Síða 1 af 1

Ljósleiðarasamband í Hafnarfirði

Sent: Mið 03. Nóv 2010 22:42
af Krissinn
Er einhver hér inná sem býr í Hafnarfirði sem er með ljósleiðaratengingu? Ef, hjá hvaða þjónustuaðila?

Re: Ljósleiðarasamband í Hafnarfirði

Sent: Mið 03. Nóv 2010 23:02
af AntiTrust
Hérna geturu séð áætlun símans :

http://www.siminn.is/einstaklingar/neti ... snet-kort/

Ekki sure með GR, en svo best sem ég veit til er ljós ekki í boði í HFJ eins og er.

Re: Ljósleiðarasamband í Hafnarfirði

Sent: Mið 03. Nóv 2010 23:18
af GuðjónR
Hvaða sauðir eru þetta??? Það vantar hverfi 116 í planið :mad

Re: Ljósleiðarasamband í Hafnarfirði

Sent: Mið 03. Nóv 2010 23:27
af vesley
AntiTrust skrifaði:Hérna geturu séð áætlun símans :

http://www.siminn.is/einstaklingar/neti ... snet-kort/

Ekki sure með GR, en svo best sem ég veit til er ljós ekki í boði í HFJ eins og er.



Löngu úrelt plan.

Ekki enn kominn ljósleiðari í öll hús hérna í 112.

Re: Ljósleiðarasamband í Hafnarfirði

Sent: Mið 03. Nóv 2010 23:35
af intenz
vesley skrifaði:
AntiTrust skrifaði:Hérna geturu séð áætlun símans :

http://www.siminn.is/einstaklingar/neti ... snet-kort/

Ekki sure með GR, en svo best sem ég veit til er ljós ekki í boði í HFJ eins og er.



Löngu úrelt plan.

Ekki enn kominn ljósleiðari í öll hús hérna í 112.

Langt í frá!

Re: Ljósleiðarasamband í Hafnarfirði

Sent: Fim 04. Nóv 2010 00:12
af dori
vesley skrifaði:Löngu úrelt plan.

Ekki enn kominn ljósleiðari í öll hús hérna í 112.

Þetta er ekki ljósleiðari, þetta er ljósnet (aka VDSL, fiber to the curve). Koparlínurnar eru s.s. notaðar að húsinu þínu en það er lagður ljósleiðari í símstöðina. Þetta býður uppá 100 mbit upp og niður max (örugglega ekki jafn stabílt eða meira latency en ljósleiðari samt, dno).
Er þetta ekki komið hjá þér? Ertu ekki búinn að hringja í þá og spurja? Ég er nefnilega að bíða eftir að þetta komi hingað til mín eftir áramót og það væri mjög leiðinlegt ef þetta væri að fara að tefjast eitthvað.

Annars þá er ég nokkuð viss um að Síminn hafi fryst hugmyndina um að leggja ljósleiðara í gömul íbúðarhús, þetta á að vera nóg í bili og svo koma væntanlega meiri framfarir í merkjafræði sem hraða ennþá meira á koparnum þegar þetta verður of lítið.

Re: Ljósleiðarasamband í Hafnarfirði

Sent: Fim 04. Nóv 2010 11:33
af Plushy
Langar í.. ljósleiðara... í 112...

Re: Ljósleiðarasamband í Hafnarfirði

Sent: Fim 04. Nóv 2010 11:53
af AntiTrust
Ég skil hinsvegar ekki afhverju vellirnir (þar sem ég bý) er svona aftarlega á planinu. Glæný hverfi, glænýjar götur og splunkuný hús.

Örugglega þæginlegustu hverfin til að ráðast í svona framkvæmdir.