerinn sem þeir voru með
Nú er þetta allt annað líf!
Re: Er vandamál á ADSL tengingum Símans?
Sent: Fös 19. Nóv 2010 15:24
af intenz
krissi24 skrifaði:Fór í Símann í Ármúla og var svo heppinn að fá síðasta hvíta routerinn sem þeir voru með
Nú er þetta allt annað líf!
Thomson TG585 ?
Re: Er vandamál á ADSL tengingum Símans?
Sent: Fös 19. Nóv 2010 15:31
af GullMoli
Ég er með þennan v6 rusl router, ef hann gefur sig eða internetið fer í fokk þá þarf ég að kæla hann með kælipoka svo hann verði aftur nothæfur fljótlega. Reyndar var tölvunum að fækka úr 5 í 3 núna og routerinn hefur ekkert verið með neitt vesen síðan þá.
Re: Er vandamál á ADSL tengingum Símans?
Sent: Fös 19. Nóv 2010 15:55
af wicket
TG585N er frábær router. Svona miðað við supplied router frá þjónustuaðilia. Þeir eru engir vinnuhestar eins og við sjáum í fjölmörgum spjallþráðum hér inni.
Hef ekki lent í neinu veseni með hann sjálfur eða í þeim fjölmörgu heimatengingum sem ég hef séð um vegna vinnu.
SpeedTouch 585V6 virkar fínt á venjulegum heimilum með venjulega notkun (ekki bandwith heavy) þannig að ég hafa fengið TG585n þar sem að menn eru að nota netið mikið eða þá að margar vélar/tæki þurfa að tengjast í gegn um hann.
Annars hef ég heyrt að Síminn sé að fara að skipta út Thomson fyrir eitthvað annað, veit ekki fyrir hvað samt.
Re: Er vandamál á ADSL tengingum Símans?
Sent: Fös 19. Nóv 2010 22:54
af Krissinn
intenz skrifaði:krissi24 skrifaði:Fór í Símann í Ármúla og var svo heppinn að fá síðasta hvíta routerinn sem þeir voru með
Nú er þetta allt annað líf!
Thomson TG585 ?
Já
Re: Er vandamál á ADSL tengingum Símans?
Sent: Lau 20. Nóv 2010 10:18
af Glókolla
Ertu með torrent í gangi?
Mikil nýting uploads getur kæft tenginuna.(lýsir sér eins og þú skrifar)
Ef þú ert að nota torrent, prófaðu að takmarka bandvídd deilinga. Það vikraði vel hjá mér.
Re: Er vandamál á ADSL tengingum Símans?
Sent: Sun 21. Nóv 2010 21:13
af Krissinn
Glókolla skrifaði:Ertu með torrent í gangi?
Mikil nýting uploads getur kæft tenginuna.(lýsir sér eins og þú skrifar)
Ef þú ert að nota torrent, prófaðu að takmarka bandvídd deilinga. Það vikraði vel hjá mér.
Ég átta mig alveg þá því
Það var slökkt á öllu torrenti og engin tölvunotkun í gangi þarna á föstudagsmorgunin og routerinn var búinn að vera svona í sirka 3 daga. En nú er þetta komið í lag eftir að ég fékk nýja routerinn
Enda ekkert vesen að fá hann
Loksins sýndi Síminn góða þjónustulund!
Re: Er vandamál á ADSL tengingum Símans?
Sent: Sun 21. Nóv 2010 21:20
af nonesenze
hef lent í að t.d. internet explorer 8 er rusl og veldur vesseni, ef þú ert að nota það þá skipta strax í ie9 eða chrome, og hef stundum séð mikinn mun í að setja manual dns server í tcp/ip settings t.d. 212.30.200.200
annars hef ég ekkert vont að segja um þennann router nema port forward er hand ónýtt, ef þeir myndu laga það þá væri þetta fínn router 16mb tenging fæ ég 1.8mb/s download með slökkt á afruglaranum og með kveikt alveg uppí 1.5mb/s
Re: Er vandamál á ADSL tengingum Símans?
Sent: Mán 22. Nóv 2010 19:28
af Krissinn
nonesenze skrifaði:hef lent í að t.d. internet explorer 8 er rusl og veldur vesseni, ef þú ert að nota það þá skipta strax í ie9 eða chrome, og hef stundum séð mikinn mun í að setja manual dns server í tcp/ip settings t.d. 212.30.200.200
annars hef ég ekkert vont að segja um þennann router nema port forward er hand ónýtt, ef þeir myndu laga það þá væri þetta fínn router 16mb tenging fæ ég 1.8mb/s download með slökkt á afruglaranum og með kveikt alveg uppí 1.5mb/s
Okey
Ég nota Firefox og af og til Chrome. Er ekki hrifinn af IE!