Síða 1 af 1

Windows 7 share

Sent: Fim 19. Ágú 2010 22:08
af intenz
Ég er með lappa (Win7) og langar að gefa ákveðnum notanda á annari tölvu (Win7) fullan aðgang að einni möppu á C:

Ég er búinn að vera að grúska í Permissions en get bara leyft notendum á lappanum sjálfum að fá aðgang.

Hvernig fer ég að?

Re: Windows 7 share

Sent: Fim 19. Ágú 2010 23:03
af AntiTrust
Þar sem þú ert ekki á domaini verðuru líklegast að búa til sama userinn á báðum tölvum og gefa honum rétt permissions á local share vélinni.

Re: Windows 7 share

Sent: Fim 19. Ágú 2010 23:04
af zdndz
intenz skrifaði:Ég er með lappa (Win7) og langar að gefa ákveðnum notanda á annari tölvu (Win7) fullan aðgang að einni möppu á C:

Ég er búinn að vera að grúska í Permissions en get bara leyft notendum á lappanum sjálfum að fá aðgang.

Hvernig fer ég að?


hægri smellir->share with->homegroup
þá er það komið en auðvitað á undan þarftu að starta homegroup þar sem báðar tölvurnar eru í

Re: Windows 7 share

Sent: Fim 19. Ágú 2010 23:05
af intenz
AntiTrust skrifaði:Þar sem þú ert ekki á domaini verðuru líklegast að búa til sama userinn á báðum tölvum og gefa honum rétt permissions á local share vélinni.

Það gekk ekki upp.

En ég skráði báðar tölvurnar í sama HomeGroup, þannig mér tókst þetta með því.

Re: Windows 7 share

Sent: Fim 19. Ágú 2010 23:30
af zdndz
intenz skrifaði:
AntiTrust skrifaði:Þar sem þú ert ekki á domaini verðuru líklegast að búa til sama userinn á báðum tölvum og gefa honum rétt permissions á local share vélinni.

Það gekk ekki upp.

En ég skráði báðar tölvurnar í sama HomeGroup, þannig mér tókst þetta með því.

:) , persónulega fannst mér sharing dæmið í xp mun þægilegra :(

Re: Windows 7 share

Sent: Fim 19. Ágú 2010 23:33
af sakaxxx
þú getur líka prófað http://www.rejetto.com/hfs/ svínvirkar og þú ert enga stund að setja þetta upp

Re: Windows 7 share

Sent: Fös 20. Ágú 2010 10:40
af Danni V8
Hef aldrei fengið Homegroup til að virka. Get séð hinar tölvurnar og folderana, en kemst aldrei inn í folderana. File sharing í W7 getur verið puð. Ég endaði bara með að setja upp IIS og setja FTP server í gang :lol:

Re: Windows 7 share

Sent: Fös 20. Ágú 2010 16:25
af intenz
Danni V8 skrifaði:Hef aldrei fengið Homegroup til að virka. Get séð hinar tölvurnar og folderana, en kemst aldrei inn í folderana. File sharing í W7 getur verið puð. Ég endaði bara með að setja upp IIS og setja FTP server í gang :lol:

Þetta er alveg æðislegt. Er með allt skóladraslið mitt á lappanum og nenni sko ekki að hafa það á báðum tölvum (version conflict o.s.frv.). Núna get ég bara share'að skólamöppunni í HomeGroup og búið svo til shortcut af möppunni á desktopið á PC og haft beinan read/write aðgang á það.

Guði sé lof að ég þarf ekki að nota FTP til að komast inn á þetta.

Re: Windows 7 share

Sent: Fös 20. Ágú 2010 18:30
af teitan
Filesharing í Windows 7 finnst mér algjör barnaleikur miðað við fyrri útgáfur. Er með 3 tölvur uppsettar með W7 og það var eins og að drekka vatn að fá þær til að tala saman.

Re: Windows 7 share

Sent: Fös 20. Ágú 2010 18:52
af Danni V8
teitan skrifaði:Filesharing í Windows 7 finnst mér algjör barnaleikur miðað við fyrri útgáfur. Er með 3 tölvur uppsettar með W7 og það var eins og að drekka vatn að fá þær til að tala saman.


Mér finnst einmitt mjög erfitt að drekka vatn. :lol:

En síðan ég notaði FTP lausnina þá er ég nú búinn að fá File Sharing til að virka, en ekki Home Group. Veit ekki hvers vegna, en þegar ég nota þetta Homegroup þá tala tölvurnar alveg saman, en ég get ekki séð neinar skrár í gegnum Homegroup, bara foldera. Þarf að nota Network File Sharing fyrir það, sem er í sjálfu sér ekkert vandamál og þess vegna hef ég ekki reynt að finna lausn á því.

En þráðurinn snýst nú ekki um það. Flott að þú gast leyst þetta auðveldlega Gaui ;)