Síða 1 af 1

vodafone bewan router og external HDD

Sent: Þri 09. Nóv 2010 19:30
af rambo
ég var að fá nýjan router frá vodafone og ætlaði að tengja Seagate 1tb flakkarann minn við hann yfir USB. Diskurinn kemur upp á network mapinu á stillingasíðu routersins og sést líka undir "Harðir diskar", en ég get bara ekki með nokkru móti tengst honum. Er einhver annar sem hefur verið í vandræðum með þetta? eru einhver trikk sem ég veit ekki um? eru þessir routerar eitthvað pikkí á flakkarabox?

Re: vodafone bewan router og external HDD

Sent: Þri 09. Nóv 2010 19:44
af steinarorri
Ég er líka með Bewan routerinn frá Vodafone og þar einmitt kemur upp flakkarinn (1TB Lacie flakkari) en næ ekki að nota flakkarann almennilega... get mappað drifið en sé falin folders sem ég sé ekki þegar hann er tengdur í tölvuna en sé ekki bíómyndirnar og svoleiðis. Endaði á að láta tölvu share flakkaranum.

Re: vodafone bewan router og external HDD

Sent: Mið 10. Nóv 2010 09:29
af rambo
getur einhver sagt mér hvernig ég kemst inn í admin viðmótið? Það er andskotann ekkert hægt að gera í hinum viðmótunum. veit einhver login/password?

Re: vodafone bewan router og external HDD

Sent: Fim 11. Nóv 2010 08:12
af rambo
veit enginn neitt um þetta?

Re: vodafone bewan router og external HDD

Sent: Fim 11. Nóv 2010 09:40
af Gothiatek
rambo skrifaði:getur einhver sagt mér hvernig ég kemst inn í admin viðmótið? Það er andskotann ekkert hægt að gera í hinum viðmótunum. veit einhver login/password?

Prófaðu vodafone/vodafone

Hef ekki prófað að tengja HDD við þennan router.

Re: vodafone bewan router og external HDD

Sent: Fim 11. Nóv 2010 09:48
af rambo
vodafona/vodafoen er fyrir aðganginn "sérfræðisnið" (eða eitthvað álíka), en svo er næsta fyrir ofan sem er stjórnandi. sérfræðisniðið bíður ekki upp á neina möguleika og mjög takmarkaðar upplýsingar varðandi HDD

Re: vodafone bewan router og external HDD

Sent: Fim 11. Nóv 2010 09:50
af corflame
rambo skrifaði:getur einhver sagt mér hvernig ég kemst inn í admin viðmótið? Það er andskotann ekkert hægt að gera í hinum viðmótunum. veit einhver login/password?


Það er búið að læsa Admin partinum, eingöngu hægt að fara í "normal" og "power user" viðmót. Nokkuð sem er óþolandi

Re: vodafone bewan router og external HDD

Sent: Þri 23. Nóv 2010 16:17
af rambo
er enginn kominn með passwordið inn á admin stillingarnar?

Re: vodafone bewan router og external HDD

Sent: Þri 23. Nóv 2010 20:15
af benson
Ég held það verði að vera FAT32 file system á flakkaranum til að þetta virki. Ég prófaði þetta þegar hann kom fyrst og náði aldrei að láta þetta virka á NTFS.

Re: vodafone bewan router og external HDD

Sent: Þri 23. Nóv 2010 21:35
af rambo
mig svosem grunaði það, bara er ekki að meika það að strauja flakkarann, þar sem hann er fullur af fjölskyldumyndum og allskonar backupi.

Re: vodafone bewan router og external HDD

Sent: Þri 23. Nóv 2010 23:34
af rambo
ég lét vaða og formataði flakkarann, en það kemur alveg nákvæmlega eins út. Routerinn sér flakkarann, gefur honum nafn, en ég get ekki með nokkru móti tengst honum. ég get séð í gegnum UPNP meda gate (eða hvað það heitir) að hann er inni, þar sem ég get browsað myndirnar sem eru á honum, en ég get bara ekki opnað hann í explorer og þ.a.l. ekki copy/delete. skil ekkert í þessu drasli

Re: vodafone bewan router og external HDD

Sent: Lau 27. Nóv 2010 01:26
af braudrist
Ég mæli með að fólk skili eða hendi þessum BeWan rusl router. Ég var með svona router fyrir ljósleiðarann og hann var alltaf að crasha þegar ég var að downloada af Bittorrent. Keypti mér ZyXEL NBG460n og allt varð margfalt betra.

Re: vodafone bewan router og external HDD

Sent: Fös 10. Des 2010 19:50
af avi1
rambo skrifaði:er enginn kominn með passwordið inn á admin stillingarnar?


Þú græðir ekkert á því pw. Eina sem þú færð aukalega eru einhverjar stillingar fyrir phone hlutann af routernum. Var ólæst fyrst eftir að þessi router kom á markaðinn.