Síða 1 af 1

Vantar fróðan mann í sambandi við uppsetningu á mörgum vélum

Sent: Þri 17. Ágú 2010 17:34
af division
Sælir vaktarar

Mig vantar aðeins hjálp, þarf að setja upp margar tölvur, semsagt gera image og setja það inna margar vélar, þetta er windows 7 enterprise. Langaði að vita hvaða leiðar eru bestar til þess, þetta eru yfir 100 tölvur og ég er ekki að nenna að skrifa inn allt manually á 300 vélum.

Öll hjálp er vel þegin, S: 845 4972 ef að þú ert mjög fróður eða bara svara hér.

Takk fyrir.

Re: Vantar fróðan mann í sambandi við uppsetningu á mörgum vélum

Sent: Þri 17. Ágú 2010 17:58
af Gullisig
Googlaðu RIS

Re: Vantar fróðan mann í sambandi við uppsetningu á mörgum vélum

Sent: Þri 17. Ágú 2010 18:05
af gardar
Lang einfaldast er að setja eina vélina upp eins og þú vilt hafa hana. Taka svo ghost afrit með Clonezilla eða Synaptic Ghost...

Setur svo ghost myndina upp á allar vélarnar.

Re: Vantar fróðan mann í sambandi við uppsetningu á mörgum vélum

Sent: Þri 17. Ágú 2010 18:09
af beatmaster
Hvernig fær samt einhver sem að veit þetta ekki fyrirfram þetta verkefni?

Re: Vantar fróðan mann í sambandi við uppsetningu á mörgum vélum

Sent: Þri 17. Ágú 2010 18:14
af division
Ég veit alveg hvernig þetta er gert en leiðin sem ég ætlaði að nota er ekki perfect. Það er ekki alveg að ganga að gera þetta með Windows Automatic Installation sem er í Windows Server R2.

Re: Vantar fróðan mann í sambandi við uppsetningu á mörgum vélum

Sent: Þri 17. Ágú 2010 19:17
af Minuz1
beatmaster skrifaði:Hvernig fær samt einhver sem að veit þetta ekki fyrirfram þetta verkefni?

haha...

"hey þú kannt á tölvur er það ekki?"

Re: Vantar fróðan mann í sambandi við uppsetningu á mörgum vélum

Sent: Þri 17. Ágú 2010 19:46
af division
Ef þú ert að tala við mig, þá er ég frekar klókur í tölvum :)

Re: Vantar fróðan mann í sambandi við uppsetningu á mörgum vélum

Sent: Þri 17. Ágú 2010 20:01
af Sydney
Gerðu bara eins og við gerum niðrí vinnu, hafðu nokkrar vélar með slatta af sata tengjum, taktu diskana úr vélunum sem þú ætlar að ghosta og notaðu Acronis til þess að ghosta.

Re: Vantar fróðan mann í sambandi við uppsetningu á mörgum vélum

Sent: Mið 18. Ágú 2010 00:35
af division
Er kominn með lausn á þessu, má læsa. Það er of mikið vesen að taka harðadiska úr 100+ vélum, pxe er eina vitið :) Þakka fyrir alla hjálp sem ég hef fengið, hjálpaði mér mikið í brainstormi :)

Re: Vantar fróðan mann í sambandi við uppsetningu á mörgum vélum

Sent: Mið 18. Ágú 2010 00:40
af AntiTrust
Nota deployment function-ið á 2008 R2, jafnvel fara út í ZeroTouch installation uppsetningu, myndir ekki sjá eftir því seinna meir ef þú ert system admin hjá fyrirtækinu. Komið endalaust af tólum til að eiga auðveldlega við images, bæta inn reklum, hugbúnaði, leyfum, uppfærslum og flr.

Re: Vantar fróðan mann í sambandi við uppsetningu á mörgum vélum

Sent: Mið 18. Ágú 2010 01:03
af rapport
Fyrir þetta magn af vélum þá mundi ég búa til image og láta þann sem selur þér vélarnar gera þetta...

Í vinnunni erum við að versla c.a. eina tölvu á dag alla virka daga ársins og þetta er bara sett í skilmálana fyrri dílnum...

Ef söluaðilinn getur ekki gert þetta = dealbreaker...

Re: Vantar fróðan mann í sambandi við uppsetningu á mörgum vélum

Sent: Mið 18. Ágú 2010 07:41
af Pandemic
Það er líka mjög sniðugt að nota Windows Automated Installation Kit.

Re: Vantar fróðan mann í sambandi við uppsetningu á mörgum vélum

Sent: Mið 18. Ágú 2010 09:56
af ponzer
ef þú vilt vera flottur notaru auðvita sccm, http://www.google.is/search?sourceid=ch ... F-8&q=sccm svo geturu auðvita notað norton ghost líka en þú þarft að passa þig að keyra sysprep á vélanar ef þú notar ghostið svo vélarnar "sida" sig upp á nýtt.

Re: Vantar fróðan mann í sambandi við uppsetningu á mörgum vélum

Sent: Mið 18. Ágú 2010 11:58
af Gullisig
gardar skrifaði:Lang einfaldast er að setja eina vélina upp eins og þú vilt hafa hana. Taka svo ghost afrit með Clonezilla eða Synaptic Ghost...

Setur svo ghost myndina upp á allar vélarnar.


já ef allar vélar eru með sömu stærðar harðadisk

Re: Vantar fróðan mann í sambandi við uppsetningu á mörgum vélum

Sent: Mið 18. Ágú 2010 13:03
af division
Já mun koma til að nota væntanlega FOG eða Ghost, mun bara syspreppa vélarnar áður