Síða 1 af 1
Varðandi Vaktina
Sent: Þri 14. Sep 2010 08:00
af Benzmann
sælir vaktarar, ég var að pæla, víst hér á vaktinni getur maður séð hvaða verslanir eru ódýrastar á tölvubúnaði.
væri það ekki fínt ef það myndi líka sýna hvaða tölvuverkstæði á landinu eru ódýrust ?
það væri geggjað ef það myndi koma hérna inn líka,
hvað finnst ykkur ?
Re: Varðandi Vaktina
Sent: Þri 14. Sep 2010 10:41
af KermitTheFrog
Þetta hefur komið áður, og var skotið niður.
Re: Varðandi Vaktina
Sent: Þri 14. Sep 2010 11:25
af Sydney
AFAIK er Tölvutek með ódýrasta verkstæðið, 2.990 á tímann.
/shameless advertising
Re: Varðandi Vaktina
Sent: Þri 14. Sep 2010 11:28
af GuðjónR
Það er ekki hægt að bera saman verð á tímavinnu.
Ef A selur sig út á 3000 og B á 5000 þá er ekki þar með sagt að A sé ódýrari en B, A er kannski 3x lengur að vinna en B.
Svo er líka C sem vinnur alltaf í 3 verkum í einu og skrifar á þau öll, hann er duglegastur, afkastar 30klst. vinnu á 10 tímum.
Gæti trúað að C væri að vinna hjá Nýherja.
Er þetta línulöguð algebra ?
p.s. hver er ódýrastur? ...
Re: Varðandi Vaktina
Sent: Þri 14. Sep 2010 14:05
af AntiTrust
Engin auðveld leið að reikna þetta út, sum verkstæði rukka fyrir hvern hafinn klukkutíma, sum verkstæði gefa upp verð án VSK á heimasíðum, sum ef ekki mörg verkstæði rukka eftir tímagjaldi fyrir flestallt.
Það væri svosem hægt að setja þetta þannig upp að það yrðu tekin öll verkstæði sem gefa upp fasta taxta á tímavinnu og annað, uppsetningu á OS, samsetningu á PC, vírushreinsanir, ísetningu á íhlutum etc og bera saman. En svo er það annað að það er oft aukagjöld sem leggjast ofan á (óvænt gjöld vegna viðgerðar, afritun gagna, gagnabjörgun, óvænt skipti á íhlut) svo þetta yrði alltaf viðmiðunarlisti en ekki til þess að taka sem 100% réttum uppl.
Re: Varðandi Vaktina
Sent: Þri 14. Sep 2010 15:19
af zdndz
Hver er ykkar reynsla af tölvuverkstæðum á íslandi? hverjir eru bestir og ódýrastir? Eitthver verkstæði sem taka marga klukkutíma fyrir eitthvað smá verk?
Re: Varðandi Vaktina
Sent: Þri 14. Sep 2010 15:31
af Glazier
zdndz skrifaði:Hver er ykkar reynsla af tölvuverkstæðum á íslandi? hverjir eru bestir og ódýrastir? Eitthver verkstæði sem taka marga klukkutíma fyrir eitthvað smá verk?
Kísildalur.. bestur í alla staði
Re: Varðandi Vaktina
Sent: Þri 14. Sep 2010 15:43
af rapport
Það má bera saman föst verð á aðgerðum sbr. rykhreinsun á fartölvu/borðtölvu, vírushreinsun, "útkalli", "startgjaldi", bilanagreining, forgangsþjónustu og þjónustumarkmiðum = hversu marga daga afgreiðsla á vél tæki án forgangs.
Í dag er verið að bera saman verð á minniskubbum, hörðum diskum o.s.frv. sem hafa sömu spekka en eru frá hinum og þessum framleiðendum = mis áreiðanlegir að mínu mati.
Sbr. Hitachi 2Tb diskar frá Buy.is (19.990kr.) og Seagate 2Tb frá Tölvutækni (19.900kr.)
En það væri virkilega forvitnilegt að sjá á töflu yfirlit:
- Startgjald/bilanagreining.
- Rukkað pr. hafna klst. pr. hafnar 30 min eða pr. hafnar 15.min.
- Verð vinnu pr. klst.
- Þjónustumarkmið = afgreiðsla beiðna innan X fjölda daga.
- Verð fyrir forgangsþjónustu s.s. klárað innan 24klst.