Síða 1 af 1

10.10 upgrade

Sent: Sun 10. Okt 2010 17:12
af bjarkih
Hefur einhver prófað ubuntu 10.10 upgrade-ið og eru einhverjar breytingar til batnaðar? Og er öruggt að nota upgrade-ið sem er innbyggt í ubuntu eða þarf að gera clean install? Það crashaði allt hjá mér þegar ég ætlaði að nota innbyggða dótið þegar ég uppfærði úr 9.10 í 10.04 á sínum tíma nefnilega.

Re: 10.10 upgrade

Sent: Sun 10. Okt 2010 18:10
af dori
Þar sem það var að koma úr RC þá myndi ég ekki treysta uppfærsluferlinu sem þeir bjóða uppá (mín reynsla er að þetta virkar aldrei *vel* og hefur gerst í 30-50% tilfella að kerfið sé virkilega veikt eftirá, sérstaklega þegar kerfið er keyrt til að uppfæra í glænýja útgáfu).

Ef tölvan þín er vinnutæki (eins og þú segir í hinum þræðinum) skaltu frekar halda þig við 9.10 eða fara bara í 10.04. 10.04 er LTS og ætti því að vera safe bet.

Re: 10.10 upgrade

Sent: Sun 10. Okt 2010 18:19
af coldcut
Persónulega mundi ég bara bíða eftir 11.04 því það eru engin major improvements frá 10.04-10.10
...en ef þú ert ekki að keyra 10.04 mundi ég setja það upp sem fyrst ;)

Re: 10.10 upgrade

Sent: Sun 10. Okt 2010 19:57
af Sydney
coldcut skrifaði:Persónulega mundi ég bara bíða eftir 11.04 því það eru engin major improvements frá 10.04-10.10
...en ef þú ert ekki að keyra 10.04 mundi ég setja það upp sem fyrst ;)

Nýi kernellinn sem 10.10 notar styður sjálfvirkt TRIM fyrir SSD diska, major thing fyrir SSD notendur :).

Re: 10.10 upgrade

Sent: Sun 10. Okt 2010 19:59
af Cascade
Sydney skrifaði:
coldcut skrifaði:Persónulega mundi ég bara bíða eftir 11.04 því það eru engin major improvements frá 10.04-10.10
...en ef þú ert ekki að keyra 10.04 mundi ég setja það upp sem fyrst ;)

Nýi kernellinn sem 10.10 notar styður sjálfvirkt TRIM fyrir SSD diska, major thing fyrir SSD notendur :).



Er nóg að gera update til að fá þann möguleika?

Re: 10.10 upgrade

Sent: Sun 10. Okt 2010 20:38
af coldcut
Sydney skrifaði:
coldcut skrifaði:Persónulega mundi ég bara bíða eftir 11.04 því það eru engin major improvements frá 10.04-10.10
...en ef þú ert ekki að keyra 10.04 mundi ég setja það upp sem fyrst ;)

Nýi kernellinn sem 10.10 notar styður sjálfvirkt TRIM fyrir SSD diska, major thing fyrir SSD notendur :).


Ég biðst innilegrar afsökunar á þessum ummælum mínum! Var líka búinn að gleyma endurbættum Xorg! :D

en ætla þá að koma með nýtt ráð sem ég fylgi nánast alltaf. Ekki gera nýju útgáfuna að aðalstýrikerfi tölvunnar fyrr en hún er búin að vera í gangi í svona hálfan mánuð. Hef nánast alltaf fylgt þessari reglu og aldrei lent í veseni ;)

Re: 10.10 upgrade

Sent: Sun 10. Okt 2010 23:25
af bjarkih
Ég hef alltaf keyrt 10.04 á þessari vél, keypti hana bara í sumar. Málið er bara að hljóðið hjá mér er í hálfgerðu fokki þannig að ég var að vonast til að uppfærslan myndi kannski laga það. Keyrði ALSA-upgrade script og það gerði hlutina bara verri :dead

Re: 10.10 upgrade

Sent: Sun 10. Okt 2010 23:28
af gardar
Ertu að nota pulse?

Hvernig lýsir þetta vesen á hljóðinu sér?

Re: 10.10 upgrade

Sent: Mán 11. Okt 2010 16:42
af bjarkih
Þegar það er kominn nógu langur uptime þá deyr hljóðið :woozy En það sem böggar mig mest eftir að ég keyrði scriptið er að ef ég ætla að nota usb headphone þá frís tölvan alveg og ég þarf að taka strauminn af henni til að slökkva, lyklaborðið svarar s.s. ekki.

http://ubuntuforums.org/showthread.php?p=6589810

Re: 10.10 upgrade

Sent: Mán 11. Okt 2010 17:14
af Revenant
Ég er búinn að uppfæra 3 vélar úr 10.04 í 10.10 með innbyggða tólinu og það tókst í öllum tilfellum án neinna vandamála.

Re: 10.10 upgrade

Sent: Þri 12. Okt 2010 21:34
af bjarkih
Var að klára upgrade í 10.10 með system>administrator>update manager græjunni. Allt gekk vel og ég er ekki frá því að tölvan sé töluvert fljótari að boota sér á eftir \:D/ Svo kemur bara í ljós með rest...

Re: 10.10 upgrade

Sent: Þri 12. Okt 2010 23:19
af Sydney
Var að henda upp 10.10 á lappann, ákvað að formatta hann í staðinn fyrir að uppfæra.

So far so good.