Síða 1 af 2

Ná í video af visir.is?

Sent: Þri 16. Nóv 2010 21:50
af intenz
Sælir.

Ég er að reyna að ná í video af visir.is ( http://www.visir.is/section/MEDIA99&fileid=CLP749 )

Ég er ekki algjör byrjandi í þessu, þannig ég byrjaði að skoða source og fann út að JW Player (flash playerinn) kallar í videoið: /CLP/749_4.mp4

En eftirfarandi skilar engu:

http://www.visir.is/CLP/749_4.mp4

http://www.visir.is/section/CLP/749_4.mp4

http://www.visir.is/section/MEDIA99/CLP/749_4.mp4

Búinn að prófa Flash Got í FireFox, virkaði ekki.

Hafið þið hugmynd?

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Þri 16. Nóv 2010 21:58
af svanur08
prufaðu þetta, þetta er snilldar add-on á firefox ---->http://www.downloadhelper.net/

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Þri 16. Nóv 2010 22:00
af hagur
Skoðaðu í source-inn af síðunni, þar er verið að kalla í fallið displayFlash().

Svo kíkirðu í javascript skrána þar sem þetta fall er skilgreint: http://www.visir.is/js/common.js?v=2.11

og þar má sjá þetta:

if(server==1){streamer = 'rtmp://klippur.visir.is/vod/_definst_/'};
if(server==2){streamer = 'rtmp://utsending.visir.is/live/'};

Þannig að ég hugsa að skránna sé að finna hér:

rtmp://klippur.visir.is/vod/_definst_/CLP/749_4.mp4

Svo er hún líka hér, m.v. það sem fallið displayHtml5Mov() er að gera:

http://m3.visir.is/CLP/749_4.mp4
;)

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Þri 16. Nóv 2010 22:18
af urban
Risastórt like á Hag

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Þri 16. Nóv 2010 22:30
af dori
Javascriptið á visir.is er alveg rosalegt. Best finnst mér þetta skjal: http://visir.is/js/tabs.js

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Þri 16. Nóv 2010 22:32
af hagur
dori skrifaði:Javascriptið á visir.is er alveg rosalegt. Best finns mér þetta skjal: http://visir.is/js/tabs.js


Haha, já ... mætti halda að takmarkið hjá þeim sem skrifaði þetta hafi verið að gera þessa tab-virkni á sem furðulegastan hátt og með eins miklum kóða og mögulegt er.

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Þri 16. Nóv 2010 22:40
af andribolla
Smá off Topic ..

ég sá um daginn að eithver var að reyna að ná mp3 skrám þarna útaf
semsagt útvarpsþáttum


http://visir.is/section/MEDIA98&fileid= ... 98390CD54#

http://m3.visir.is/SRC/VEFTVMP3/sources ... _11_12.mp3

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Þri 16. Nóv 2010 22:50
af intenz
Snilld, takk Haukur. :)

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Mið 17. Nóv 2010 01:23
af Viktor
hagur skrifaði:Skoðaðu í source-inn af síðunni, þar er verið að kalla í fallið displayFlash().

Svo kíkirðu í javascript skrána þar sem þetta fall er skilgreint: http://www.visir.is/js/common.js?v=2.11

og þar má sjá þetta:

if(server==1){streamer = 'rtmp://klippur.visir.is/vod/_definst_/'};
if(server==2){streamer = 'rtmp://utsending.visir.is/live/'};

Þannig að ég hugsa að skránna sé að finna hér:

rtmp://klippur.visir.is/vod/_definst_/CLP/749_4.mp4

Svo er hún líka hér, m.v. það sem fallið displayHtml5Mov() er að gera:

http://m3.visir.is/CLP/749_4.mp4
;)

Where have you been all my life?
Takk.

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Mið 17. Nóv 2010 03:32
af Opes
Hvað er Logi að perrast í Erp þarna í endanum?

