Síða 1 af 1

Vesen með að tengja hátalara!!

Sent: Lau 28. Ágú 2010 20:19
af gunnicruiser
Sælir

Var að kaupa mér notaða Acer Aspire 7520G og lét Tölvutækni setja upp Vista fyrir mig.
Ég hef mjög gaman að því að hlusta á tónlist svo mig langar að geta tengt Logitech 2.1 hátalana mína við fartölvuna en það kemur ekki í gegn!
Ef ég tengi við þá gerist ekkert. Tölvuhátalarnir heyrast bara.

Hvað er að?

KV.
Gunnar Smári.

Re: Vesen með að tengja hátalara!!

Sent: Lau 28. Ágú 2010 23:38
af rapport
Það fyrsta sem mér dettur í hug er "Ertu að plögga í rétt tengi?"

Ef hátalararnir virka við aðrar tölvur, þá ertu búin að útiloka þá...

Annars er spurning með audio driver, gæti verið, hjá mér spyr tolvan hvort ég vilji færa hljóðið yfir í headphone-in þegar ég smelli þeim í samband.

Re: Vesen með að tengja hátalara!!

Sent: Sun 29. Ágú 2010 02:35
af stebbi-
sko... í vista er þetta á gríns VANgefið og fatlað.... þú átt að geta valið hvað er sett á default og þá ætti það að fara að virka....
ferð bara og "right" klikkar á sound hægra meginn niðri og ferð í ...ekki sound og ekki record heldur hitt ( man ekki hvað stóð nakl xD )
og þar geturu valið þetta default en ef það er ekki þar þá er það í stillingum þar að það eigi að taka speakers af þegar plug er sett í.
Annars sendu mér pm og ég skal hjálpa þér með þetta.