Síða 1 af 1

Processing.

Sent: Fim 04. Nóv 2010 13:14
af Frost
Sælir. Stærðfræðikennarinn minn var að láta okkur fara í þetta forrit.

Hefur eitthver prófað þetta áður? Er processing sér forritunarmál eða er þetta Java o.s.frv?

Langar alveg virkilega mikið að læra forritun, er þetta góður grunnur eða á ég að byrja í eitthverju öðru? :sleezyjoe

Re: Processing.

Sent: Fim 04. Nóv 2010 13:18
af AntiTrust
http://processing.org/

Getur lesið þér til um þarna.

Re: Processing.

Sent: Fim 04. Nóv 2010 15:21
af dori
Ég get rosalega lítið sagt um þetta mál þar sem ég hef ekkert kynnt mér það en það er allavega búið að porta það yfir í Javascript (http://ejohn.org/blog/processingjs/).

Svo er [e]John Resig með kynningu á því hér ef þú ert æstur: http://ejohn.org/blog/overview-of-processing/

Mér finnst hugsjónin góð en ég átta mig ekki alveg á því hvað tungumálið getur og hverjir góðu partarnir við það eru. Annars þá mæli ég með Javascript, það er ótrúlega fínt mál og auðvelt að byrja (skoða bókina "Javascript: the good parts" eftir Douglas Crockford ef þú ætlar í þetta, ekki skoða tutorial á netinu, það er allt handónýtt).

Re: Processing.

Sent: Fim 06. Jan 2011 12:25
af biggihs
Ég hef notað Processing til þess að taka á móti serial streng frá Arduino og túlka það sem lyklaborðs innslátt til þess að geta spilað Nintendo leiki með gömlu fjarstýringunni.
Frekar einfalt og þægilegt mál en ég held að það væri betra fyrir þig að byrja á Python/Java/C# heldur en Processing.
Það er líka svo andskoti óþægilegt að googla Processing :megasmile .