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Mið 17. Nóv 2010 19:15
af Zorglub
Ætlaði að prófa að ná einni gamalli umfjöllun þarna og gengur eitthvað brösulega :-s
Myndi alveg þiggja aðstoð :-k
http://www.visir.is/section/MEDIA99&fil ... ece052e0e6

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Mið 17. Nóv 2010 20:20
af hagur
Zorglub skrifaði:Ætlaði að prófa að ná einni gamalli umfjöllun þarna og gengur eitthvað brösulega :-s
Myndi alveg þiggja aðstoð :-k
http://www.visir.is/section/MEDIA99&fil ... ece052e0e6


Þessi:

http://m3.visir.is/CLP/SRC/VEFTVMP4/sou ... _11_03.mp4

?

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Mið 17. Nóv 2010 20:20
af Viktor
Zorglub skrifaði:Ætlaði að prófa að ná einni gamalli umfjöllun þarna og gengur eitthvað brösulega :-s
Myndi alveg þiggja aðstoð :-k
http://www.visir.is/section/MEDIA99&fil ... ece052e0e6

Kóði: Velja allt

                    if (navigator.userAgent.toLowerCase().indexOf('ipad') >= 0  | h5){
                            displayHtml5Mov('SRC/VEFTVMP4/sources/island_i_dag/2010_11/island_i_dag_2010_11_03.mp4',700,394,'mediaboxid','1','');
                    }else{
                        displayFlash('/SRC/VEFTVMP4/sources/island_i_dag/2010_11/island_i_dag_2010_11_03.mp4','true','mediaboxid',700,394,'1','SRC/VEFTVMP4M1/sources/island_i_dag/2010_11/island_i_dag_2010_11_03.mp4','SRC/VEFTVMP4M2/sources/island_i_dag/2010_11/island_i_dag_2010_11_03.mp4','');
                    }
           

Prufaðu:
http://m3.visir.is/SRC/VEFTVMP4/sources ... _11_03.mp4

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Mið 17. Nóv 2010 20:31
af Zorglub
Það er þessi já :)
Kærar þakkir fyrir það.

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Mið 17. Nóv 2010 20:58
af CendenZ
Þeir sem skrifa visi.is ættu að fá verðlaun. Verðlaun fyrir allt sem hægt er að gera illa, gátuði gert illa - og gott betur.

Nýja lookið á visi er t.d. hryllingur. - reyndar betra en það sem áður var .. en þetta mouseonhoover kjaftæði er náttúrulega bara til hrikalega óþægilegur fídus

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Fim 18. Nóv 2010 00:14
af Viktor
Jæja, nýtt project?
Ná í myndbönd af MBL.is/frettir/sjonvarp (btw. afhverju í fjandanum er þetta í fréttamöppunni?)

http://mbl.is/frettir/sjonvarp/52884/

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Fim 18. Nóv 2010 00:32
af intenz
Sallarólegur skrifaði:Jæja, nýtt project?
Ná í myndbönd af MBL.is/frettir/sjonvarp (btw. afhverju í fjandanum er þetta í fréttamöppunni?)

http://mbl.is/frettir/sjonvarp/52884/

Fann þetta...

http://mbl.is/mblvideo/thaettir/94/52884_18084978.mp4

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Fim 18. Nóv 2010 01:21
af Viktor
intenz skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Jæja, nýtt project?
Ná í myndbönd af MBL.is/frettir/sjonvarp (btw. afhverju í fjandanum er þetta í fréttamöppunni?)

http://mbl.is/frettir/sjonvarp/52884/

Fann þetta...

http://mbl.is/mblvideo/thaettir/94/52884_18084978.mp4

Nice one!
En sharing is caring... hvernig?

edit:
Ah... fundið

Kóði: Velja allt

$(document).ready(function(){
  var media_info = {"mp4": "thaettir/94/52884_18084978.mp4", "image": "thaettir/94/52884_18085002.jpg", "flv": null};
  if (location.hash) {
    change_current_video(location.hash.replace('#', '').replace('/', ''), true, media_info);
  } else {
    change_current_video(52884, true, media_info);
  }
});

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Fim 18. Nóv 2010 01:37
af intenz
Já og svo var í einhverri .js skrá þetta /mblvideo/ prefix

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Fim 18. Nóv 2010 16:51
af dori
CendenZ skrifaði:Þeir sem skrifa visi.is ættu að fá verðlaun. Verðlaun fyrir allt sem hægt er að gera illa, gátuði gert illa - og gott betur.

Nýja lookið á visi er t.d. hryllingur. - reyndar betra en það sem áður var .. en þetta mouseonhoover kjaftæði er náttúrulega bara til hrikalega óþægilegur fídus

Bæði mbl.is og visir.is eru "á milli útlita" það er búið að skilgreina eitthvað takmark en þeir eru ekki búnir að útfæra nema rosalega lítinn hluta af breytingunum. Þú sérð t.d. að þessar örvar sem eru að koma inn á mbl.is (fyrst í menuinu og svo þarna "meira í blaðinu í dag" borðinn) er eitthvað þema sem er bara byrjað að koma inn og lítur mjög hjákátlega út og frekar mikið úr samhengi.

Ætli það sé ekki bara allt of mikið að gera hjá þessum mönnum, en það er samt ekkert sem afsakar þetta tabs javascript.

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Fim 02. Des 2010 13:07
af Viktor
Jæja, veit ekki hvort þetta sé hægt... en hér er nýtt project :)

http://filma.is/myndir/spila/246

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Sun 05. Des 2010 13:40
af dori
Sallarólegur skrifaði:Jæja, veit ekki hvort þetta sé hægt... en hér er nýtt project :)

http://filma.is/myndir/spila/246

Ég veit ekki hversu mikið ég nenni að elta þetta. Þeir nota rtmpe streymi (adobe protocol) og þú sérð það að fyrir þessa mynd þá sækir player.swf nokkur url:

Kóði: Velja allt

http://filma.is/spilari/leigja/user:XXXXXXXXXXXXX/content:246/language:en
http://filma.is/spilari/straumar/content:246/language:en
http://filma.is/spilari/texti/content:246/user:XXXXXXXXXXXXX/language:is
http://filma.is/spilari/heartbeat/user:XXXXXXXXXXXXXXX/content:246/position:XX.XXX

Fyrsti linkurinn er eitthvað sem þú notar til að leigja og skilar bara OK eða villu (held ég, hef ekki prufað það á einhverju sem ég má ekki).
Næsti linkur er það áhugaverða, kem að því á eftir.
Þriðji linkurinn er textaskjal (ef það þarf á því að halda).
Svo er fjórði linkurinn eitthvað sem endurtekur sig í sífellu og lætur vefþjóninn vita að þú ert að horfa (og hvert þú ert kominn etc.).

Hérna er svo dæmi um eitthvað sem þú færð úr link #2:

Kóði: Velja allt

server = rtmpe://212.30.228.35/filma/
bitrate_500 = mp4:movies/valiant/valiant_english_500
bitrate_750 = mp4:movies/valiant/valiant_english_750
bitrate_1000 = mp4:movies/valiant/valiant_english_1000
bitrate_1500 = mp4:movies/valiant/valiant_english_1500


Þetta myndu vera upplýsingarnar sem þú notar til að tengjast streymiþjóninum. Þannig að ef þú vilt rippa þetta þá þyrftirðu að finna þér eitthvað sem getur hlustað á rtmp straum og vistað hann. Það eru til nokkur forrit sem gera það, nenni ekki að finna það.

Hugsanlega er þetta líka aðeins erfiðara en þetta. Þú gætir þurft að taka í sundur player.swf skjalið, skoða hvað það gerir (SwfDecompiler) og herma eftir því svo að streymiþjónninn leyfi þér að tengjast.

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Þri 15. Feb 2011 01:58
af birgirdavid
Sælir, ég hef verið að ná í þætti með Audda & Sveppa og núna þegar ég prufa þetta þá virkar það allt í einu ekki :(
Slóðin á þættinum : http://www.visir.is/section/MEDIA99&fileid=CLP1895
Þannig að maður breytir þessu í : http://m3.visir.is/CLP/1895_3.mp4

Og þegar ég fer inn á þetta þá kemur þetta alltaf, var að spá hvort að þetta sé bara hjá mér

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Þri 15. Feb 2011 15:52
af birgirdavid
ttt ;)

Re: Ná í video af visir.is?

Sent: Þri 15. Feb 2011 16:07
af ManiO
Virkar gamalt dót?